Kirkjuritið - 01.04.1947, Síða 3
Kirkjuritið.
Bæn fyrir börnum landsins
Hvert sinn er Drottinn sál í heiminn sendi
uð sækja þroska i jarðlífs skóla sinn,
hann dýran R'imstein gaf í móðurhendi
að fíevma or vernda fasra dýrgripinn.
En vandi er þeim, er slíkan gimstein geymir
þar gætni þarf og vit hins bezta manns,
því engan um þá dýrðarfegurð dreymir,
sem dreifast má frá geislabroti hans.
Gef hverri móður bæði vit og vilja,
að vernda og fága sérhvern gimstein þinn,
og kenn oss öllum ábyrgð vora að skilja
á auðnum mesta, barnavinurinn.
Kenn hverjum skóla störf sín vel að vanda
svo vaxi hverju hjarta ást til þín,
og lát þau helgast blíðum bróðuranda,
unz barnsleg gleði úr hverju auga skín.
Kenn hverri byggð að elska æsku sína,
svo öll þín smáa hjörð sé betur hirt.
Ó, gef oss Ijós, svo dimman megi dvína
og dýrsta skyldan sé ei lítilsvirt.
Ó, veit þú Guð, hver þjóð í veröld vakni
tii vits um skyldu þá, er hæst skal sett:
Að enginn vilja, vits né orku sakni
að verja æskulýðsins helga rétt.
Steingrímur Arason.
Kirkjuritið.
7