Tíminn - 14.02.1989, Page 12
12 Tíminn,
Þriðjudagur 14. febrúar 1989
KABÚL - Hundruð fjöl-
skyldna ( Kabúl fengu mat frá
starfsmönnum Sameinuðu
þjóðanna á sama tíma og síð-
ustu hermenn Sovétmanna
yfirgáfu boraina. Nú er talið að
einungis hattsettir yfirmenn í
sovéska hernum séu þar eftir,
en þeir verða að vera horfnir á
brott á morgun.
NIKOSÍA - Ali Khameini
sagði að afganskir skæruliðar
ættu að ganga endanlega frá
samkomulagi því sem leiðtog-
ar mujahideen gerðu í Iran í
síðustu viku til að geta stofnað
bráðabirgðaríkisstjórn og ein-
beitt sér að stjórnarhernum.
JERÚSALEM - Varnar-
málaráðherra Israels, Vitzhak
Rabin, fordæmdi mannrétt-
indaskýrslu Bandaríkjastjórnar
þar sem ísraelar eru sakaðir
um alvarleg mannréttindabrot
á hernumdu svæðunum. Ra-
bin sakaði bandarísk stjórn-
völd um að horfa framhjá of-
beldisverkum Palestínu-
manna.
DAMASKUS - Sendi-
nefndir Sýrlendinga og Evr-
ópubandalagsins stóðu saman
að því að krefjast brotthvarfs ,
ísraelskra hermanna frá öllum ■
hernumdum svæðum.
COSTA DEL SOL - For-
setar fimm Mið-Ameríkuríkja
hittust til að ræða leiðir til að
koma á friði og auka lýðræði í
þessum heimshluta, en mikill
skortur er á hvoru tveggja.
JÓHANNESARBORG- '
Mannréttindaleiðtoginn Allan
Boesk hóf hungurverkfall til að
styðja þá 300 pólitísku fanga
sem nú eru í hungurverkfalli til '
að knýja á að mál þeirra verði .
,tekin fyrir í dómi.
PEKING - Kínverska þjóðin
Sæti þurft að standa frammi
rrir hættuleari ógnun ef ekki 1
verður tekið allsnarlega á
mengunarmálum.
MANCHESTER, New
Hampshire - Bush forseti
Bandaríkjanna hóf baráttuna
fyrir stuðningi við fjárlagafrum-
varp sitt og sagði að það væri
mjög raunhæft og væri til þess
fallio að draga úr fjárlagahalla
í framtíðinni.
NIKOSÍA - (ranar ætla að
hengja 70 eiturlyfjasmyglara í
dag og er þao mesti fjöldi
eiturlyfjasmyglara sem þeir
senda í gálgann í einum frá
því þeir hófu baráttu gegn
eiturlyfjasmyglurum fyrir
nokkrum vikum.
ÚTLÖND
Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýskalands:
Útrýming skamm-
drægra kjarna-
flauga möguleg
Helmut Kohl kanslari Vetur-
Þýskalands sem brá fæti fyrir NATO
á sínum tíma með því að krefjast
frestunar á endurnýjun skamm-
drægra kjarnaflauga sagði í gær að
hægt væri að útrýma þess háttar
flaugum algerlega ef árangur næst í
afvopnunarviðræðum austurs og ’
vesturs.
Þessi yfirlýsing Kohls var birt rétt
fyrir fund hans með James Baker
hinum nýja utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Baker er nú á för
um höfuðborgir fimmtán ríkja
NATO og var hann hér á íslandi á
sunnudagskvöld. Baker staðfesti
það í gær að hann sé meðal annars
að kanna afstöðu kollega sinna hjá
NATO til endurnyjunar svokallaðra
Lance skammdrægra kjarnaflauga.
Bandaríkjamenn hafa lýst því yfir
að þeir telji bráða nauðsyn á því að
endurnýja skammdrægar kjarna-
flaugar í vopnabúri sínu, en Kohl er
því ekki sammála og er talið að Kohl
vilji með yfirlýsingum sínum nú
hvetja Varsjárbandalagsríkin til
samninga um útrýmingu skamm-
drægra kjarnaflauga í Evrópu.
Flestar skammdrægar kjarna-
flaugar NATO eru staðsettar í Vest-
ur-Þýskalandi enda er andstaða gegn
þeim mjög hörð þar í landi.
Karel De Gucht þing-
maður á Evrópuþinginu:
Fjölmiðlafólki
verði tryggð
vernd í stríði
Fjölmiðlafólk ætti að hljóta
sérstaka vernd líkt og starfsmenn
Rauða krossins til að forða því að
blaðamönnum verði rænt og þeir
beittir harðræði eins og oft hefur
viljað brenna við víðs vegar um
heiminn. Þetta er skoðun Karels
De Gucht, þingmanns á Evrópu-
þinginu, en hann situr nú ráð-
stefnu í Brussel sem fjallar um
fjölmiðla og hjálparstarfsmenn á
hættusvæðum.
- Fréttamenn eru oftarogoftar
notaðir sem vopn í pólitísku of-
beldi og þeir eru algerlega
óverndaðir, sagði De Gucht í
gær.
De Gucht vill að Evrópuþingið
lýsi yfir stuðningi við þá hugmynd
að sett verði alþjóðleg lög sem
tryggja friðhelgi og hlutleysi fjöl-
miðlamanna á stríðssvæðum líkt
og nú er með starfsmenn Rauða
krossins.
