Fréttablaðið - 16.08.2005, Qupperneq 1
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SNÝST Í SUÐAUSTAN STREKKING
Jafnvel gæti orðið allhvasst um landið
vestanvert. Talsverð rigning um allt land,
mest suðaustanlands.
VEÐUR 4
ÞRIÐJUDAGUR
16 ágúst 2005 - 219. tölublað – 5. árgangur
Ekkert stöðvar FH-inga
Íslandsmeistarar FH héldu samfelldri
sigurgöngu sinni í
Landsbankadeildinni
áfram í gærkvöld en þá
burstaði liðið Þrótt
1-5. Á sama tíma
náði Valur aðeins jafntefli á
heimavelli gegn Keflavík og
munar nú 11 stigum á
liðunum þegar aðeins fjórar
umferðir eru eftir.
ÍÞRÓTTIR 24
Íþróttamenn og fatlaðir
eignast hauk í horni
Valdimar Leó Friðriksson tekur sæti
Guðmundar Árna Stefánssonar á
Alþingi í haust. Valdimar er félags-
málatröll og annar vara-
maður Samfylkingarinn-
ar. Hann bjóst ekki við
að komast á þing á
þessu kjörtímabili en
ætlar að beita sér fyrir
málefnum íþróttafólks og
fatlaðra.
TÍMAMÓT 22
Dönsk stemning á
Menningarnótt
Lars Engberg, yfirborgarstjóri Kaup-
mannahafnar, er á leið til
Íslands en hann opnar
sýninguna Menning-
arnótt í Kaupmanna-
höfn sem hefst í
Ráðhúsinu næsta
laugardag.
MENNING 28
Í MIÐJU BLAÐSINS
● heilsa ● brúðkaup
▲
VEÐRIÐ Í DAG
50%
74%
37%
Lestur á
þriðjudögum*
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
Lestur meðal 12–80 ára á þriðjudögum.
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í 2005.júlí
SUÐVESTURHORNIÐ
BAGDAD, AP Írökum mistókst að
semja texta stjórnarskrár sinnar
fyrir 15. ágúst eins og þeir höfðu
einsett sér. Þeir ætla að reyna til
þrautar að ná samkomulagi fyrir
22. ágúst.
Á miðnætti rann út fresturinn til
að semja stjórnarskrá án þess að
sátt næðist um inntak hennar.
Íraksþing kom saman seint í gær-
kvöld, eftir að fundi þess hafði
verið frestað fyrr um daginn, og
ákvað að veita leiðtogum sjía, súnn-
ía og Kúrda vikufrest til viðbótar.
Leiðtogarnir höfðu raunar náð
bráðabirgðasamkomulagi um
nokkur mikilvæg atriði í gær, til
dæmis hvernig tekjum af olíusölu
yrði ráðstafað og hvert nafn
landsins yrði. Eins og margir
höfðu spáð fyrir um tókst hins
vegar ekki að leysa ágreining um
hvort skipta ætti Írak upp í sam-
bandsríki, stöðu kvenna, hlutverk
íslams og hvort Kúrdar ættu að fá
enn meira sjálfstæði. Þeir höfðu
lagt til að Kúrdistan yrði hluti af
Írak næstu átta árin en þá yrði
staða héraðsins endurskoðuð.
Þessu lögðust hins vegar sjíar og
sérstaklega súnníar gegn.
Atburðarás síðustu daga þykir
sýna að öll þjóðarbrotin í Írak vilja
raunverulega ná sem víðtækastri
sátt um stjórnskipun landsins. Hins
vegar sýnir hún jafnframt að enn
ríkir sundrung á meðal þjóðarinnar
um hvernig haga beri stjórn Íraks í
framtíðinni. - shg
Spennir beltin
ÆTLAR EKKI AÐ KASTA PÍLUM Í FÓLK
STJÓRNMÁL Vinstri grænir slitu R-
listasamstarfinu á átakafundi í
gærkvöld og ákváðu að bjóða
fram undir eigin merkjum í
borgarstjórnarkosningunum
næsta vor. Tillaga þessa efnis
var samþykkt með 68 atkvæðum
gegn 28, tvö atkvæði voru auð
eða ógild.
Heitar umræður urðu á fund-
inum og sá fundarstjóri ástæðu
til að biðja menn að sýna kurt-
eisi og gæta virðingar vegna
óheppilegs orðavals eins fundar-
manna í ræðupúlti. Tvær tillög-
ur um dagskrárbreytingu voru
bornar upp. Þegar þrettán fé-
lagsmenn voru enn á mælenda-
skrá var stungið upp á því að
þegar yrði gengið til atkvæða
milli tveggja tillagna um hvern-
ig skyldi staðið að framboðsmál-
um. Það var samþykkt og þegar
gengið til atkvæða.
