Tíminn - 14.02.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 14. febrúar 1989
Þriðjudagur 14. febrúar 1989
Tíminn 11
Samvinnuskólinn
Bifröst
Undirbúningsnám á Bifröst
Frumgreinadeild Samvinnuskólans
veitir undirbúning fyrir rekstrar-
fræðanám á háskólastigi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám áframhaldsskólastigi
án tillits til námsbrautar t.d. í iðn-, vél-, verkmennta-,
fjölbrauta-, mennta-, fiskvinnslu-, búnaðar-, sjómanna-
eða verslunarskóla o.s.frv.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar,
enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði, félagsmálafræði
og samvinnumál.
Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð raunhæf verk-
efni auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl.
Námstími: Einn vetur frá september til maí.
Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheimili,
félagsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði
ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv.
Barnagæsla á staðnum.
Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla
áætluð um 27.000,- kr á mánuði fyrir einstakling næsta
vetur.
Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra Sam-
vinnuskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónuupp-
lýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti
skírteina og upplýsingar um fyrri störf.
Ekki sérstök umsóknareyðublöð.
Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir
umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20 ára
og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Námið
hentar jafnt konum sem körlum.
Allt að 20 umsækjendur hljóta skólavist í Frumgreina-
deild. Umsóknir verða afgreidar 25. apríl og síðan eftir
því sem skólarými leyfir.
Miðað er m.a. við reglur um námslán.
Samvinnuskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi,
sími 93-50000
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur, óskar eftir tilboðum í steyptar hlífðarhellur fyrir jarðstrengi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 21. febrúar
1989, kl. 15.00. Athugið leiðrétt auglýsing.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Áfram Forum
Landssamband framsóknarkvenna og kvenfélagasamband íslands
halda sameiginlegan fund um störf kvenna í dreifbýli að Hallveigar-
stöðum 16. febr. n.k. kl. 20.
Fundur þessi er einn í fundaröð með efni frá Nordisk Forum s.l. sumar.
Dagskrá:
1. Myndband frá Nordisk Forum.
2. Bjarney Bjarnadóttir rifjar upp efni frá LFK á Forum.
3. Ulla Magnusson flytur erindi sem nefnist: Konur hver er markaður-
inn fyrir okkur?
4. LitskyggnurfráKÍ umkonurogsmáfyrirtækisemsýntvaráForum.
Kaffiveitingar.
Allir velkomnur og konur sem fóru til Noregs með LFK sérstaklega
hvattar til að mæta með gesti.
Stjórn LFK
Borgnesingar nærsveitir
Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 17.
febrúar kl.20.30.
Framsóknarfélag Borgarness.
lllll- ÍÞRÓTTIR
iÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan:
Einvígi Arsenal og
Norwich framundan
Arsenal og Norwich, tvö efstu
liðin í 1. deild ensku knattspyrnunn-
ar, unnu bæði leiki sína um helgina
og eru nú langefst í deildinni. Allt
útlit er fyrir einvígi þessara liða um
Englandsmeistaratitilinn, en lið
Manchester United, sem vann sinn
sjötta leik í röð um helgina, gæti sett
strik í reikninginn. United er nú
komið í 3. sætið, en er 8 og 11 stigum
á eftir toppliðunum.
Eins og sjónvarpsáhorfendur
fengu að sjá um helgina þá vann
Arsenal 2-1 sigur á Millwall á útivelli
í frekar leiðinlcgum leik. Jimmy
Carter kom Millwall yfir á 16. mín.
Það var ekki en á 70. mín. að
Arsenal náði að jafna er Brian
Marwood skoraði. Markakóngurinn
Alan Smith gerði síðan sigurmark
leiksins á 80. mín.
Robert Fleck var hetja Norwich
um helgina. Hann gerði sigurmarkið
gegn Derby County á 52. mín.
Newcastle þokaði sér upp úr botn-
sætinu með því að leggja Coventry
að velli á Highfield Road 1-2. John
Henrie og Mirandinha gerðu mörk
Newcastle og þeir sáu einnig um að
skora fyrir Coventry, því Daninn
Frank Pingel gerði sjálfsmark í síðari
hálfleik.