Sem dæmi um fréttamann sem
orðið hefur fórnarlamb stríðandi
fylkinga er Frakkinn Jean-Paul
Kaufman sem var í haldi hjá
skæruliðum Hizbollah samtak-
anna í Líbanon í þrjú ár, en
honum var sleppt í maímánuði í
fyrra. Hann skýrði ráðstefnugest-
um frá því að öflugur fréttaflutn-
ingur af gíslum sé besta leiðin til
að fá gísla þá sem í haldi eru í
Líbanon frjálsa.
Kólumbía:
SHEVARDNADZE TIL
MID-AUSTURLANDA
Eduard Shevardnadze utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna mun halda
til Mið-Austurlanda og ríkja við
botn Persaflóa síðar í þessum mán-
uði. Shevardnadze mun ræða
vandamál sem einkenna þennan
heimshluta og leitast við að styrkja
tengslin við ríkin á þessum slóðum.
Talsmaður sovéska utanríkisráðu-
neytisins skýrði frá þessu í gær.
Shevardnadze mun fyrst heim-
sækja Sýrlendinga, en síðan mun
hann halda til Jórdaníu, Egypta-
lands, íraks og írans. Þá mun hann
hugsanlega hitta Yasser Arafat að
máli í þessari för.
Shevardnadze mun ræða við
leiðtoga þessara ríkja um alþjóð-
lega ráðstefnu í málefnum Mið-
Austurlanda, friðarsamninga írana
og íraka og stöðuna í Afganistan,
ef marka má orð talsmannsins.
Tímasetning þessarar farar kem-
ur ekki á óvart, því hún kemur
strax í kjölfar þess að sovéski
herinn hefur yfirgefið Afganistan.
Innrás Sovétmanna í Afganistan
hefur alla tíð sett strik í reikninginn
í samskiptum þeirra við ríki mús-
lima í Mið-Austurlöndum við
Persaflóann. Nú er þeirri hindrun
rutt úr vegi og forsendur fyrir
bættum samskiptum við ríkin á
þessum slóðum.
Sérstaka athygli vekur að She-
vardnadze mun hitta Hussein kon-
ung Jórdanfu að máli, en talið er
að með því sé Hussein að flétta
bætt samskipti við Sovétmenn og
tengslin við Bandaríkin saman til
að ná sterkari stöðu innan araba-
heimsins. Jórdanar hafa átt mikil
og góð samskipti við Bandaríkja-
menn í gegnum tíðina, en lítil við
Sovétríkin.
Algengasta dánar-
orsökin er morð!
Algengasta dánarorsök karl-
manna í Kólumbíu er morð. Þetta
kemur fram í skýrslu mannréttinda-
nefnd Sameinuðu þjóðanna um
ástand mála í þessu guðsvolaða landi
þar sem eiturlyfjabarónar ráða ríkj-
um á stórum landsvæðum.
Helsta vígi eiturlyfjabarónanna er
Medellin, næst stærsta borg landsins.
Þar eru framin morð á þriggja tíma
fresti að meðaltali.
Skýrsla mannréttindanefndarinn-
ar er yfirleitt á diplómatamáli og oft
fjallað um raunverulegt ástand undir
rós. En því er ekki að skipta í
skýrslunni um mannréttindi í Kól-
umbíu, því þar eru hinar hrikalegu
staðreyndir miskunnarlaust dregnar
fram í dagsljósið.
Skæruliðar, dauðasveitir hægri
manna, eiturlyfjasmyglarar, venju-
legir glæpamenn og sérsveitir stjórn-
arhersins eru taldar bera ábyrgð á 11
þúsund morðum árið 1987. Alls búa
28 milljónir manna í landinu.
Pakistönsk stjórnvöld vísa ásökunum
sovéskra fjölmiðla á bug:
„Engir Pak-
istanar í liði
skæruliða“
Stjórnvöld í Pakistan hafa vísað á'
bug ásökunum Najibullah forseta
Afganistans og sovéskra fjölmiðla
um að Pakistanar hafi sent þúsundir
hermanna inn í Afganistan til að
aðstoða afganska skæruliða í átök-
um við afganska stjórnarherinn.
Ríkisstjórnin segir fréttir Sovét-
manna vera algerlega úr lausu lofti
gripnar og þær séu ætlaðar til þess
að koma fleyg á milli Pakistana og
skæruliða Mujahideen í Afganistan.
Najibullah sakaði Pakistana um
að hafa safnað miklu herliði að
landamærum Pakistans og Afganist-
ans og að í undirbúningi væri innrás
í Afganistan eftir að sovéskt herlið
hefði yfirgefið landið.
Sovéska fréttastofan Tass fylgdi
þessum ásökunum Najibullah eftir
með því að skýra frá því að pakist-
anskir hermenn hefðu dulbúið sig
sem afganskir skæruliðar væru og
liðsinntu Mujahideen í baráttunni
gegn afganska stjórnarhernum.
Einnig hélt fréttastofan því fram að svæði til að styðja við bakið á
pakistanski herinn héldi uppi stór- skæruliðum í umsátrinu um borgina
skotaliðsárásum á afganskt lands- Jalalabad í suðurhluta Afganistans.