Fréttablaðið - 16.08.2005, Síða 21
3ÞRIÐJUDAGUR 16. ágúst 2005
Guggul Plex
inniheldur
guggulsteron,
afar virkt efni
sem lækkar
kólesteról
Rannsóknir hafa leitt í ljós að guggulsteron geti lækkað
kólesteról um 11-12%. Guggul er ekki skyndilausn og þarf
jafnvel nokkra vikna notkun til að sjá árangur. Guggulsterón
virðist ekki aðeins lækka slæma kólesterólið (LDL) heldur
byggja jafnframt upp gott kólesteról (HDH).
Fæst í lyfjabúðum, matvöruverslunum, Heilsuhúsinu
og öðrum heilsuverslunum
100% hreinn fyrir þig
smoothie ávaxtadrykkur
úr pressuðum ávöxtum
arka • Sími 899 2363
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ GINSENG
Aukin
líkamleg orka
og andleg
vellíðan
FÆST Í APÓTEKUM,
HAGKAUP, NETTÓ,
SAMKAUP, SPARKAUP,
NÓATÚNI, ÚRVALI
OG STRAX
,
, ,
, ,
,
STÆRSTA
HEILSUVÖRUVERSLUN
Á LANDSBYGGÐINNI
Póstsendum um land allt
Glerártorg Akureyri S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet/heilsuhorn.is
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Styrkleikaþjálfun
– Ranghugmyndir
Það er mjög algengt að þeir sem
þekkja ekki til líkamsræktar hafi
ranghugmyndir um styrkleikaþjálfun
eða lyftingar. Samt vilja líklega flestir
vera í það minnsta „tónaðir“, þ.e.
með sýnilega aðgreiningu milli mis-
munandi vöðva og vöðvahópa. Ofar-
lega á blaði er til dæmis að rass-,
brjóst, upphandleggs-, kvið- og axla-
vöðvar séu greinilegri. Það er nær
ómögulegt að ná því að verða „tón-
aður“ nema að stunda styrkleika-
þjálfun.
Konur og lyftingar
Eins er mjög algengt að konur haldi
að þær verði eins og rússnesku
kven-kúluvarpararnir (sbr. Olga
Barishnikova) hér áður fyrr af því
einu að horfa á lóð en það er algjör
misskilningur. Ef við stundum lyfting-
ar þá bætum við að sjálfsögðu á
okkur einhverjum vöðvamassa en ef
við gætum ekki að því að brenna
burtu þeirri fitu sem fyrir er á líkam-
anum verður að sjálfsögðu ummáls-
aukning en það er ekki lóðunum að
kenna, miklu frekar vantar að leggja
ríkari áherslu á mataræði og fitu-
brennslu.
Styrkleikaþjálfun er nauðsynleg
Þetta segir okkur að styrkleikaþjálf-
un, á móts við liðleika og úthalds-
þjálfun sem og fitubrennslu, er
ómissandi þáttur í líkamsrækt. Við
verðum í raun að stunda lyftingar
eða aðra styrkleikaþjálfun.
Hvað hentar best?
Reyndar eru til fleiri tegundir styrk-
leikaþjálfunar en lyftingar. Allar
hreyfingar sem gerðar eru gegn við-
námi hafa bein áhrif á líkamann.
Gott dæmi eru fimleikar sem undir-
ritaður stundaði af krafti á yngri
árum og höfðu einna jákvæðust
áhrif á minn skrokk af öllum íþrótt-
um sem ég hef stundað. Það er al-
gjörlega nauðsynlegt fyrir okkur að
leggja rækt við líkamann, þetta vit-
um við. Engu að síður skiptir ekki
minna máli að sú tegund þjálfunar
sem við stundum sé eitthvað sem
okkur finnst verulega skemmtilegt
að gera.
Mismunandi þjálfun hefur
mismunandi áhrif
Það er hægt að sjá fyrir sér í hugan-
um til dæmis kraftlyftingamann og
fimleikamann hlið við hlið. Hvor
vildum við heldur vera? Íþróttamenn
eru nefnilega vaxnir á sama hátt og
íþrótt þeirra krefst að líkaminn starfi,
sem aftur ræður áherslum við þjálf-
un. Bæði svörin geta því átt við og
að sjálfsögðu fer það eftir smekk
okkar, sem er jafn mismunandi og
við erum mörg.
Mikilvæg spurning!
Því er best að spyrja sig, eftir að við
gerum okkur grein fyrir að mismun-
andi íþróttir hafa mismunandi áhrif
á líkamann, hvaða íþrótt hentar mér
best að stunda? Oftast henta þær
íþróttir sem okkur finnast skemmti-
legastar. Þetta er eitthvað sem er al-
gjörlega þess virði að hugsa um og í
raun nauðsynlegt að hugsa um áður
en af stað er haldið...
Gangi þér vel!
ÞETTA OG FLEIRI HOLLRÁÐ ER
EINNIG AÐ FINNA Á VEFSVÆÐI
HEILSURÁÐGJAFAR
WWW.HEILSURADGJOF.IS
Jón Ingi veit ekki hve mikið gagn golfið gerir líkamlega en finnst það nógu skemmtilegt.
Spriklar í golfi á sumrin
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Jón Ingi Hákonarson leikari
mun stjórna íslenska
Bachelornum á Skjá einum í
haust, en stressar sig þó ekki
á því að koma sér í form fyrir
það.
„Ég reyni að vera duglegur í
líkamsræktinni en ég er kannski
ekki alltaf eins duglegur og ég vil
vera. Ég á samt kortið,“ segir Jón
Ingi og hlær.
„Á sumrin er ég mikið í golfinu
og það er mín helsta líkamsrækt.
Ég get spriklað á vellinum fram á
haust en ég veit svo sem ekki hve
mikið gagn það gerir líkamlega
séð en það er nógu skemmtilegt,“
segir Jón Ingi sem stundar enga
skipulagða líkamsrækt. „Nei ég
geri svona hitt og þetta. Ég hleyp
og lyfti þegar ég fer í ræktina og
geri sitt lítið af hverju. Síðan
spila ég innanhúss bumbubolta
með félögunum á veturna. Ég leik
líka á sviði og það er ansi mikil
líkamsrækt. Að leika á sviði jafn-
ast stundum á við nokkra eróbikk-
tíma. Þannig að þetta tínist til og
ég reyni að hreyfa mig eitthvað
þegar ég hef tíma og nenni. Það
helst í hendur.“
„Lestur bóka er mín andlega
leikfimi. Ég er alltaf með ein-
hverjar bækur að lesa,“ segir Jón
Ingi sem mætti þó hugsa meira
um mataræðið. „Ég mætti vera
mun meðvitaðri um mataræði. Ég
er náttúrulega nammigrís og get
verið svolítið góður við mig. Ég
myndi segja að ég væri enginn of-
stopamaður þegar kemur að
heilsurækt. Ég er frekar mikill
meðaljón, sem er mjög gott.“
lilja@frettabladid.is
Sölvi Fannar Viðarsson
Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar.
Hann hefur starfað við einkaþjálfun
og heilsuráðgjöf um árabil.