Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 72

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 72
182 íslenzkar samtíðarbókmentir. IÐUNN Vefaranum tvöfaldast undirstrikanirnar, ýkjurnar vaxa, líkingarnar verða fáránlegar. Hin upphaflega eðlishvöt verður hér vísvitandi maniére. Oft kemur manni þá í hug orð fransks gagnrýnanda um nýja skáldskapinn þar syðra: Skáldunum núna er ekkert ant um að hræra hjörtu lesandans, heldur að gera hann hissa. En — vér erum komnir hér að öðru atriði. Vér erum horfnir frá sjóninni, skynjuninni, sem er einföld og sönn, og að með- ferðinni, stílnum, sem altaf býr yfir ögn af ósannindum. IV. Sjón og sögn. Frásögnin er næsta atriðið, sem kemur til greina. Sjálft tungutakið, málfærið, hæfileikinn til að segja frá því, sem séð er. Fyrrum var löngum litið á það fyrst og fremst, hvort »málið« væri gott eða ekki. Aðalkrafan var þá, að skrifa hreina íslenzku, minna að því hugað að skrifa fagra eða fjölbreytilega íslenzku (stundum var þó fólgin í máls- kröfunni óskin eftir þróttmiklum, einföldum stíl). Islenzk tunga hefur á síðari öldum löngum orðið að verjast áleitni erlendra mála — einkum dönsku. Islenzk orð skorti á fjölda hluta, sem til Islands fluttust; nýir starfs- hættir og hugtök tóku að berast hingað. Augljóst var, að ekki mundi tjá að taka erlendu orðin upp í íslenzku — að minsta kosti ekki nema fá þeirra, en hitt var líka óðs manns æði, að ætla sér að komast hjá að nefna þessa aðkomnu hluti í riti. Var því snemma tekið að gefa hverju einu íslenzk nöfn, — þessari stefnu hefur verið haldið áfram, og hefur sózt stórum fram á leið á síðari árum. Islenzk tunga hefur reynst gædd frábæru vaxtarmagni, líklega svo miklu, að slíks þekkist fá dæmi utan úr heimi. Og þrátt fyrir ýmsa annmarka, sem nú eru á, veiklun í orðskipun, pappírsblæ á nýyrðunum

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.