Manchester United vann sinn
sjötti sigur í röð í deildinni er liðið
mætti Shcffield Wednesday. Brian
McClair gerði bæði mörk liðsins, eitt
í hvorum hálfleik, í 2-0 sigri liðsins.
John Fashanu gerði sigurmark
Wimbledon gegn Aston Villa rétt
fyrir leikhlé. Allt gengur á afturfót-
unum hjá Aston Villa þessa dagana.
Jafntefli varð í öðrum leikjum í 1.
deild.
Úrslití l.deild:
Coventry-Newcastle........
Millwall-Arsenal..........
Norwich-Derby.............
Nottingham Forest-QPR ....
Sheff.Wed.-Manchester Utd..
Southampton-Everton.......
Tottenham-Charlton........
Wimbledon-Aston Villa.....
1-2
1-2
1-0
0-0
0-2
1-1
1-1
1-0
Úrslit í 2. deild:
Birmingham-Bournemouth .. 0-1
Bradford-Plymouth.......... 1-1
Brighton-Leicester......... 1-1
Chelsea-Swindon............ 3-1
Crystal Palace-Blackburn .. 2-2
Hull-Shrewsbury............ 3-0
Manchester City-lpswich ... 4-0
Oxford-Portsmouth.......... 1-0
Stoke-Oldham............... 0-0
Handknattleikur:
Brotlending hjá Saab
Frá Ásgeiri Heiiari Pálssyni iþróttafrétta-
manni i Sviþjói:
Það var leikur kattarins að mús-
inni, þegar Cliff og Saab mættust í
„Alsænskan" í handknattleik á
sunnudagskvöldið. Lokatöiur leiks-
ins urðu 28-19 Cliff í vil, en 8 mörk
skildu liðin í hálfleik.
Ronnie Carlsson markvörðurCliff
átti allan heiðurinn að sigrinum. en
hann lokaði markinu strax á fyrstu
mínútunum. Þorbergur Aðalsteins-
son var markahæsti leikmaður Saab,
en hann skoraði 5 mörk. Þorbergur
fær mikið hrós í sænsku morgun-
blöðunum, er jafnvel skrifað að
hann sé einn besti leikmaðurinn í
sænskum handknattleik í dag.
Eftir leikinn er Saab í fjórða
neðsta sæti með 10 stig, tveimur
stigum ntcira en Koppskultur sem er
í þriðja neðsta sætinu.
Til gamans má geta þess að sumir
í Svíþjóð segja nú að brotlending
Saab liðsins í leiknum hafi veriö
táknræn. Orystuþota af gerðinni
JAS frá Saab verksmiðjunum brot-
lenti nýlega, en Saab liðið auglýsir
einmitt þotuna á búningum sínunt.
Gunnar Gunnarsson og félagar í
IFK Málmö léku gegn Katrineholm
á útivelli. Katrineholm sigraði í
leiknum, sem var æsispennandi, með
22 mörkum gegn 21. Gunnar átti
ágætan leik og gerði 4 mörk. Staða
Málmö er vægast sagt léleg, en liðið
er í næst neðsta sæti með 7 stig en á
einn leik til góða á Kroppskultur.
ÁHP/BL
Fresta varð
stjörnuleiknum
Stjörnuleiknum í körfuknattleik
sem vera átti í Keflavík á sunnudags-
kvöld var frestað vegna veðurs.
Rcynt verður að hafa leikinn eftir 2
vikur, eða sunnudaginn 25. febrúar.
Sauðkrækingarnir Valur ingi-
mundarson og Eyjólfur Sverrisson,
ásamt Haraldi Leifssyni sem keppa
átti í troðkeppninni, komust ekki
suður og veðurútlit á Suðurnesjum
var það slæmt á sunnudaginn að
ákveðið var að fresta leiknum. Það
var kannski eins gott, því skömmu
eftir að leiknum var frestað fór
rafmagnið af Suðurnesjum.
„Það stefnir í algjört óefni hjá
okkur út af öllum þessum frestunum.