Stjórn Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs í Reykjavík
lagði fram tillögu um að hafinn
yrði undirbúningur að framboði
í eigin nafni fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar. Annar borg-
arfulltrúa flokksins, Árni Þór
Sigurðsson, lagði áherslu á að
þessi leið yrði farin. „Ég lít svo á
að Reykjavíkurlistinn hafi ekki
verið stofnaður til að vera eilíft
fyrirbæri,“ sagði Árni Þór.
Hinn borgarfulltrúinn, Björk
Vilhelmsdóttir, lagði í máli sínu
áherslu á að með því að slíta R-
listasamstarfinu væru Vinstri
grænir að bjóða frjálshyggjunni
heim sem raunverulegum val-
kosti á móti félagshyggjunni,
hættan væri meiri en nokkru
sinni áður að Sjálfstæðisflokk-
urinn tæki völdin í borginni.
Hún lagði fram tillögu um að
Vinstri grænir tækju þátt í próf-
kjöri með Samfylkingu og Fram-
sóknarflokki fyrir áframhald-
andi framboð Reykjavíkurlist-
ans. Þetta er sama tillaga og
ákveðið hafði verið að leggja
fram á fundum Samfylkingar-
innar og Framsóknarflokksins.
- hb
GEORG ÖGMUNDSSON
Keppir í aflraun-
um erlendis
▲
FÓLK 34
Átakafundur Vinstri grænna
sleit samstarfi um R-listann
Vinstri grænir samflykktu me› yfirgnæfandi meirihluta a› bjó›a fram undir eigin merkjum í næstu
borgarstjórnarkosningum. Borgarfulltrúar flokksins voru hvor á sinni sko›un. Árni fiór Sigur›sson vildi
frambo› í nafni Vinstri grænna en Björk Vilhelmsdóttir vildi halda R-listasamstarfinu áfram.
Íraksþing veitir stjórnmálaleiðtogum sínum lengri frest:
Írökum tókst ekki a› semja um stjórnarskrá
HLAUPIÐ FRAMHJÁ BRENNANDI GIRÐINGU Ungur ísraelskur landtökumaður hleypur hér framhjá girðingu meðfram landnemabyggðinni
Neve Dekalim. Kveikt hafði verið í henni til að halda aftur af Ísraelsher. Margir íbúar landnemabyggðanna neita að hverfa á brott þrátt
fyrir skipun ísraelskra stjórnvalda um að yfirgefa Gaza. Sjá síðu 4
Danskar líftryggingar:
Feitir borga
tvöfalt i›gjald
LÍFTRYGGINGAR Dönsk tryggingar-
félög rukka viðskiptavini sína sem
þjást af offitu um allt að tvöfalt
hærri iðgjöld vegna líftryggingar
en þá sem eiga ekki í vandræðum
með holdafarið að sögn Politiken.
Sykursýki, of hár blóðþrýsting-
ur og hjartasjúkdómar eru meðal
sjúkdóma sem hrjá offitusjúklinga
í meiri mæli en þá sem eru í kjör-
þyngd. Því hafa tryggingarfélög
valið að krefja feita einstaklinga
um allt að tvöfalt hærra iðgjald og
hafa jafnvel gengið svo langt að
meina þeim um líftryggingar. - sda
Lögreglukona á frívakt:
Sneri fljóf ni›ur
LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglukona á
frívakt sneri niður þjóf á veitinga-
staðnum American Style í gær-
kvöld. Þjófurinn reyndi að stela
veski af ófrískri konu en var fljótt
snúinn niður af lögreglukonunni.
Hún hélt honum niðri með annarri
hendi meðan hún kallaði til lögreglu
á vakt sem kom og færði manninn í
fangageymslur.
Talsvert var að gera hjá lögregl-
unni í Reykjavík í gærkvöld. Átta
ára drengur ristarbrotnaði í Reyr-
engi í Grafarvogi þegar hann hljóp
inn í hliðina á bifreið. Tvær níu og
tíu ára stúlkur tilkynntu að maður
hefði girt niður um sig fyrir framan
þær í suðvesturhluta borgarinnar
og hlaupið á brott, lögregla hefur
greinargóða lýsingu á honum. Þá
voru þrjú innbrot kærð: í bíl, her-
bergi og loks íbúð þar sem fartölvu,
stafrænni myndavél og 20 þúsund
krónum í peningum var stolið. - bþg
RÆTT SAMAN Í UPPHAFI FUNDAR Björk
Vilhelmsdóttir og Árni Þór Sigurðsson
ræða hér saman í upphafi fundar.