Andvari

Årgang

Andvari - 01.04.1962, Side 90

Andvari - 01.04.1962, Side 90
88 JÓN ÞÓRARINSSON ANDVAHI Þýzkalandi. En næstn mánuði var hann ráðinn til tónleikahalds í Rússlandi, og þeim skyldum varð hann að ljúka, áður en hann gæti setzt að í Wcimar. Meðal annars lá leið hans til Kiev, og dvölin þar varð örlagarík, því að þar kynntist hann hinni síðari af þeim tveimur kon- um, sem örlagaríkastar urðu í lífi hans. Það var Karolyne prinsessa af Sayn- Wittgenstein. Hún var 28 ára gömul, fædd í Rúss- landi af pólsku foreldri og hafði erft gríðarmiklar eignir í nánd við Kiev. Er sagt, að jarðir hennar hafi verið setnar af ekki færri en um 30 þúsundum ánauðugs bændafólks. Seytján ára göniul hafði hún verið gift Nikulási prinsi af Sayn- Wittgenstein, rússneskum riddaraliðsfor- ingja af þýzkum ættum, og áttu þau eina dóttur barna. Prinsinn var einnig auðugur að fé, en þótti h'tið gefinn. Prinsessan var hinsvegar talin gáfuð en ekki sérlega fríð sýnum. Hjónaband þeirra hafði snemma farið út um þúfur, og settist þá prinsessan að á eignum sínum í Kiev og gaf sig að bókmenntum og heimspeki. Kunningsskapur þeirra Liszts varð brátt mjög náinn, og dvaldist Liszt hjá prinsessunni næstu mánuði, milli tónleikaferða. Llndir áramótin var þeim skuldbindingum lokið, og um leið sagði hann að fullu og öllu skilið við það líf, sem hann hafði lifað síðustu árin. Eftir þetta hélt hann aldrei tónleika til ágóða fyrir sjálfan sig, heldur aðeins í góð- gerðaskyni eða til styrktar einhverjum þeim málefnum, sem hann vildi leggja lið. I ársbyrjun 1848 settist Liszt að í Weimar, og nokkru síðar kom prinsessan þangað á eftir honum með dóttur sína. Henni hafði ekkí tekizt að fá skilnað frá manni sínum, eins og ætlunin var, og ekki heldur náð nerna litlu af eignum sínum. Strandaði þetta á andstöðu Rússa- keisara og fór í svo hart, að hún neitaði að hlýða skipun keisarans um að snúa aftur til Rússlands. Lauk svo, að hún var gerð landræk úr Rússlandi og eignir hennar upptækar. En þau Liszt létu þctta ekki á sig fá. Fluttist hann brátt á heim- ili hennar, og bjuggu þau nú saman í Weimar til ársins 1860. Þessi ár í Weimar eru hin merkustu í lífi Liszts, og er ekki að efa, að prinsessan átti drjúgan þátt í að svo varð. Allt frá fyrstu kynnum þeirra mun hún hafa haft mjög víðtæk áhrif á allt lífsviðhorf Liszts og ráðið miklu um þá stefnu, sem hann tók um þessar mundir. Það var stórt spor, sem hann steig, þegar hann nú, á há- tindi frægðar sinnar, snýr af þeirri braut, þar sem stórsigrarnir höfðu beðið hans við hvert fótmál og auður og velsæld máttu teljast vís. Nú sneri hann sér að tónsmíðum með mciri áhuga og alvöru cn nokkru sinni fyrr, og frá þessum árum í Wcimar eru mörg mestu tónverk hans, þar á meðal sinfóníurnar, sem kenndar cru við Dante og Faust, flest hinna 12 „sinfónísku ljóða“, orgel- og píanóvcrk. Til þessara starfa naut hann stöðugrar hvatningar prinsessunnar, fylgikonu sinnar. En höfuðáhugamál hans var þó að gera Weimar aftur að listasetri eins og verið hafði á dögum Goethes og Schillers. Tónlistin sat að sjálfsögðu í fyrirrúmi, og sýndi Liszt mikið víðsýni og frjálslyndi í stuðningi sínum við hina nýju tónlist síns tíma. Mikill fjöldi ungra tónlistarmanna, einkum píanóleikara, safnaðist um Liszt í Weirnar hvaðanæva að. Kenndi hann þeim ókeypis og ön'aði þá til dáða á margan hátt. Margir þeirra urðu síðan boðberar listar hans og leik- tækni um víða veröld. Það mun og vera ýkjulaust, að flest tónskáld 19. aldar, sem mest kveður að, hafi átt Liszt nokkuð að þakka. Berlioz, Schumann, Chopin og Wagner, svo að nefnd séu aðeins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.