Kirkjuritið - 01.04.1947, Page 26
112
J. A.: Á föstudaginn langa. Apríl-Jún
Lát mig heims ei hyggju blinda,
hjartans bezti vinur minn,
hreinsa mig af saurgun synda,
svo ég ávallt verði þinn.
Blandist lifs í bikar mínum
blessuð hjarta tárin þín,
heilagt blóð úr benjum þínum
blæði á dýpstu sárin mín.
Jesús Kristur, krossins herra,
kom þú mínu hjarta nær.
Lát þú efans ótta þverra,
ávallt svo þér verði eg kær.
Öllu tjóni verður verra,
víkir þú mér Drottinn fjær.
Jesús Kristur, krossins herra,
kom því mínu hjarta nær.
Jón Arason.
Bænarvers
Jesús Ifristur, bezti bróðir,
blítt oss réttir líknarhönd;
hefur oss í himinsslóðir
heim í Guðs in fögru lönd,
Drottins þar sem dagur ljómar,
dýrðarsólin lýsir skær,
þar sem söngur engla ómar,
er öllum dýrstan fögnuð ljær.
Guðmnndur Stefánsson.