Veðrið er aldrei verra en á sunnu-
dögum, þegar flestir kappleikirnir
eiga að fara fram.“ sagði Kolbeinn
Pálsson formaður Körfuknattleiks-
sambands íslands í gær. BL
Sunderland-Walsall ....... 0-3
Watford-Leeds ............ 1-1
WBA-Bamsley............... 1-1
Úrslit í 3. deild:
Bolton-Swansea.............. 1-0
Brentford-Chester........... 0-1
Bristol City-Gillingham.... 1-0
Cardiff-Sheffield Utd....... 0-0
Chesterfield-Notts County .. 3-0
Huddersfield-Port Vale..... 0-0
Mansfield-Southend......... 4-0
Northampton-Blackpool .... 4-2
Preston-Bristol Rovers..... 1-1
Reading-Bury................ 1-1
Wigan-Aldershot............. 2-1
Wolves-Fulham............... 5-2
Úrslit í 4. deild:
Cambridge-Hartlepool ..... 6-0
Colchester-Burnley ........ 2-2
Darlington-Leyton Orient ... 1-3
Hereford-Lincoln........... 3-2
Rocdale-Grimsby............ 0-2
Rotherham-Carlisle ........ 2-1
Scunthorpe-Exeter.......... 2-0
Stockport-Crewe ........... 0-1
Torquay-Scarfoorough ...... 0-1
Tranmere-Halifax........... 2-0
Wrexham-Doncaster.......... 1-1
York-Peterborough.......... 5-1
Staðan í 1. deild:
Arsenal.......... 23 15 5 3 60-24 60
Norwich.......... 24 13 8 3 36-25 47
Man. United...... 24 10 9 5 34-19 39
Nott. Forest..... 24 9 11 4 34-26 38
Coventry......... 24 10 7 7 33-25 37
Liverpool........ 23 9 9 5 30-20 36
Millwall......... 23 10 6 7 35-30 36
Derby............ 23 10 5 8 26-18 35
Everton.......... 23 8 8 7 28-25 32
Wimbledon........ 23 9 5 9 27-30 32
Middlesbrough .... 23 8 6 9 30-35 30
Aston Villa...... 24 7 8 9 33-37 29
Tottenham ....... 24 6 9 9 34-36 27
Southampton ...... 4 6 9 9 36-46 27
Luton............ 23 6 8 9 26-29 26
QPR.............. 24 6 7 11 24-24 25
Charlton ........ 24 5 9 10 26-35 24
Sheff. Wed....... 23 5 8 10 18-33 23
Newcastle........ 24 5 6 13 21-43 21
WestHam.......... 23 4 5 14 20-41 17
Staðan í 2. deild:
Chelsea .. . 28 15 3 4 59-29 54
Man. City . . . 28 15 8 5 43-24 53
Watford , . . 28 14 6 8 42-29 48
Blackburn . . 28 14 6 8 46-40 48
W. Bromwich . . . ... 28 12 10 6 46-27 46
Bournemouth . . . . . 28 13 4 11 31-32 43
Crystal Palace . . .. 27 11 9 7 43-35 42
Barnsley . . 28 11 9 8 39-37 42
Leeds . . 28 10 11 7 34-26 41
Stoke . . 28 11 8 9 34-44 41
Sunderland . . 28 10 10 8 36-32 40
Ipswich . . 28 12 4 12 42-39 40
Portsmouth . . 28 10 8 10 37-35 38
Hull . . 28 10 8 10 39-39 38
Swindon , .. 27 9 10 8 38-35 37
Plymouth . . 28 10 7 11 36-40 37
Leicester . . 28 9 10 9 34-38 37
Oxford . . 28 9 6 13 42-43 33
Bradford . . 28 7 11 10 28-34 32
Brighton .. 28 8 6 14 39-46 30
Oldham . . 28 6 10 12 42-46 28
Shrewsbury .. . . .. 28 4 11 13 22-43 23
Birmingham . . . . . . 28 4 7 17 19-51 19
Walsall . . 28 3 8 17 24-51 17
Teitur Örlygsson átti stórleik með Njarðvíkurliðinu um
helgina, en liðið er komið í undanúrslit bikarkeppninnar.
Hér er hann ásamt bróður sínum Sturlu sem einnig er
kominn í undanúrslitin með ÍR-liðinu sem hann þjálfar.
