Tíminn - 21.06.1974, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Föstudagur 21. júni 1974
Föstudagur 21. júní 1974
4
Vatnsberinn: (20. iaa-18. febr.)
Það er i dag, sem þú ' sannfærist um, að þú
hefur flækzt inn i eitthvaö, sem er þér alls óvið-
komandi, og þaö, sem verra er, þú verður að
gera eitthvað i málinu og hreinsa þig af þessu.
Notaðu kvöldið til þess.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Þú skalt ekki hafa mikið umleikis i dag og reyna
að slappa af. Hitt er annað mál, að það getur vel
fariö svo, aö i dag gerist einhver sá atburður,
sem verður lengi minnisstæður — fyrir þig og
aðra.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Það er ekki óliklegt, að I dag gefist þér tækifæri
til að sýna hvaö i þér býr, og ef þú leggur þig
sérstaklega fram, hefur þú fulla ástæöu til að
búast við góðum launum. Þú kannt að fá vinar-
ráð, sem þú skalt nota.
Nautið: (20. april-20. mai)
Þú ert með heilabrot út af einhverju, sem þú
hefur að likindum frétt. Þú skalt kynna þér
málið bétur. Þetta skiptir þig nefnilega ekki eins
miklu máli eins og þú hélzt, en þú þarft að sann-
færast um þaö sjálfur
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
t dag reynirðu það, aö sumt fólk er ekki eins og
það sýnist, og það er ekki vist, að skapið hjá þér
verði upp á marga fiska I dag. Hitt skaltu gera
þér ljóst, aö þessu verður aö eyða, og það kemur
ekki af sjálfu sér.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Fjármálin virðast nokkuð góö hjá þér, en engu
að siður skaltu fara að öllu með gát, Það litur út
fyrir, að áhugamálin eigi allan hug þinn i kvöld,
og það er gott. Þau veita þér ánægju.
Ljónið: (22. júli-23. ágúst)
Þú skalt ekki treysta þvi um of, að þessi dagur
verði þér til sérstakrar ánægju. Eitthvað veröur
til þess að særa þig, og þér finnst þetta versta
mótlæti. — en þaö er það nú ekki i rauninni —
alls ekki.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Eitthvað, sem þú hefur veriö án, eöa saknað, um
þó nokkurt skeið, kemur aftur til þin. Gamlar
endurminningar rifjast upp. En mundu þaö citt,
að liöinn timi kemur aldrei aftur I nákvæmlega
sömu mynd og var.
Vogin: (23. sept,-22. oktj
Skilaboö, aö likindum bréfleiðis, koma til þin I
dag. Það er alls ekki vist, að þau verði þér til
ánægju, og eiginlega eru miklu meiri likur til
þess, aö þau valdi þér einhvers konar leiöindum.
Sproödrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Þaö er rétti dagurinn i dag að gera upp hug þinn.
Þú þarft að koma skipulagi á mál þin og haga
þér siðan samkvæmt þvi. Þú kannt að rekast á
stórvægilega galla i kerfinu, en þú mátt ekki láta
þaö hindra þig.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Hvað ert þú að láta rugla þig i riminu? Kanntu
enn ekki skil á þvi, hvaö eru heimskulegar
ábendingar og gylliboð: Þú skalt fara að gá að
þér, svo að hagur þinn Hði ekki tjón fyrir þitt
eigið hugsunarleysi.
Steingeitin: (22. des.-19. janJ.
Skemmtanir eru skemmtanir og alvara er al-
vara. Þetta er nokkuð sem gera veröur greinar-
mun á, og enda þótt þú kunnir að vera meö glýju
I augunum ennþá, er þér vissara aö fara að átta
þig, áður en alvaran verður alvarleg.
t 14444 1
mum
* 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
WIIII
BI.Íl
TTTnni
TTTTTT
íf#!i
Sóðaskapur í strætisvagnaskýlum
Fullorðin kona I Reykjavik
hringdi til Landfara, og sagöi, aö
sér ofbyði sóðaskapurinn hjá
Strætisvögnum Reykjavikur,
bæði I vögnunum sjálfum, og ekki
siður I biðskýlunum.
— Ég fór fyrir skömmu með
leið fimm, sagði konan, og sá
vagn var svo illa leikinn, að mann
hryllti við. Aftur I vagninum var
t.d. allt útatað i smuroliu. Þessi
vagn er ekkert einsdæmi og oft
eru vagnarnir þannig, að full
Hagsæld í
heimabyggð
x B
ástæöa væri til þess að þrifa þá að
innan með sótthreinsunarlegi.
Biðskýlin eru lika óskaplega
sóðaleg, allir veggir þeirra eru
ataöir alls konar sóðaskrifum, og
þau virðast aldrei vera þrifin.
Biöstöö vagnanna við Dalbraut er
þannig að mann óar við. Loklaus-
ar ruslatunnur, sem þar eru, ætti
hiklaust að fjarlægja. Ég hef
hringt til hreinsunardeildar
Reykjavikur, en þar virtust menn
ekkert geta gert.
Þaö sér á, að borgarstjórnar-
kosningarnar eru um garð gengn-
ar, þvi að svörin hjá Reykja-
vlkurborg voru á þá leiö, að
manni skildist, að þeim fyndust
svona kerlingar bara vera til
ama.
Flnu mennirnir, sem öllu ráða
hjá bænum, fara auðvitað aldrei
með strætisvagni og hafa þess
vegna ekkert af þessum sóðaskap
að segja. Þeim virðist vera alveg
sama um þetta, nema rétt fyrir
kosningar.
Ég reyni að hafa hreinlegt I
kringum mig og á erfitt með að
þola sóðaskap. Eitt sinn fyrir
mörgum árum bjó ég inni i Vog-
um. Þá var þar mikill og stór-
hættulegur fjóshaugur rétt við
fbúðarhúsin, og ég hringdi I
starfsmenn borgarinnar og bað
þá að fjarlægja hann, en það var
ekki fyrr en ég hótaði að gera
Þjóðviljanum viðvart um málið,
sem eitthvað var gert. En þetta
var nú lika rétt fyrir kosningar.
Núna eru kosningarnar búnar,
svo aö kannski gagnar ekkert aö
kvarta við borgina, en þá finnst
mér að borgarlæknir eða heil-
brigðiseftirlit ætti að taka sig til
og lita á strætisvagnana.
Fullorðin kona, sem notar
strætisvagninn.
UNDRABARNIÐ
Bowmar
MX20
UDDQ
DDD B
BBBB
+ -r - X
Konstant
Keðjureikn
Fl jótandi
komma
Algebratic
Logic
8 stafir
Innbyggð
Hlif yfir
leturborð
3 rafhlöður
ö ÞORHF
■ REYKJAVIK SKÓLAVORÐUSTÍG 25
Bawmar
Koparfittings
EIRROR -
RÖRSKERAR -
FLANGSARAR
Mest selda
raf-reiknivélin
i Ameriku
T5T
ARMULA 7 - SIMI 84450
SOLUM
með djúpum slitmiklum munstrum.
Tökum fulla óbyrgð á sólningunni.
Hjólbarðaviðgerðir.
Vörubílamunstur — Fóklsbilamunstur — Snjómunstur — Jeppamunstur.
IH
ARMULA7V3050I &84844
Kosningaskemmtun
í Festi — Grindavík
laugardagskvöldið 22. júní
Ómar Ragnarsson og Tríóla skemmta
Gunnar Sveinsson flytur dvarp
Kjördæmisráð Reykjaneskjördæmis