Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 13
sama tímabili í fyrra. Arðsemi eig- infjár eftir skatta án gengishagnað- ar á ársgrundvelli var 32%. Endurfjármögnun ársins lokið Heildareignir samstæðu Glitnis námu 1.836 milljörðum króna í lok marsmánaðar og höfðu þá aukist um 25% frá áramótum. Þar af námu lán til annarra en lánastofnana 1.328 milljörðum króna og höfðu aukist um 23%. Í tilkynningu frá bankanum segir að vöxturinn end- urspegli að hluta til gengislækkun íslensku krónunnar. Ef frá séu talin áhrif þeirrar lækkunar sé vöxturinn 11%. Um helmingur útlánavaxtar er í Noregi. Fram kemur í tilkynningunni að alþjóðleg fjármögnun móðurfélags- ins hafi numið um 1,4 milljörðum evra, jafngildi um 120 milljarða ís- lenskra króna, samanborið við 780 milljónir evra, jafngildi um 67 millj- HAGNAÐUR Glitnis á fyrsta fjórð- ungi þessa árs nam 9,1 milljarði króna eftir skatta. Þetta er þrefalt meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra og mesti hagnaður bankans á einum ársfjórðungi frá upphafi. Hagnaðurinn var meiri en greining- ardeildir hinna viðskiptabankanna höfðu spáð. Hagnaður Glitnis fyrir skatta nam 11,2 milljörðum, en um 60% hans varð til vegna starfsemi bank- ans í útlöndum, eða um 6,6 millj- arðar. Fjárfestinga- og alþjóðasvið bankans skilaði methagnaði eða 3,3 milljörðum og starfsemi bankans í Noregi skilaði einum milljarði í hagnað. Gengishagnaður í Noregi nam 2,3 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur Glitnis juk- ust um 73% milli ára og voru um 7,8 milljarðar króna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þóknanatekjur ríflega þrefölduðust, voru 5,6 milljarðar á tímabilinu. Kostnaður sem hlutfall af tekjum var 34% á tímabilinu sam- anborið við 53% í fyrra. Arðsemi eigin fjár eftir skatta á ársgrundvelli var 42% en var 22% á arða króna, á sama tímabili árið áð- ur. Þá segir að endurfjármögnunar- þörf alls ársins 2006 hafi verið 600 milljónir evra og sé henni því lokið. Eigið fé Glitnis jókst um 31% á fyrsta fjórðungi þessa árs og nam 111 milljörðum króna í lok tímabils- ins. Eiginfjárhlutfall á CAD-grunni var 12,1%. Í viðtali hjá Bloomberg Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segist afar ánægður með þann árangur sem náðst hafi á tímabilinu. „Þessar niðurstöður sýna glöggt þær breytingar sem hafa orðið á starfsemi bankans. Er- lend starfsemi skilar nú meira en helmingi af hagnaði í fyrsta skipti. Þróun starfseminnar í Noregi gengur vel og samstarf mismun- andi sviða leiðir til aukinna tekna bankans í heild,“ segir Bjarni en hann var í viðtali í gær á sjónvarps- stöð Bloomberg. Þar ræddi hann m.a. um afkomu Glitnis, stöðu ís- lensks efnahagslífs og vaxtahækk- anir Seðlabankans. Taldi Bjarni að búast mætti við því að Seðlabank- inn myndi herða peningamála- stefnu sína enn frekar á næstunni vegna aukinnar verðbólgu hér á landi. 60% hagnaðar Glitnis af erlendri starfsemi Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is almennt. Þannig erum við með 470 milljarða í innlán frá viðskiptavinum, en það er 135 milljarða aukning á tímabilinu sem er óvenju mikið,“ segir Sigurjón. Heildareignir bankans námu 1.770 milljörðum króna á fjórðungnum og hafa aukist um 26% frá því í fyrra þegar þær námu 1.405 milljörðum. