Tíminn - 21.06.1974, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Föstudagur 21. jdni 1974
Í0^^J\ \
Guðmundur P. Valgeirsson:
Reikningsdæmi
klofningsmanna
Þeir flokkar og flokksbrot,
sem litla tiltrú hafa meðal
kjósenda, klifa nú á þvi, að
kjósendur verði að athuga og
reikna út, hvernig atkvæði
þeirra „nýtist” I þeim kosn-
ingum, sem framundan eru.
Kjósendum er ætlað að standa
I útreikningum um það, hvar
atkvæði þeirra „nýtist” bezt
þessum litlu, vafasömu hóp-
um til pólitisks framdráttar.
Þessum áróðri er einkum
beint að Framsóknarmönnum
af Alþýðubandalaginu og
Samtökunum (!) • Sagt er, að
þeir (Framsóknarmenn) geti
þetta sér að skaðlausu, þvi
ekki fái þeir uppbótarþing-
menn. Þetta er mjög óheppi-
leg röksemdafærsla og nánast
rökleysa, gerð í þeim tilgangi
einum að rugla heilbrigða
skoðun manna. Framsóknar-
menn um land allt þurfa að
gjalda varhugar við þessum
áróðri. Ef kjósendur ætluðu að
fara inn á þá braut að greiða
ekki atkvæði eftir skoðun sinni
á gildi flokka og frambjóð-
enda, heldur eftir einhverjum
útreikningum á „nýtingu” at-
kvæða I óljósum tilgangi,
þyrfti að stýra þeirri atkvæða-
greiðslu með vafasömum
tölvuútreikningi, gerðum á
flokksskrifstofum i Reykja-
vik.
Jafnframt þessum áróðri
leggja þessir sömu menn rika
áherzlu á, hverja þýðingu
hvert einasta greitt atkvæði
hafi fyrir starf og framgang
sins flokks. Það er rökrétt
hugsað. Þessi rök eru ekki sið-
ur i fullu gildi hvað Fram-
sóknarflokkinn varðar.
Tvistringur á atkvæðum hans
er aðeins vatn á myllu ihalds-
ins.
Menn ættu að geta gert sér
það ljóst, hvort Framsóknar-
flokknum og Ólafi Jóhannes-
syni hefði ekki verið meiri
styrkur að þvi i stjórnarstarfi
sinu, að Framsóknarmenn
heföu haldið fylgi sinu við
flokkinn i siðustu kosningum,
og aukið það, heldur en þvi
tætingsliði, sem flaut inn á
þingið á þessúm forsendum að
nokkru leyti. Afleiðingar þess
glundroða hafa verið að skýr-
ast æ betur siðustu vikurnar
og kom bezt i ljós siðustu daga
þingsins, hver endemisrök-
leysa það var.
A þessum hugsanagangi
flaut Hannibal og félagar hans
inn á þing i siðustu kosning-
um. En enginn gat þó gert sér
fulla grein fyrir þvi, hvort þau
atkvæði, sem þeir fengu þá,
yrðu til að styðja ihaldið til
áframhaldandi setu i stjórn
eða vinstri stjórn, eins og varð
ofan á. — Svo heill sem sá
stuöningur var.
Þaö hefur nú komið á dag-
inn, svo ekki verður um villzt,
að hugur Hannibals stóð þá,
fyrst og fremst, til þess að
ganga til stjórnarsamstarfs
við Sjálfstæöisflokkinn ásamt
Alþýðuflokknum, þótt hann
fengi þvi ekki framgengt, m.a.
vegna kjðsenda sinna á Vest-
fjörðum, sem talið var að
hefðu hótað honum hörðu, ef
hann léti af þvi verða. Siöustu
dagar s.l. þings tóku af þessu
allan vafa, og bert var hvert
hugur hans stefndi og meiri-
hluta þeirra manna, sem
drógust inn á þing i fylgd með
honum. Það víti mætti verða
til varnaðar nú.
Þennan sama leik ætla nú
hinir nýju klofningsmenn úr
Framsóknarflokknum og
Alþýðuflokknum að leika, og
treysta á það eitt, að kjósend-
ur gleypi þá sömu flugu og
notuð var i s.l. kosningum, þvi
málefnalega greinir þá ekki á
við sina gömlu samherja.
Tæplega hafa þessir menn náð
þeirri leikni I klofningsstarf-
semi, sem Hannibal hafði öðl-
azt með langri æfingu i þessu
fagi, og munu þvi ekki hafa
erindi sem erfiði. Munu fáir
harma það.
Kjósendur Framsóknar-
flokksins munu hafa þann
þroska, sem þarf til að sjá við
endurtekningu sllkra bragða,
og lofa þessum mönnum að
sitja utan þings i ró. Þar eru
þeir bezt komnir. Það gæri
oröið þeim þörf og holl lexia og
kennt þeim, að annað og
meira þarf til aö skapa sér álit
og tiltrú en að ástunda skit-
kast aö heiðarlegum mönnum,
að sið pörupilta.
