Fréttablaðið - 16.08.2005, Síða 46
34 16. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Össur Skarphéðinsson alþingis-maður setti Greenland Open
2005 skákmótið í Tasiilaq á laugar-
dag. Össur er félagi númer 125 í
Hróknum og með vaskari liðsmön-
um félagsins. Hann ávarpaði sam-
komuna á menntaskóladönskunni
sinni en þetta var í fyrsta sinn sem
hann hélt ræðu opinberlega á
dönsku. Það verður að segjast að
Samfylkingarformanninum fyrrver-
andi fórst verkið vel úr hendi en í
ræðu sinni hvatti hann grænlensk
ungmenni til dáða við
skákborðið. Mótið í ár er
tileinkað minnningu Har-
aldar Blöndal en hann
var einn af stofnfélögum
Hróksins. Össur minntist
Haraldar í ræðunni og
sagði hann hafa
verið í hópi
röskustu
manna sem
dregið hafa
skákvagninn á Íslandi. Össur keppti
einnig á mótinu og lýsti því yfir í lok
ræðu sinnar að hann stefndi að því
að mæta stórmeistaranum Henrik
Danielsen, sterkasta manni móts-
ins, á fyrsta borði og tefla til sigurs.
Kristín Jónasdóttir, formaðurBarnaheilla, lék svo fyrsta leikinn
á mótinu, kóngspeði fram um einn
reit, og þar með var þriðja alþjóð-
lega skákmót Hróksins á Grænlandi
hafið. Össuri Skarphéðinssyni varð
ekki að ósk sinni um að mæta
Danielsen, þrátt fyrir ágætt gengi á
mótinu, en svo skemmtilega vildi til
að hann dróst á móti Birtu, dóttur
sinni, í fyrstu umferð og stúlkan
gerði sér lítið fyrir og mát-
aði pabba gamla. Össur
hafði áður reynt að knýja
fram jafntefli, án árang-
urs, og þurfti því að lok-
um að lúta í gras.
Fréttablaðið birti í gær vangaveltur umhvaða ljónheppni maður komi til
með að hljóta titilinn íslenski pipar-
sveinninn í þáttum sem sýndir verða á
Skjá einum í vetur. Nöfn Björgólfs
Takefusa, Sindra Sindrasonar, Viktors
Blæs Birgissonar og Sölva Snæ Magn-
ússonar voru nefnd sem tillögur Frétta-
blaðsins. Þessir efnilegu menn voru ein-
göngu valdir af handahófi enda vita þeir
sem fylgst hafa með erlendu fyrirmynd-
inni að þáttunum að ekki verður ljóst
hver fer með hlutverk piparsveinsins
fyrr en þættirnir hefjast í september.
LÁRÉTT 2 listastefna 6 löng og lág hæð 8
efni 9 gagn 11 númer 12 .....maður 14
vansæmd 16 stefna 17 stúlka 18 fát 20
þys 21 fimur.
LÓÐRÉTT 1 ljá 3 bardagi 4 ballerína 5
drulla 7 lengst í suður 10 hald 13 hjör 15
drykkur 16 upphrópun 19 hef leyfi.
LAUSN.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
121.
Ásgeir Friðgeirsson.
Í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.
Páll Óskar Hjálmtýsson, sem
verður einn fjögurra dómara í
Idol-Stjörnuleit sem hefst í
þriðja sinn í haust, er byrjaður að
spenna beltin fyrir keppnina.
Hann segist lítið hafa horft á
sjónvarp undanfarin fjögur ár,
eða eftir að hann stóð sjálfan sig
að því að fylgjast með skjáleikn-
um klukkan hálfsjö einn morgun-
inn. „Þá sleit ég loftnetið úr sam-
bandi og mér finnst ég ekki vera
að missa af neinu,“ segir Páll
Óskar. „Ég fer í heimsókn til þess
að sjá Eurovision og hef verið
plataður í Idol-partí líka, sérstak-
lega þegar nær dregur úrslitum.
