Fréttablaðið - 16.08.2005, Qupperneq 43
Pete Doherty, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Babyshambles sem
spilar á Iceland Airwaves í haust,
var handtekinn á flugvellinum í
Osló á dögunum fyrir að hafa eit-
urlyf í fórum sér.
Doherty, sem var áður í The
Libertines, var einn af tveimur
sem var handtekinn og þurfti að
dúsa í haldi lögreglunnar í fjórar
klukkustundir. Hinn sem var hand-
tekinn hafði 1,7 kg af kókaíni á sér
en 1,5 kg af heróíni. Báðir fengu
þeir sektir upp á um það bil 80.000
krónur og var síðan sleppt. Þeir
þurfa ekki að fara fyrir dómstóla
því þeir játuðu sekt sína. Engu síð-
ur fara þeir á sakaskrá í Noregi
fyrir athæfið.
Vegna handtökunnar missti
Babyshambles af tónleikum sínum
á stærra sviðinu á Oya-tónlistarhá-
tíðinni fyrir framan 8000 manns.
Þess í stað spilaði hljómsveitin
nokkru síðar á smærra sviði fyrir
framan helmingi færri áhorfend-
ur. Að sögn þeirra sem sáu tónleik-
ana ældi Doherty á sviðið og
kastaði vodkaflösku í áhorfenda-
skarann.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík fær góðan gest í heim-
sókn til sín en íranski leikstjór-
inn Abbas Kiarostami mun
sækja hana heim. Af því tilefni
verður haldin viðhafnarsýning
honum til heiðurs og enn fremur
opnuð ljósmyndasýning en Ki-
arostami er þekktur fyrir lands-
lagsljósmyndir sínar.
Abbas Kiarostami er viður-
kenndur kvikmyndagerðamaður
og breska tímaritið Guardian
valdi hann sjötta besta leikstjór-
ann í sögunni. Martin Scorsese
sagði myndir leikstjórans sam-
einuða það besta í kvikmynda-
gerð en Kiarostami vann gull-
pálmann í Cannes árið 1997 fyrir
kvikmyndina Ta'm e guilass eða
Keimur af kirsuberjum, sem
sýnd var á Íslandi 1998. Þetta er
því feikilegur hvalreki á fjörur
íslenskra kvikmyndaáhuga-
manna. Kvikmyndahátíðin í
Reykjavík hefst 29. september
og stendur til 9.október. ■
Leikarinn Vince Vaughn hefurgreinilega áhyggjur af orðrómi
um að hann og Jennifer
Aniston séu saman því
hann hefur lýst því yfir
að hann sé mikið fyrir
einnar nætur gaman.
„Ég hef aldrei verið
hrifinn af því að fara
heim með sömu stelp-
unni á hverju kvöldi,“
sagði Vince í viðtali við
Imdb.com. Hann segir
að hann myndi aldrei notfæra sér
það að Jennifer sé enn að ná sér
eftir sambandsslit hennar og Brad
Pitt, auk þess sem að hann sé of
önnum kafinn til þess að vera í
langtímasambandi.
Það lítur út fyrir að Paris Hiltonog Nicole Richie verði að sætt-
ast fljótlega því að enn á eftir að
taka upp fjórðu þáttaröðina af The
Simple Life. Þær eiga á hættu að
verða lögsóttar af Fox-sjónvarps-
stöðinni geti þær ekki unnið sam-
an. Hilton stakk upp á því að þær
gerðu brúðkaupsþáttaröð sem sýndi
undirbúninginn að brúðkaupum
hennar og Nicole, og þannig þyrftu
þær aldrei að hittast enda um tvö
aðskilin brúðkaup að ræða. Engin
ákvörðun um þáttinn hefur verið
tekin en framleiðendur bíómynda
sem þær stöllur leika í
eru orðnir
þreyttir á stríð-
inu milli
þeirra, enda
batt Hilton
þannig um
hnútana að
myndirnar
yrðu frum-
sýndar sama
dag og skvetti
þannig olíu á
rifrildiseldinn.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Doherty handtekinn
PETE DOHERTY Forsprakki Babyshambles var handtekinn í Osló á dögunum.
Kiarostami á
lei›inni til Íslands
ABBAS KIAROSTAMI Abbas er einn við-
urkenndasti leikstjóri veraldar og koma
hans því hvalreki á fjörur kvikmyndaáhuga-
manna hér á landi.