Fréttablaðið - 16.08.2005, Page 10
16. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
TÆLAND Að minnsta kosti tíu hafa
látist og tuga er enn saknað vegna
mikilla flóða í norðurhluta
Taílands um helgina. Auk þess
hafa um 60 manns leitað sér lækn-
ishjálpar vegna meiðsla af völd-
um flóðanna.
Chiang Mai, stærsta borg norð-
urhluta Taílands, er að hluta undir
eins til tveggja metra djúpu vatni.
AP-fréttastofan hefur eftir for-
sætisráðherra Taílands, Thaksin
Shinawatra, að flóðin séu hin
mestu í fjörutíu ár og að þau hafi
orðið vegna eyðingar mannsins á
skógum. Shinawatra hélt útvarps-
ávarp þar sem hann varaði landa
sína við frekari flóðum.
Flóðin urðu vegna mikils úr-
hellis undanfarna daga, en regn-
tímabilið stendur nú yfir í þessum
heimshluta. Rigningunum hefur
nú slotað.
Flóðin hafa haft áhrif á líf
meira en 200 þúsund íbúa í hérað-
inu. Hús hafa eyðilagst en auk
þess hafa brýr og vegir skemmst.
- sda
ÍSAFJARÐAR
4.799kr.
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
4.999kr.
Verð miðast við
flug aðra leiðina.
Bara á
www.flugfelag.is
Takmarkað
sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
5.699
Milli Reykjavíkur og
kr.
HORNAFJARÐAR
5.899
Milli Reykjavíkur og
kr.
GRÍMSEYJAR
3.499kr.
Milli Akureyrar og
GJÖGURS
4.999kr.
Milli Reykjavíkur og
SAUÐÁRKRÓKS
4.999kr.
Milli Reykjavíkur og
BÍLDUDALS
4.999
Milli Reykjavíkur og
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
4.499
Milli Akureyrar og
kr.
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
92
46
08
/2
00
5
flugfelag.is
4.399kr.
Milli Reykjavíkur og
VESTMANNAEYJA
17. - 23. ágúst
FORSÆTISRÁÐHERRA KANNAR SKEMMDIR
AF VÖLDUM FLÓÐA
Forsætisráðherra Taílands, Thaksin
Shinawatra, annar til vinstri, hefur varað
landa sína við frekari flóðum en flóðin um
helgina voru hin mestu í fjörutíu ár.
Tíu hið minnsta hafa farist í flóðum í Taílandi:
Mestu fló› í fjörutíu ár
B A U G S M Á L I Ð
Tryggvi Jóns-
son, fyrrum að-
stoðarforstjóri
Baugs hf., kem-
ur oftast við
sögu í þeim
kafla ákærunn-
ar gegn for-
svarsmönnum
og endurskoð-
endum Baugs
sem snýr að
fjárdrætti.
Í fyrsta kafla ákærunnar eru
fjórir töluliðir sem snúa aðeins
að fjárdrætti en í öðrum köflum
ákærunnar er einnig ákært fyr-
ir fjárdrátt en með öðrum brot-
um, svo sem umboðssvikum og
brotum gegn lögum um hluta-
félög. Tryggvi kemur við sögu í
þremur af fjórum töluliðum í
fyrsta kafla ákærunnar.
Snekkjan dýrkeypt
Annar töluliður ákærunnar
beinist gegn feðgunum Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni, þáverandi
forstjóra Baugs, og Jóhannesi
Jónssyni í Bónus. Þeim er gefið
að sök að hafa dregið sér fé
þegar þeir létu Baug greiða
þóknanir til Sparisjóðs Reykja-
víkur vegna bankaábyrgðar sem
til hafði verið stofnað vegna
kaupa á snekkjunni Thee Vik-
ing. Í fyrsta töluliðnum var
einnig ákært fyrir fjárdrátt
vegna snekkjunnar en þar var
um hærri fjárhæðir að ræða eða
rúmlega fjörutíu milljónir
króna.
Er feðgunum gert að sök að
hafa látið Baug yfirtaka ábyrgð-
ir sem til hafði verið stofnað af
sameignarfélaginu Bónus hinn
17. júlí 1996. Ábyrgðirnar voru
einkum til komnar vegna lán-
töku bandaríska félagsins Nor-
dica Inc. hjá viðskiptabanka í
Flórida en lánið var upp á hund-
rað þrjátíu og fimm þúsund
Bandaríkjadali og var notað til
að ábyrgjast greiðslur á
skemmtisnekkjunni Icelandic
Viking. Baugur hafði því sam-
kvæmt ákærunni tekið við
ábyrgð Bónuss og gjaldféll
ábyrgðin á Baug 17. október
2002.