Körfuknattleikur:
ÍR í undanúrslit
ÍR-ingar voru ckki í neinum vandfæðum með að
tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar í
körfuknattlcik á laugardaginn þegar liðið lék gcgn
Breiðabliki. Þessum síðari leik liðanna lauk með
107-47 sigri ÍR-inga, sem unnu fyrri leikinn á
þriðjudag í síðustu viku 119-65.
Samtals unnu ÍR-ingar því 226-112. Leikurinn á
laugardag var eiustefna allan tímann eins og töiurnar
gefa til kynna. í hálflcik var staðan 60-24 og í síðari
hálfleik varð engin brcyting á. Björn Steffensen átti
stórleik með ÍR og skoraði 38 stig. Björn hitti mjög
vel í leiknum og sýndi skemmtileg tilþrif á köflum.
Ein karfan sem Björn skoraði var sannkölluð
sirkuskarfa. Björn fékk knöttinn í loftinu og blakaði
honum aftur fyrir sig í körfuna eins og hann hefði
æft slík skot í lengri tíma. Jón Öm Guðmundsson
átti einnig góðan leik hjá ÍR. Ásgeir Hallgrímsson
skoraði mest fyrir Breiðblik 12 stig, en Ölafur
Adolfsson gerði 10 stig.
ÍR-ingar eru nú komnir í undanúrslit bikarkcppn-
innar í körfuknattleik þriðja árið í röð. BL
Tindastóll og
KR á fimmtudag
Leik Tindastóls og KR i 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar í körfuknattleik, sem vcra átti á
Sauðásrkróki á laugardag, var frestaö vegna ól'ærð-
ar. Leikurinn hefur verið settur á að nýju á
flmmtudagskvöld kl. 20.00.
Dregið verður i 4-liða úrslitunum fljótlega, jafnvel
á morgun, að sögn KKÍ-manna. BL
JAFNAR TOLUR • 0DDAT0LUR • HAPPAT0LUR
Þetta eru tölurnar sem upp komu 11. febrúar.
Heildarvinningsupphæð var kr. 5.558.318,-
1. vinningur var kr. 2.559.202,- Einn var með fimm tölur réttar.
Bónusvinningur (fjórar tölur + bónustala) var kr. 444.368,- skiptist á 2 vinningshafa
og fær hver þeirra kr. 222.184,-
Fjórar tölur réttar, kr. 766.458,-, skiptast á 147 vinningshafa, kr. 5.214,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.788.290,- skiptast á 4.330 vinningshafa, kr. 413,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15
mínútum fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
o
1
2
5
Körfuknattleikur:
Hörkuspennandi bikarleikur
UMFN sigraði Hauka 101-80 ■
8-liða úrslitum bikarkcppninnar í
körfuknattlcik í Njarðvík á laugar-
dag. Haukar sigruðu ■ fyrri leik
liðanna 90-80 og eru UMFN því
komnir í 4-liða úrslitin ásamt b-liði
félagsins, ÍR og annaðhvort Tinda-
stól eða KR.
Leikurinn var hraður og spenn-
andi frá fyrstu mínútu til loka. Fyrri
hálfleikur var jafn framan af og
skiptust liðin á að hafa forystu.
Teitur Örlygsson var hreint óstöðv-
andi í þeim hálfleik og skoraði 29
stig, þar af 5 þriggja stiga körfur,
ásamt því að taka mikið af sóknar-
fráköstum og spila uppá samherja.
Um miðjan hálfleikinn fóru Njarð-
víkingar að pressa Haukana og gekk
það upp, sér í lagi eftir að Haukar
urðu fyrir því áfalli á 16. mín. fyrri
hálfleiks að missa Henning Henn-
ingsson, einn af þeirra bestu
mönnum, út af meiddan. Henning
meiddist á ökkla og óvíst er hvort
hann leiki meira með liðinu í vetur.
Njarðvíkingar breyttu jafnri stöðu í
13stiga forystu þeim í hag í háfleik.
í síðari hálfleik náðu Njarðvíking-
ar 20 stiga forystu, 72-52, og virtust
öryggir áfram, en Haukamenn voru
ekki á því að gefast upp og minnk-
uðu muninn í 10 stig 81-71 og 83-73.