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar samkvæmt CAD reglum var 13% samanborið við 14,4% á fyrsta árs- fjórðungi 2005, en að teknu tilliti til áhrifa af sölu 20% eignarhlut bankans í Carnegie reiknast CAD hlutfallið 14,6%. Hefur eiginfjárhlutfallið aldrei ver- ið hærra og er markmið bankans að arðsemi eigin fjár verði 15–17% eftir skatta á árinu, að því er kem- ur fram í árshlutareikningunum. Einingar samþættar Eftir mikinn vöxt undanfarinna ára, segir Halldór J. Kristjánsson bankastjóri, að á árinu 2006 muni bankinn einbeita sér að því að samþætta þær ein- ingar sem keyptar hafa verið að undanförnu. „Þannig munum við nýta þann grunn sem við höf- um, en mikil tekjumyndun erlendis eins og kemur fram í uppgjörinu, sýnir hve traustur sá grunnur er. Það verður í forgrunni í okkar stefnumótun og fram- kvæmdum á árinu að halda áfram að styrkja sam- starfið, samþætta starfsemina og vinna að áfram- haldandi styrkingu á innviðum bankans og innri vexti á þessu ári, eins og eðlilegt er þegar bankinn hefur farið í gegnum mörg ár mikils vaxtar,“ segir Halldór. HAGNAÐUR Landsbankans fyrir skatta var 17,3 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 2006 samanborið við 7,4 milljarða króna á sama tímabili 2005. Hagnaður eftir skatta nam 14,3 milljörðum sem er 135% aukn- ing frá sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn var 6.045 milljónir króna. Arðsemi eigin fjár eftir skatta er 63% miðað við 81,7% á fyrsta ársfjórðungi 2005. Grunnafkoma bankans fyrir var 7,4 milljarðar króna samanborið við 2,7 milljarða króna á sama tímabili fyrir ári. Grunnarðsemi eigin fjár var 30% fyrir skatta. Hreinar vaxtatekjur bankans voru 8.934 milljónir króna sem er aukning upp á 108% frá fyrra ári. Hreinar þjónustutekjur námu um 6,8 milljörðum króna og jukust um 108% milli ára. Erlendar rekstrartekjur aukast Hreinar rekstrartekjur utan Íslands námu 13,3 milljörðum króna miðað við 1,9 milljarða króna fyrir ári, en tekjur af erlendri starfsemi nema nú 49% af heildartekjum samstæðunnar samanborið við 15% á fyrsta ársfjórðungi 2005. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir að innlánaaukning Landsbankans, sem að miklu leyti er vegna starfseminnar erlendis, sé 40% á árinu. „Innlán jukust talsvert hraðar en bankinn Methagnaður hjá Landsbanka Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                !  "# #                             !   " #$%&  '(   ' #    &  $ &  ) * &# &  )!#&   ( &+$ & , &+  -   -  '  &  .  / 0 1 '21$ &  3       &   '    0 , &+   4  &+  4  02 &   5 &+    672  89'   &  8  :;## &#  0 !0 &  < && !0 &       '  + =;2 2 0    .1 > # .0 &+    !"  #$  5?=@ .A0  0  0             /  / /   / / /  ; &# 1 ; 0  0 /  /   /   /  /  /  / / / /  /  /  /  / /  / / / /  / / / / / / / B /CD B /  CD B / CD B CD B /CD B /CD B /CD / B / CD / B /CD B / CD B / CD B /CD B /CD B / CD / / / B / CD / B /  CD / / / / / 4 +  0  + # & : $0 A  + #E )  .                            /  /  /  /  / /                                              < 0  A *%  :4 F  #&   '2!+ 0             /  /  /  /  / /  ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF lækkuðu talsvert í verði í viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,54% og var skráð 5.433 stig. Við- skipti með hlutabréf námu 6,6 millj- örðum króna, þar af 1,35 milljörðum með bréf Straums-Burðaráss. Að- eins bréf Bakkavarar hækkuðu, um 0,2%. Bréf KB banka lækkuðu um 4,5%, bréf FL Group um 4,1% og Landsbanka um 3,5%. Lækkun er einkum skýrð með mikilli sölu stærri fjárfesta sem séu að innleysa geng- ishagnað af bréfum sínum Hlutabréf lækka ● SÆNSKA viðskiptatímaritið Veckans Affärer mælir með kaup- um í ferðaskrifstofunni Ticket, en eignarhaldsfélagið Fons á tæp 30% í félaginu. Segir blaðið að út- lit sé fyrir að tekjur félagsins vaxi á árinu 2006 og að breytingar á innri starfsemi þess séu líklegar til efla það enn frekar. Helsti áhættuþátturinn í rekstri ferða- skrifstofunnar, að mati blaðsins, eru náttúruhamfarir eða hryðju- verk. „En við teljum að það sé þess virði að taka áhættuna. Það hefur oft sýnt sig að það borgar sig að fylgja Íslendingunum,“ er skrifað Mælt með Ticket ● DANSKA þróunar- og fjárfesting- arfélagið Keops, sem Baugur Group á tæplega 30% hlut í, hefur verið kært til lögreglu