Ákærðu neita sök í þessum
tölulið ákærunnar. Þeir segja í
athugasemdum við þessum tölu-
lið ákærunnar að ábyrgðin sem
um ræðir hafi verið notuð til
tryggingar yfirdráttarláni sem
Nordica tók vegna vöruvið-
skipta og hafi Ríkislögreglu-
stjóri gögn um slíkt. Segja
hinir ákærðu fráleitt að ætla
að ábyrgðin hafi verið vegna
kaupa á snekkjunni. Þeir vísa
einnig til þess að ef svo hefði
verið, hefði einnig átt að ákæra
Jón Gerald Sullenberger fyrir
sömu hluti.
Aðstoðarforstjóri og risna
Í þriðja tölulið ákærunnar er
Tryggva Jónssyni, fyrrum að-
stoðarforstjóra Baugs, gefið að
sök að hafa dregið sér rúmlega
eina milljón og þrjú hundruð
þúsund krónur á tímabilinu 11.
janúar 2000 til 12. febrúar 2002.
Er honum gefið að sök að hafa
notað American Express
greiðslukort félagsins Nordica
Inc. sem síðar lét Baug greiða
sér til baka útteknar fjár-
hæðir til þess að
greiða kostnað
sem var Baugi
óviðkom
andi. Er um
að ræða
alls
þ r e t t á n
reikninga
sem Nor-
dica lagði
út fyrir en
i n n h e i m t i
svo hjá Baugi
s a m k v æ m t
fyrirmælum
Tryggva.
Í athuga-
semdum með
þessum tölulið
ákærunnar neitar Tryggvi sök
og segir að um hafi verið að
ræða kostnað sem telst risna að-
stoðarforstjórans. Segir ákærði
að Ríkislögreglustjóra hafi ver-
ið bent á að rannsaka þennan lið
ákærunnar betur og ræða við
vitni sem hafa notið risnunnar
en því hafi ekki verið sinnt. Enn
fremur er bent á að ekki geti
verið um fjárdrátt að ræða þar
sem auðgunarásetning skorti.
Tollar og gjöld aðstoðarforstjóra
Opinber gjöld Tryggva vegna
innflutnings á sláttuvélartrakt-
or til eigin nota voru greidd af
Baugi samkvæmt fjórða tölulið
ákærunnar. Er Tryggva gert að
hafa dregið sér samtals tæplega
eitt hundrað þúsund krónur er
hann lét Baug greiða aðflutn-
ingsgjöld svo sem virðisauka-
skatt, vörugjald og toll af
áðurgreindum sláttuvélartrakt-
or en reikningur vegna vélar-
innar var gefinn út af Nordica í
Bandaríkjunum á Baug-Aðföng
hf., dótturfélag Baugs.
Í athugasemdum Tryggva
vegna fjórða töluliðar ákærunn-
ar segir að mistök starfsmanns
Baugs hafi ráðið því að aðflutn-
ingsgjöldin sem um ræðir hafi
ekki verið innheimt hjá
Tryggva. Segir að
Tryggvi hafi rætt við
viðkomandi starfs-
mann um að honum
yrði gerður reikn-
ingur vegna gjald-
anna og hafi verið í
trú um að svo yrði
gert. Ekki geti
þannig verið um
fjárdrátt að ræða
því allan auðgunará-
setning hafi skort.
hjalmar@frettabladid.is
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
Sagður hafa látið
Baug greiða fyrir
snekkju í Miami.
TRYGGVI JÓNSSON
Fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs
kemur oftast við sögu í fyrsta kafla
ákærunnar sem snýr að fjárdrætti.
Tryggvi lét Baug grei›a
eigin skatta og tolla
Tryggvi Jónsson, fyrrum a›sto›arforstjóri Baugs, kemur oftast vi› sögu í fyrsta
kafla ákærunnar í Baugsmálinu. Hann er me›al annars ákær›ur fyrir a› hafa
láti› Baug grei›a a›flutningsgjöld af innflutningi á varningi til eigin nota.
JÓN GERALD
SULLENBERGER
Sakborningar vilja
að Jón Gerald verði
einnig ákærður.
JÓHANNES JÓNSSON
Sagður hafa dregið
sér fé þegar hann
lét Baug taka yfir
bankaábyrgðir.