Þá kom góður kafli hjá Njarðvíking-
um og skoruðu þeir 14 stig gegn
tveimur stigum Hauka. Þeir náðu 24
Hvalrengi 515kr.kg
Bringukollar 295 -
Hrútspungar 590 _
Lundabaggar 570 -
Sviðasulta súr 695 _
Sviðasulta ný 821 _
Pressuð svið 720 -
Svínasulta 379 -
Eistnavefjur 490 -
Hákarl 1.590 -
Hangilæri soðið 1.555 -
Hangifrp.soð. 1.155 -
Úrb. hangilæri 965 -
Úrb. hangifrp. 721
Harðfiskur 2.194 _
Flatkökur 43 kr.
Rófustappa 130 kr.kg
Sviðakjammar 420 -
Marineruð síld 45flakið
Reykt síld 45kr.stk.
Hverabrauð 78 kr.
Seytt rúgbrauð 41 _
Lifrarpylsa 507 kr.kg
Blóðmör 427 _
Blandaður súrmatur
í fötu 389 -
Smjör15gr. 6.70 kr.stk.
'• V
KjÖfcstöðÍR
Glæsibæ
ö 68 5168.
stiga forystu og sigruðu eins og áður
segir 101-80.
Teitur Örlygsson átti stórleik sér í
lagi í fyrri hálfeik. Helgi Rafnsson
tók 30 fráköst í leiknum og geri aðrir
betur. Helgi skoraði 15 stig frá
miðjum síðari hálfleik til loka leiks-
ins. Annars stóð liðið sig vel og
barðist vel.
Hjá Haukum vakti ungur og stór-
efnilegur strákur, Jón Arnar Ingv-
arsson, athygli sér í lagi í fyrri
hálfleik. Henning var góður meðan
hans naut við. Pálmar var drjúgur að
venju og skoraði 5 þriggja stiga
körfur, Njarðvíkingar voru oft með
2 menn á honum og þá losnaði um
hina.
Dómarar voru Gunnar Valgeirs-
son og William Jones.
Stigin; UMFN: Teitur 39, Helgi
15, Kristinn 11. ísak 11, Hreiðar 10,
Friðrik Rúnars. 9, Friðrik Ragnars,
4 og Alexander Ragnarsson 2.
Haukar: Pálmar 19, Jón Arnar 16,
Tryggvi 16, Henning 11, ívar 8,
Ingimar 6 og Reynir 4. MS/BL
Vetur í Portúgal
Ferðaskrifstofurnar EVRÓPUFERDIR, RATVÍSog FERÐAVAL
bjóða ykkur upp á 4, 6, 8 og 10 vikna ferðir til Portúgal í vetur.
Hægt er að velja um gistingu á Madeira, í Aigarve eða
á Lissabon-ströndinni. Verð frá kr. 53.200,-
Einnig standa ykkur til boða styttri ferðir (3-30 dagar) með gistingu
í íbúðum eða 3 til 5 stjörnu hótelum víðsvegar um
Portúgal. Þið getið heimsótt heimsborgirnar Lissabon og
London í einni ferð, spókað ykkur á strönd Algarve eða leikið
golf á einhverjum bestu golfvöllum Evrópu.
Þeim sem vilja hvílast og slappa af í fögru umhverfi býöst úrval
af gististöðum á hinni margrómuðu eyju Madeira.
Golfhótel við 7 úrvals golfvelli í Algarve.
Vallargjöld á sérstaklega lágu verði.
SUMARBÆKLINGURINN ER KOMINN ~
evrópuferðir {rams FERmmvAL hf
KLAPPARSTÍG 25-27 -- TRAVEL AGENCY N3JJ7
1 upp í
10 vikur
Lissabon
Algarve
Madeira
Golfferðir
101 REYKJAVÍK,
SÍMI628181.
Tmvel
HAMRAB0RG1-3,200 KÓPAV0GUR
SÍMI641522
HAFNARSTRÆTM8.
101 REYKJAVÍK, SÍMI 14480.
I
I
Skil á staðgreiðslufé:
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
'a9< ^ f'
t cka' '<'na L tiV4$s\°ös
...
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15, hvers mán-
aðar.
Ekki skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru greidd né
hvort þau eru greidd fyrirfram eða
eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tímanlega