Andvari

Volume

Andvari - 01.04.1962, Page 63

Andvari - 01.04.1962, Page 63
ANDVARI ÍSLAND Á KROSSGÖTUM 1908 61 Jóhannes Jóhannesson (Alþt. 1909): „Og það er svo langt frá því, að ég telji framkomu hins hæstv. ráðherra í sam- bandsmálinu vítaverða, að það er sann- færing mín, að hann eigi skilið heiður og þökk allra góðra íslendinga fyrir hana, og að þetta verði viðurkennt, er stundir líða fram og hitinn, sem nú cr í mönn- um, rokinn út . . . En í sambandslaga- nefndinni varð það oss öllum Islending- um bert, að ráðherrann hafði aldrei gefið Dönum minnstu átyllu til að ætla, að vér mundum sætta oss við minni umbætur cn þær, sem andstæðingaflokkur hans hafði krafizt, er hann fór lengst í kröfum sinum, og fyrir þeim kröfum beittist hann með þeim gáfum, mælsku og lip- urð, sem jafnvel andstæðingar hans játa, að hann hafi til að bera.“ Stefán Stefánsson (Alþt. 1909): „Ráð- herrann hefur barizt fyrir sjálfstæðismáli þjóðarinnar betur en nokkur annar, síðan Jón Sigurðsson leið, og hann hefur barizt fyrir þessu máli (sambandsmálinu) vegna þess, að hann er sannfærður um, að það sé rnesta velferðarmál íslenzku þjóðar- innar.“ Kunnugt er, að það tímabil, sem fór í hönd eftir fall Uppkastsins 1909, var fremur lágkúrulegt í stjórnmálabarátt- unni. Þá kvað aðeins að tveimur málum, ríkisráðsmálinu, um að íslenzk mál skyldu ckki lengur borm upp fyrir konungi í ríkisráði Danmerkur, og fánamálinu. Báðum þessum málum var kirfilega haldið í viðjum af Danakonungi í skjóli Stöðulaganna, svo að engin hót fékkst á málunum, fyrr en með Sambandslögun- um 1918. Hið fyrra atriði, ríkisráðsákvæðið, leyst- ist á einkennilegan hátt 1915, þegar kon- ungur leyfði, að það yrði fellt úr lögum, en úrskurðaði jafnframt, að sérmálin skyldu eftir sem áður borin upp fyrir sér í ríkisráðinu. Slík togstreita um uppburð sérmála hcfði fallið af sjálfu sér niður með sam- þykkt Uppkastsins frá 1908, þegar ísland var orðið sjálfstætt ríki og því með eigið ríkisráð fyrir sérmálin. Síðara atriðið, kaupfáninn út á við, fékkst ekki fram fyrr en með Sambands- lögunum; vér fengum að vísu sérfána inn á við 1915, en um fullkominn kaupfána var oss jafnan synjað, síðast haustið 1917, cins og nánar verður rakið hér á eftir. Þó hafði ísland á þessum árum eign- azt þjóðarstolt, sem var eimskipið Gull- foss (1914), sem hélt uppi Ameríkusigl- ingum á stríðsárunum 1914 til 1918, þegar verzlunarsambandið við Evrópu lokaðist, —■ en ætíð undir dönskum kaupfána. Þótt kaupfáninn væri sameiginlegt mál samkvæmt Uppkastinu, voru þó líkur til þcss, að sambandsfáni með auðkenni fyrir ísland, eða jafnvel sérstakur fáni, hefði verið gerður og samþykktur til út- hafsnota, þegar allt verzlunarsamband við Danmörku rofnaði í stríðinu. Ekkert var því til fyrirstöðu að fara fram á slíka breyt- ingu, samkvæmt 3. gr. Uppkastsins, og viðhorfið 1914 gerbreytt frá því 1909, er ísland átti ekkert kaupskip til úthafssigl- inga. Hinn 22. nóv. 1917 synjaði konungur- inn, Kristján 10., að samþykkja sérfánann íslenzka frá 1915 sem kaupfána út á við. Var cnn borið við, að sérfáni út á við sanr- rýmdist ekki óbreyttu réttarsambandi landanna. Þess háttar rök konungs gegn fánanum hefðu ekki heldur komið til greina, ef Uppkastið hefði orðið að lög- um, því þá var orðið gerbreytt réttarsam- band milli landanna og hjálenduástand Islands úr sögunni. Það er því, að þessum tveimur atriðum athuguðum, fjarstæða að halda því fram í alvöru, að íslandi hafi reynzt það mikil
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.