af einum við- skiptavina sinna, að því er fram kem- ur í danska dagblaðinu Børsen í gær. Er það eignarhaldsfélagið Bornholm- invest sem hefur kært Keops og fjár- málaumsýslu þeirra. Rannsókn- arlögreglan í Kaupmannahöfn hefur staðfest að kæra hafi borist, en vildi ekki tjá sig frekar um málið við Bør- sen. Keops kært til lögreglu ● BRESKA verslunarkeðjan House of Fraser hækkaði um 6,3% í Kaup- höllinni í London í gær, og er ástæðan hækkunarinnar sögð vera orðrómur um að Baugur hyggist yf- irtaka fyrirtækið. Baugur keypti 9,5% hlut í félaginu í apríl og hefur orðrómurinn farið stigvaxandi síðan þá og eru breskir fjölmiðlar nú sannfærðir um að Baugur hafi gert tilboð í félagið. Heildarvirði House of Fraser er talið vera um 400 millj- ónir punda. Breska pressan hefur gert því skóna að tilboð Baugs sé gert í samstarfi við skoska fjárfestinn Tom Hunter, en í samtali við dag- blaðið Times í gær neitar Hunter að svo sé. Þá eru líkur leiddar að því Baugur muni á næstu dögum leita eftir samstarfsaðilum við tilboðs- gerðina. House of Fraser hækkar ● SYSTURBLAÐ Fréttablaðsins í Danmörku, Nyhedsavisen, hyggst hefja göngu sína á netinu, að því er Svenn Dam, nýráðinn forstjóri 365 Media Scandinavia, dótt- urfélags Dagsbrúnar, segir á net- miðlinum ComOn. „Auk þess að stefna að því að verða stærsta dagblaðaútgáfa í Danmörku, stefnum við einnig að því að verða stærsti fréttavefurinn,“ segir Svenn Dam. Nyhedsavisen á netið PRÓFUNUM á hjartalyfinu DG031 miðar vel hjá erfðatæknifyrirtækinu deCODE, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, að því er kom fram í máli Kára Stefáns- sonar, forstjóra fyrirtækisins, á símafundi í gær. „Þróun nýrra lyfja gegn breiðum hópi alvarlegra sjúkdóma gengur vel hjá okkur og ég geri ráð fyrir því að næstu vikur og mánuðir verði spennandi fyrir vöxt okkar sem líftæknifyrirtækis,“ sagði Kári. Meðal lyfja sem verið er að þróa eru þrjú hjarta- og slagæðalyf, verkjalyf og astmalyf, auk þess sem að uppgötvanir hafa verið gerðar á erfðaþáttum tengdum sykursýki 2. „Ég trúi því að ársfjórðungsupp- gjör okkar sýni fram á forskot fyr- irtækisins á sviði erfðatækni, að geta þróað lyf gegn alvarlegum sjúkdóm- um og gert það á hagkvæman hátt,“ sagði Kári. Sagt var frá því Morgunblaðinu í gær að tap deCODE genetics á fyrstu þremur mánuðum ársins nam um 1.500 milljónum króna. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að aukið tap megi einkum skýra með hærri kostn- aði við lyfjarannsóknir og -þróun. Prófunum á nýjum lyfjum miðar vel Kári Stefánsson DÓTTURFÉLAG Icelandic Group í Evrópu, Pickenpack, hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra til starfa, dr. Norbert Engberg. Við ráðningu hans tekur til starfa þriggja manna framkvæmdastjórn hjá Pickenpack. Engberg verður framkvæmda- stjóri sölu- og stjórnunarsviðs og Wolfgang Kohls er framkvæmda- stjóri framleiðslu, en hann hefur unnið hjá Pickenpack síðan í ágúst 1997. Finnbogi A. Baldvinsson leiðir framkvæmdastjórnina, en koma dr. Engberg gerir honum kleift að draga sig út úr daglegum störfum hjá Pickenpack og einbeita sér enn frekar að framkvæmdastjórn Ice- landic Europe, segir í tilkynningu til Kauphallar. Framkvæmdastjóri Appel Feinkost Engberg hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá heristo AG í Bad Rothenfeld frá því í ársbyrjun 2004. Áður var hann framkvæmdastjóri Richter & Greif og Norda-Lysell árin 2001– 2002. Hann sá um yfirtöku heristo á fyrirtækjunum og tók svo við sem framkvæmdastjóri Appel Feinkost. Engberg er með mastersgráðu í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Hamborg. Nýr framkvæmda- stjóri hjá Pickenpack 6 + G .H8   C C ':.= "I    C C ?? J-I     C C J-I )!& 6      C C 5?=I "K L&    C C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.