Andvari

Árgangur

Andvari - 01.04.1962, Síða 33

Andvari - 01.04.1962, Síða 33
ANDVARI LÁTTU gamminn geisa 31 orðstír hans meðal hinna róttækari í hópi þeirra. Þeir sáu, að hann óttaðist ekki að standa einn, þótt móti blési. Ólafur Davíðsson þjóðsagnasafnari kom til Hafnar þetta sumar nýbakaður stúdent og skrifaði föður sínum skömmu eftir komuna þangað: „Mér finnst Hannes Hafsteinn vera fyrir íslenzkum stúdentum hér að flestu leyti. Það er langt frá því, að hann sé drambsamari en góðu hófi gegnir. Nokkuð er hæft í flaggsögunni. Flaggið, sem var rifið niður, var ekki þjóðflagg Dana, heldur konungsflaggið, við erum ekki konunghollir ungu mennirnir — og ís- lendingar unnu að nokkru leyti frægan sigur. Tveir íslendingar stóðust atlögu 10—20 danskra stúdenta."1 1 2) Þetta haust var Hannes í kjöri til hringjaraembættis á Garði, studdur af hinum frjálslyndari og róttækari stúdent- um í hópi Dana, og að líkum fylktu Is- lendingar sér urn hann. Keppinautur hans um þessa virðingarstöðu var Christ- ian Riis læknanemi. Þetta varð ein sögulegasta kosning í sögu Garðs, og er henni helgað meira rúm í Kirkjubók en nokkurri annarri. Segir þar, að aðalslag- orð stuðningsmanna Hannesar hafi verið „kamp over den ganske linje“ og „frisk luft“. Það er að segja, að barizt skyldi fyrir nýrri og frjálslyndari stefnu á öll- um sviðum og með öllum ráðum. Hins vegar lýsti Riis yfir því, að hann væri frjálslyndur, að því er tæki til landsmála í Danmörku, en íhaldssamur, hvað snerti afstöðu til fornra venja og siða á Garði. Framboðsfundur var haldinn 12. okt. Flutti Idannes mjög rómaða ræðu og varði löngu máli til að ræða flagga- deiluna og sverja af sér niðurrif fánans. Segir svo af því í Kirkjubók: „I et længere foredrag udviklede Haf- steinn, hvorledes beretningen orn hans delagtighed i de nævnte optrin verse- rede i en overordentlig overdrevet og forvrænget skikkelse; hvorledes „Flag- nedrivningen" indskrænkede sig til kun at have resultat tilfælles med det virke- lig foregáede: Flagets nedsvæven fra en h0jere til cn lavere region, fremkaldt ved en tilfældig kollission mellem flaget og ham eller en anden; hvorlcdes hans optræden ved normannsgildet var stik imod hans danskvenlige sympatier og kun fremkaldt ved irritation og hán fra de danskes side, dengang han slog til lyd pá sit bæger for at desavouere en landsmands foregáende for de danske, særlig i nordmændenes páh0r, krænkende ytringer; han beklagede dels at have ladet sig henrive til de ud- talelser, han virkelig havde fremf0rt og dels, at disse af de danske var blevet for- tolket som langt rnere st0dende end de i realiteten var. Talen blev modtaget med meget bi- fald, der kulminerede, da kandidaten erklærede, at overskriften over hans even- tuelle klokkerprogram skulle være: frisk luft."1) Fundinum lauk með prófkjöri fundar- manna, og hafði Hannes þá mikinn meiri hluta. Tveimur dögum síðar fór svo hið eiginlega kjör fram, og vann þá Riis kosninguna með tveggja atkvæða mun. I grein sinni um stúdentsár Hannesar kennir Einar Hjörleifsson því um, að „fáeinir Islendingar létu sig vanta.“") Líklegt má telja, að sú fjarvera íslend- inga, sem Einar harmar, hafi átt rætur að rekja til þess, að um þetta leyti stóð Idannes einnig í stríðum flokkadráttum meðal Islendinga í Idöfn. Eiríkur Jóns- 1) Regensens Arkiv: Regensens Kirkebog 1879 —1887. 2) Eimreiðin 1932, bls. 23. 1) Ég læt allt fjúka, bls. 97.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.