Fréttablaðið - 18.11.2006, Blaðsíða 26
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á net-
fangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Skilnaður er eins og
aflimun: maður lifir það af
en það er minna eftir.
Fjöldamorð í Jonestown
Al-Anon samtökin voru stofnuð á
Íslandi 18. nóvember 1972 og fagna
því 34 ára afmæli sínu í dag. Af því til-
efni boða samtökin til afmælis- og
kynningarfundar í Háteigskirkju
klukkan 20.30 í kvöld. Þar munu tveir
Al-Anon félagar, einn Al-Ateen félagi
og einn AA-félagi deila reynslusögum
sínum með fundargestum.
Al-Anon er félagsskapur ættingja og
vina alkóhólista og er sprottinn upp úr
AA-samtökunum. Félagar í Al-Anon telja
að alkóhólismi sé fjölskyldusjúkdómur
og að breytt viðhorf geti stuðlað að bata
og samtökin hafa aðeins einn tilgang, að
hjálpa aðstandendum alkóhólista.
Félagar í AA-samtökunum og Al-
Anon eiga það sameiginlegt að sam-
hæfa reynslu sína, styrk og vonir til
þess að hjálpa hver öðrum og því eru
reglulegir fundir þungamiðja starfs
hópanna þar sem fólk getur komið
saman og deilt sögum sínum.
Nafnleyndar er gætt í Al-Anon og
staðinn er vörður um nafnleynd allra
félaga og ekkert félagatal er haldið.
Al-Anon er andlegur félagsskapur
en ekki trúarlegur en allir eru vel-
komnir hvort sem þeir tilheyra ein-
hverjum trúarhópi eða ekki. Engra
félagsgjalda er krafist af félögum og
kostnaði er mætt með frjálsum fram-
lögum félaganna á fundum.
Frekari fróðleik um samtökin má
nálgast á heimasíðu þeirra www.al-
anon.is.
Afmælisfundur hjá Al-AnonLegsteinarKynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Vigdís Ferdinandsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi 15. nóvember sl.
Ragnar Ragnarsson Bryndís Ósk Erlingsdóttir
Harvey Georgsson
Róbert Magni Ragnarsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Þóreyjar Kristínar
Guðmundsdóttir (Dódu )
hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ.
Sveinn Haukur Björnsson Elín M. Sigurðardóttir
Hugi Ingibjartsson
Björn Valdimar Sveinsson
Margrét Birna Sveinsdóttir
Linda Kristín Sveinsdóttir
Jón Guðni Ómarsson
Kristófer Snær Hugason
Ísak Tandri Hugason
og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts
Eyjólfs Valgeirssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistmanna á
Hrafnistu í Reykjavík.
Hildur Eyjólfsdóttir
Úlfar Eyjólfsson Oddný S. Þórðardóttir
Petrína S. Eyjólfsdóttir
Fríða Eyjólfsdóttir Árni E. Bjarkason
Valgeir A. Eyjólfsson Kolbrún Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Já, það er ótrúlegt að litli 17 ára tán-
ingurinn sé orðinn svona stór. Ætli
þetta þýði ekki að ég sé að eldast líka,“
segir Svava Johansen, forstjóri Sautj-
án-veldisins, eða Northern Trading
Company eins og það kallast í dag. Fyr-
irtækið stendur á tímamótum í ár en
það fyllir 30 ár um þessar mundir.
Svava keypti fyrirtækið af Bolla Krist-
inssyni árið 2004 en þau ráku fyrirtæk-
ið saman þangað til.
Fyrsta Sautján-verslunin var opnuð
á Laugaveginum árið 1976 af Bolla og
síðan þá hefur fyrirtækið blómstrað og
dafnað hratt. Svava kom inn í fyrir-
tækið fimm árum seinna. Í dag eru
verslanirnar orðnar 15 talsins og segir
Svava að hún sé hvergi hætt. „Við
erum alltaf að huga að nýjum búðum,
búin að opna tvær á þessu ári og mun
ein enn líta dagsins ljós á næsta ári.“
NTC hf. hefur verið leiðandi í tísku-
bransanum hér á landi frá byrjun og er
óhætt að segja að umsvif keðjunnar
fari vaxandi með árunum.
Húsnæðið á Laugaveginum er flagg-
skip tískuveldisins en þar eru allar
skrifstofur fyrirtækisins ásamt því að
nú eru þar fjórar búðir undir sama
þaki, Gs-skór, Eva, Gallerí 17 og Centr-
um. „Við erum nýbúin að gera endur-
bætur á húsinu og erum að færa það
nær því útliti sem við sjáum erlendis,
þar sem verslunarmiðstöð fer saman
við afþreyingarstað. Verslun á að vera
skemmtun og afþreying,“ segir Svava.
Þegar Svava er spurð hvað standi
upp úr í langri sögu verslunarinnar
nefnir hún tvímælalaust opnun Sautj-
án í Kringlunni árið 1989. „Það var
algjör bylting að vera komin með stór-
an rekstur í fyrsta stóra verslunarhúsi
landsins og við gerðumst svo djörf að
vera með tvöfalt bil þar, en auðvitað
sjáum við ekki eftir því í dag,“ segir
Svava hlæjandi en Gallerí 17 í
Kringlunni er með stærri búðum keðj-
unnar.
Í tilefni af afmælinu verður lifandi
stemning við verslunina á Laugavegin-
um, sem núna gengur undir nafninu
Galleri Laugavegur, í dag milli 14 og
18. Tónlist, léttar veitingar og 20 pró-
senta afsláttur á völdum vörum.