Annars hef ég lítið fylgst með
Idolinu og ég þarf að fara að
kíkja á gamlar myndbandsspólur
af íslenska idolinu og sjá hvernig
forkeppnin gengur fyrir sig.“
Páll hefur heyrt að fyrstu
dagarnir séu hvað erfiðastir
fyrir dómarana. „Eina heilræðið
sem ég hef fengið er að vera vel
sofinn fyrstu dagana. Það borgar
sig ekki að vera pirraður fyrir
framan keppendur.“
Hann segist ekki ætla að vera
nein sérstök týpa þegar hann
sest í dómarasætið. „Ég ætla
bara að vera ég sjálf, eins og
Birgitta Haukdal orðar það. Ég
ætla að forðast eins og heitan
eldinn að vera eitthvað „nastí.“
Ég ætla ekki að kasta pílum í
fólk, ég hef ekki efni á því,“ seg-
ir hann og bætir við: „Ég er ekki
besti söngvari í heimi sjálfur og
alls ekki sá fullkomnasti. Ég trúi
á að það sé hægt að segja slæm-
ar fréttir með réttu lýsingarorð-
unum. Ef ég get leiðbeint fólki
áfram skal ég svo sannarlega
reyna það en ef þátturinn geng-
ur út á að kasta skít í fólk sem er
að opna munninn í fyrsta sinn
fyrir framan sjónvarpið og
drullupirraða dómnefnd, þá
erum við ekkert lengra komin
frá ljónagryfjunni í Róm. Mig
langar ekki að taka þátt í því. En
það er allt í lagi þegar líður á
þáttinn og þegar úrslitin nálgast
að gera kröfur og berja í borðið
ef krakkarnir fara ekki eftir ráð-
leggingum.“
Skráningu í Idol-keppnina lauk
á miðnætti í gær. Fyrir helgi
höfðu yfir eitt þúsund ungmenni
skráð sig til keppninnar. Að sögn
Pálma Guðmundssonar, markaðs-
stjóra 365-ljósvakamiðla, stefnir í
að þátttakan í ár verði meiri en í
fyrra. Þá skráðu 1400 ungmenni
sig til leiks, sem lauk með sigri
Hildar Völu.
„Þetta verður stærsta keppnin
sem við höfum haldið. Við leggj-
um meira í þetta en áður og
keppnin verður mun glæsilegri,“
segir Pálmi. Fyrsta áheyrnarpróf-
ið hefst á Hótel Loftleiðum í
Reykjavík 27. ágúst og þá er um
að gera fyrir Pál Óskar og félaga
að vera vel sofinn og klár í slag-
inn. freyr@frettabladid.is
SKRÁNINGU Í IDOL LOKIÐ: PÁLL ÓSKAR SPENNIR BELTIN
Ætlar ekki að kasta pílum
...fær Sigrún Árnadóttir fyrir að
hafa staðið sig frábærlega sem
framkvæmdastjóri Rauða kross
Íslands í tólf ár en hún hefur nú
sagt starfinu lausu og ætlar að
setjast á skólabekk.
HRÓSIÐ
Sjálfsmorð ungs fólks eru líklega
hvergi fleiri en á Grænlandi. Töl-
urnar sem ég hef heyrt hér eru
sláandi en á þriggja mánaða tíma-
bili í fyrra styttu níu ungmenni í
Tasiilaq sér aldur. Þegar ég
reyndi að ræða þessi mál við
starfsfólk barnaskólans í fyrra
var fátt um svör. „Við tölum ekki
um þetta. Viljum það ekki,“ sagði
fullorðna fólkið og þar við sat. Af-
staðan virðist þó hafa breyst til
hins betra eftir þessa skelfilegu
þriggja mánaða hrinu og öflugu
forvarnarstarfi hefur verið
hleypt af stokkunum. Forvarnar-
starfið beinist fyrst og fremst að
sjálfsmorðunum en aukinn kraft-
ur hefur einnig verið settur í
áfengisforvarnir en eins og alþjóð
veit er áfengisvandinn á Græn-
landi yfirgengilegur. Það er fátt í
fari litlu krakkanna í Tasiilaq sem
bendir til þess að fjöldi þeirra
muni kjósa dauðann á unglingsár-
unum. Gleðin skín úr hverju and-
liti og það ber ekki á öðru en að
lífið sé leikur í þessu náttúru-
tengda og frumstæða samfélagi.
