Andvari

Volume

Andvari - 01.04.1962, Page 65

Andvari - 01.04.1962, Page 65
ANDVARI ÍSLAND Á KROSSGÖTUM 1908 63 afturtæk, né heldur missir hún gildi sitt, þó að aftur rísi deila um samband land- anna, eða ágreiningur verði um einstök atriði í skiptum þeirra. Fullveldisviður- kenningin er veitt eitt skipti fyrir öll, og fullveldið stendur, þó að sambandslögin hverfi úr sögunni. . . . Rammar skorður eru reistar við hvatvíslegum sáttmálsslit- um, og eru þær skorður mestmegnis settar að tilhlutan dönsku samningamannanna." (BIs. 29). Skyldleiki Sambandslaganna og LIpp- kastsins leynir sér ekki í þessu efni sem fleiru, enda sveif yfir vötnunum 1918 hin siðferðilega viðurkenning á frelsi og sjálf- stæði íslands, sem Danir veittu í raun- inni 1908, þó ekki yrði hún löghelguð þá. Uppkastið hefst á einhliða yfirlýsingu, sem er grundvöllur undir samningi, og í þeim samningi eru sett skilyrði, sem eru í senn hlunnindi og kvaðir fyrir báða, en af fúsum vilja sett. Þcssi eftirtektarverðu ummæli Einars Arnórssonar um sjálfstæðis- eða fullveldis- viðurkenningu eins ríkis gagnvart öðru gefa yfirlýsingu Uppkastsins aukið gildi og staðfesta að hún hafi verið óafturtæk. Það var því áhættulaust fyrir Island, eftir samþykkt Uppkastsins, að sannprófa til hins ýtrasta réttarstöðu sína, þótt það hefði í för með sér samningsslit af hálfu Dana. Þeir gátu ekki með því rýrt gildi yfirlýsingarinnar, að ísland væri viður- kennt af þeim frjálst og sjálfstætt land eða ríki. Og enginn vafi er á því, að í hcims- styrjöldinni 1914—1918 gafst íslandi slíkt tækifæri, án þess að Danir hefðu getað rönd við reist. Llm gildi Llppkastsins fyrir Island í slíku tilviki var Hamres Idafstein því sannspár, er hann sagði: „Við vinnum, og það á marga lund. Vinnum þar á meðal alveg vafalaust betri aðstöðu í framtíðinni, ef að því skyldi koma, að landið þarfnaðist og þvldi enn frekari sér- stöðu, en missum einskis í“. Efnismunur Uppkastsins og Sambands- laganna er í rauninni fólginn í því, að þegar Uppkastið var samið 1908, kom íslenzku samningamönnunum ekki skiln- aður í hug, síður en svo, og féllust sex þeirra því á skilyrði, sem tryggðu Dönum konungssambandið. Þetta gerðist með samtengslum utanríkis- og hermála við konungssambandið sem „óuppsegjan- legra“ mála. Það sannaðist síðan við samningsgerð- ina 1918, að Hannes Hafstein hafði rétt fyrir sér, er hann fullyrti í þingræðunni 1909, að Island hefði fcngið óskir sínar og kröfur uppfylltar með Uppkastinu „eftir því sem ýtrast var unnt, ef kon- ungssambandið skyldi haldast“. 1918 fallast Danir á, að utanríkismálin losni úr tengslum við konungssambandið, en þeir eru líka jafnframt sannfærðir um það, að samningsslit 1943 valdi skilnaði, þótt „fræðilega" sé konungssambandið laust við samninginn. Það er því ekki vafi á því, að íslenzku samningamennirnir 1908 komust eins langt og nokkur tök voru á, og eftir at- vikum jafnlangt og hinir 1918. En í hverju var þá hættan fyrir ísland fólgin 1908, ef hún var noklcur? Því var lýst í vantrauststillögunni á Hannes Ilafstein ráðherra 1909: „Að ráðhcrra hefði lagt allt kapp á að koma fram „frumvarpi til laga um ríkis- réttarsamhand Danmerkur og íslands" og í því skyni haldið fundi víða um land til að fá þjóðina til að aðhyllast frumvarp, sem mikill meiri hluti hennar telur lög- festa ísland í danska ríkinu". Þessi lögfesting í danska ríkinu, eða „innlimun", eins og það var þá kallað í daglegu tali Uppkastsandstæðinga, staf- aði af dómi á hinum tveimur „óuppsegjan- legu“ málum, utanríkis- og hermálunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.