Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.04.1962, Qupperneq 36

Andvari - 01.04.1962, Qupperneq 36
34 SVEINN SKORRI IIÖSKULDSSON ANDVARI VIII Þótt stundum slægi í brýnu með Hafnarstúdentum á þessum árum, kunnu þeir eigi síður að njóta gleði saman. Um þessar mundir var starfandi íslenzkt stúd- entafélag í Höfn. Meðal þeirrar dægra- breytni, er það stóð fyrir, var sérstök skógarför íslendinga. Vorið 1883 var Bertel Þorleifsson formaður félagsins og stóð fyrir förinni. í Konunglegu bók- hlöðunni í Kaupmannahöfn er varðveitt dagbókarbrot Ólafs Davíðssonar, sem hefst 19. apríl 1883 með lýsingu á skógarför Islendinga, og segist honum svo frá: ,,Það hafði verið kveðið svo á, að stúdentafélag vort skyldi fara á félags- þjór dag þenna, og með því vér vorum orðnir leiðir á að þjóra niður í bæ, það er að segja, þegar betra stóð til boða, þá réðum vér af að þjóra úti í skógi í þetta skipti."1) Þeir Þórhallur Bjarnarson og Einar I Ijörleifsson voru Bertel til aðstoðar við undirbúning, og skyldu menn koma saman klukkan þrjú á herbergi nr. 10 á þriðja gangi, „knæpu Bertels og Ein- ars“, eins og Ólafur kallar. Síðan segir hann: „Það var ys meðal íslendinga á Garði um 3. Fyrst og fremst hringsnerust þeir á knæpunni, sem kornust þar fyrir. Sumir voru að skrifa kvæði, sumir að taka við peningum — tillagið var 2,25 kr. -— Bertel að hcktografera kvæði og tókst lengi vel illa. Nú fór að líða að 3, þá skyldi halda af stað. Ógn var hún yfir 3, er vér lögðum af stað 8 konjakks- flöskur og ein brennivínsflaska, 15 menn og 2 pund af sykri. Vindla áttu menn að leggja sér til sjálfir . . . Ekki leið á löngu áður en vér komum 1) Ny kgl. saml. utilg. 81, 4to. vestur til Charlottenlund. Þar fórum vér úr vögnunum og héldum á leið til Hjartarkershússins, þangað var ferðinni heitið. Llm leið og vér beygðum inn í skóginn, dróguni vér upp konjakks- flösku og sungum kvæði eftir Bertel . . . Vér áttum ekki allstutta leið fyrir hönd- um og urðum vér því hálfþreyttir, en til allrar hamingju var veður ekki mjög heitt. Oss var nýlunda að koma í skóg, svo vér vissum ekki sumir, hvernig vér áttum að láta. Vér hlupum út í skóginn, hentum flöskunum í grasið o. s. frv. Jóel skóari — vér stúdentar máttum taka kunningja vora með — var sprækastur í því. Hann hljóp og mest. Þeir Bertel þreyttu skeið upp brekku eina, og var Jóel fljótari, enda var Bertel þungbúnari. Þá hlupu þeir Jóel og Gísli aftur á bak, en fórst það ekki allhöndugl.; kastaði þá Bertel yfirhöfn sinni og hljóp og aftur á bak svo fiml. að furðu sætti . . . Eftir átið fórum vér út og biðum þess, að vatn væri heitt handa oss í toddí. Vér fengum bát og fórum út í hólma þann, sem er í vatninu rétt hjá; gekk seint að ferja, því ekki komust nema þrír í bátinn. Þeir Jóel, Hannes H. og Kristján Jónas- son klifu upp í tréð í hólmanum. Kristján fór hæst, og svignaði tréð undan h[onu]m. Okkur vildi það slys til, að bátinn rak frá landi, en Jón Magnússon var svo snarráður, að hann stökk á eftir h[onu]m og náði í hann. Nú fórum vér í land og tókum til toddídrykkju. Fyrst var kvæði Hannesar sungið, og þá rak hver ræðan og hver söngurinn annan. Bertel mælti fyrir skál Jónasar Hallgrímssonar, Kr. Jónasson fyrir minni íslands, Idannes fyrir minni sumardagsins fyrsta, Einar Hjörleifsson fyrir minni stúdentafélags- ins, Gísli — minnir mig — fyrir minni þeirra, sem hér væru, en væru ekki í stúdentafélaginu, þeirri skál svaraði Jón Þorkelsson og kom því inn í hana, að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.