Andvari

Årgang

Andvari - 01.04.1962, Side 94

Andvari - 01.04.1962, Side 94
KRISTJÁN ELDJÁRN: UM HELJARSLÓÐARORUSTU Þessi grein er lokafyrirlestur, sem ég flutti á mcistaraprófi í Háskóla Islands 26. maí 1944 og hafði eina viku til að semja, svo sem venja er. Erindið var ekki ætlað til birtingar, en nú hefur ritstjóri Andvara falazt eftir því, þar eð hann þóttist ekki hafa annað til- tækara til að minnast hundrað ára út- komuafmælis Heljarslóðarorustu. Læt ég það flakka, frá orði til orðs eins og það var samið og flutt í maí 1944, en góðfúsa lesendur bið ég muna og skilja, að hér er um að ræða gamlar lummur, sem í upphafi voru snöggbakaðar. K. E. I íslendingar tóku fyrst að setja saman riddarasögur á 14. öld. Þessi bókmennta- grein tók hug þjóðarinnar svo föstum tök- um, að hún undi við hana öldum saman. Ævintýraglit riddarahfsins heillaði menn í fásinni og fábreytni, en sem bókmenntir eru riddarasögurnar bágbornar, enda stirðnuðu þær brátt í formi og urðu hver annarri líkar. Þegar kemur fram á 19. öld, eru þær komnar á fallanda fót, form þeirra er að verða að dauðri leif. En þá rennur skyndi- lega af stofni þeirra einkennilegur, snar- lifandi kvistur, á sinn hátt merkilegasti ávöxtur riddarabókmenntanna á Islandi. — Þessi kvistur er Sagan af Heljarslóðar- orrustu eftir Benedikt Sveinhjarnarson Gröndal. Við hana kannast svo að segja hvert mannsbarn, enda mun ég ekki rekja efni hennar, heldur haga orðum mínum eins og það sé öllum kunnugt. Sagan af Heljarslóðarorrustu, eða Heljarslóðarorusta, eins og hún er oftast kölluð, á sér merkilega tilurðarsögu. Benedikt Gröndal hafði komið til Kaup- mannahafnar í annað sinn árið 1857 og var þá rúmlcga þrítugur. Ætlaði hann þá að „taka examen“, en lítið varð úr próflestrinum eins og fyrri daginn. Lcnti hann í drykkjuskap og lá við sjálft að hann færi heim við lítinn orðstír. Þá vildi svo til, að hann komst í kynni við einkennilegan, rússneskan trúboða, sem Djunkowsky hét, ai jafnan nefndur Djúnki af Islendingum. Djúnki var ríkur maður og mikill brennivínsmaður. I lann var kaþólskur og var það hugsjón hans að vinna kirkju sinni nokkurt ríki á Norðurlöndum. Þess vegna gerði hann sér títt um íslendinga og hafði Ólafur Gunnlögsson, frændi og vinur Gröndals, gerzt samherji hans. Þetta leiddi til þess, að Djúnki tók Gröndal að sár og hafði í huga að gera hann að trúboða á Islandi. Hann fór með hann til Þýzkalands og kom honum fyrir í prestasamkundu nokk- urri í þorpi litlu, sem heitir Kevelaer. Þar dvaldist Gröndal upp undir ár, sökkti sér niður í lestur kaþólskra bóka, pældi gegn- um rit hinna heilögu kirkjufeðra, tók þátt í bænum og tíðagerðum klerkanna, og að lokum fór svo, að hann tók kaþólska trú til málamynda. Gröndal segist sjálfur hafa þroskazt mikið á klausturvist þess-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.