Það þarf þó ekki að grafa djúpt til
að finna skýringar. Hér er félags-
lega meðvitað fólk sem fullyrðir
að um helmingur allra barna í
Tasiilaq sé misnotaður kynferðis-
lega og sifjaspell sé nánast al-
mennt. Ástandið er svo ömurlegt
að það þykir bót í máli að skömm-
in sem við vitum að nagar fórnar-
lömb slíks ofbeldis er minni hér
vegna þess að svo mörg börn séu
saman á þessum hræðilega báti.
Barnaheimilið hér er opið um
helgar og ungabörn eru oft vistuð
þar frá föstudegi til mánudags til
þess að hlífa þeim við drykkjunni
og ofbeldinu á heimafyrir. Ung-
lingarnir sem ég hef rætt við í
bænum eiga allir þann draum
heitastan að komast burt sem
fyrst. Burt frá alkóhólismanum
og fábreytileikanum. Stelpurnar
fullorðnast hratt og eru upptekn-
ar af því að vera sætar. Strákarn-
ir tala digurbarkalega; hafa erft
hörkuna frá feðrum sínum en
dreymir um að knattspyrnukunn-
átta verði þeirra farmiði burt.
Fyrirheitnu löndin eru
til dæmis Danmörk,
Færeyjar og Ísland
en tækifærin eru fá
og flóttaleiðirnar
þröngar. Mig lang-
aði til þess að taka
þau öll með
mér heim.
REISUBÓKARBROT
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ER Á SKÁKHÁTÍÐ HRÓKSINS Á GRÆNLANDI.
Sorgleg örlög kátra krakka
DÓMNEFNDIN Páll Óskar ásamt Bubba, Siggu Beinteins og Einari Bárðarsyni, hinum meðlimum dómnefndarinnar. Fyrstu áheyrnarpruf-
urnar verða 27. ágúst á Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
FRÉTTIR AF FÓLKI
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Sem er? Fjölmiðlamiðstöð frá Sage TV. Það
er ekki laust við að það fari gleðihrollur um
líkamann. Þetta tæki á eftir að létta okkur
sjónvarpsfíklunum lífið því nú þurfum við
ekki að standa upp. Getum setið fyrir framan
imbakassann, daginn út og inn. Fjölmiðla-
miðstöðin er útbúinn því allra nýjasta á
markaðinum og er ekki með Windows heldur
Linux sem gerir hana
mun ódýrari.
Hvernig virkar það?
Fjölmiðlamiðstöðin er
með harðan disk þannig
að hægt er að taka upp
sjónvarpsþætti í tonna-
vís. Þá er hægt að
stöðva útsendingu þegar
þú þarft að skreppa á
klósettið því tækið tekur
upp á meðan. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur
af því að missa af einu eða neinu. Þá er dvd,
mp3, cd, karókí-spilarar sem gerir Media
Center að sannkölluðu draumatæki. Græjur,
myndbandstæki og dvd-spilarinn hverfa. Þá
verður hægt að tengjast heimilistölvunni
með þráðlausu neti og fara á internetið.
Hvar fæst það? Tækið er enn í vinnslu en er
væntanlegt á markað á næstunni. Ekki er
ljóst hvenær svona draumatæki kemur á
markað hérlendis en hægt er að nálgast allar
upplýsingar sagetv.com
Hvað kostar það Þar sem WWB'S Media
READY 5000 Advanced Media Center er rétt
ókomið hefur ekkert verð verið sett
upp.Framleiðendurnir lofa því þó að það
verði á viðráðanlegu verði.
DÓTAKASSINN
Tæki fyrir fjölmi›lafíkilinn
WWB'S MEDIA READY 5000 ADVANCED MEDIA CENTER
LÁRÉTT2Dada,6Ás,8Tau, 9Nyt, 11
Nr, 12Aðals,14Skömm,16Út,17Mey,
18Fum, 20Ys, 21Frár.
LÓÐRÉTT1 Lána, 3At,4Dansmey, 5
Aur, 7Syðstur, 10Tak, 13Löm,15Mysa,
16Úff, 19Má.