Framsóknarmenn um allt
land geta ekki sýnt ráðherrum
sinum i núverandi rikisstjórn
þakkir sinar fyrir gifturika
forustu þeirra I málefnum
þjóöarinnar með öðru en þvi
að standa óhvikulir að baki
þeirra i þeim kosningum, sem
i hönd fara. Hvert atkvæði,
sem flokknum er greitt i þess-
um kosningum, styrkir að-
stöðu þeirra i áframhaldandi
vinstri stjórn. Þeirra þakka
eru þeir fyllilega verðir. Færi
vel á þvi, að Framsóknar-
menn og aðrir vinstrisinnaðir
menn stuðluðu að þvi með at-
kvæði sinu að ólafur Jó-
hannesson og Einar Agústsson
þyrftu ekki að sllta kröftum
slnum til að sameina jafn
sundurtætt lið til þjóðhollra
áhrifa og starfa og þeir þurftu
að gera á undangengnum
samst jórnarárum.
Undir gengi Framsóknar-
flokksins á þjóðin meira nú en
oft áöur. Kjósendur dreifbýlis-
ins hafa ekkert annað tækifæri
betra til aö sýna hug sinn til
þeirra stefnuhvarfa, sem orð-
iö hafa i málefnum þeirra og
uppbyggingu úti á lands-
byggðinni undir forustu
Framsóknar, en að efla
Framsóknarflokkinn og
tryggja þannig áframhald
þeirrar stefnu.
Guðmundur P. Valgeirsson
Kjósendur eiga að greiða atkvæði eftir skoðun sinni á gildi
flokka og frambjóðenda, en ekki eftir einhverjum útreikningum
ó „nýtingu" atkvæðanna í óljósum tilgangi
Veiðileyfi
LAXVEIÐI — SILUNGSVEIÐI
Skjálfandafljót
Vatnsholtsvötn Snæfellsnesi
Rimhúsaáll undir Eyjafjöllum
Sporwíl
^HEEMMTORGi
Sími 14390
Tvö ný fiskiskip frá
Slippstöðinni á Akureyri
ÞriOjudaginn 18. júnl var tveimur
fiskiskipum hleypt af stokkunum
hjá SlippstöOinni h.f. á Akureyri.
Skipin eru 142 rúmlestir aO stærO
og bera um 150 tonna þunga og
eru 31.15 metrar aö lengd. ViO
sjósetningu hlutu skipin nöfnin
Kópanes, meO einkennisstafina
EA 99, og Seley, sem hlaut
einkennisstafina SU 10.
Bæði skipin eru útbúin til linu-,
neta- og togveiða, en auk þess
getur Seley stundað nótaveiðar.
hamarh.f. á Bildudal,, en eigandi
Lokað á laugardögum
Samkvæmt siðustu kjarasamningum undirritaðra aðila verða verzlanir lokaðar á laugardögum frá og með 22. júni n.k.
Verzlunar- Kaupmannasamtök islands
mannafélag Vinnuveitendasamband íslands
Reykjavikur Vinnumálasamband Samvinnufélaganna Kaupfélag Reykjavikur og nágrennis.
m.b. Seleyjar er Seley h.f. á Éski-
firði. Aðalvélar og ljósavélar
skipanna eru af gerðinni Cater-
pillar. 1 skipunum eru fiskleitar-
tæki af gerðinni Simrad, i Kópa-
nesi eru tvær ratsjár af gerðinni
Sperry og Redifon talstöð, en i
Seley eru tvær Decca ratsjár og
talstöð af gerðinni Sailor.
Auk þess má nefna, að i báðum
skipunum er örbylgjustöð,
miðunarstöð, Loran, og sjálf-
stýring. í þeim báðum eru 12
manna ibúðir, bæði fram i og aft-
ur i. Skipin eru 10. og 11. i rööinni,
sem Slippstöðin h.f. á Akureyri
hefur framleitt á undanförnum
árum, en auk þess er nú þegar
farið að reisa tvö næstu skip, sem
smiöuð eru fyrir aðila i ólafsvik
og i Stykkishólmi.
Mikið annriki hefur verið I
viðgerðadeild fyrirtækisins
undanfarið. Kemur þar m.a. til
viöhald og viðgerðir á hinum nýju
skuttogurum, og kemur stóra
dráttarbrautin sifellt i betri
þarfir. Nú starfa yfir 200 manns
hjá Slippstöðinni h.f. á Akureyri.
(Fréttatilkynni g)
Sveitarstjóri
Hólmavikurhreppur óskar að ráða
sveitarstjóra.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist oddvita
Hólmavikurhrepps, Hólmavik, fyrir 30.
júni n.k.
Hreppsnefnd.