Kirkjuritið - 01.04.1947, Page 34
Apríl-Júni
Séra Arne Möller,
kennaraskólastjóri dr. phil. & theol.
1876 — 1947
Þegar ættingjar og vinir
Árna Möllers komu saman
í Haderslev 20. sept. 1946
til þess að halda hátíðlegt
sjötugsafmæli lians, liefir
víst engum þeirra dottið í
hug, að liann ætli aðeins
tæpt misseri eftir ólifað.
Svo hress og hraustur virl-
ist hann, svo ungur í anda.
En hann andaðist 5. febrú-
ar þessa árs.
Arne Möller fæddist i
Villing á Vestur-Jótlandi
og var í föðurætt af
dönsku, cn i móðurætt af
íslenzku hergi brotinn.
Faðir lians var prestnrinn Theodor Möller, síðast prest-
ur í Birkeröd; varð hann fjörgamall, 92 ára. Móðir
Árna var af góðum, gömlum íslenzkum ættum. Hún hél
Lára Petrine Jolmsen, dóttir Jóns Jolmsens Jónssonar,
er oft var kallaður Álaborgar-Jón. Hann var fæddur á
Drumboddsstöðum i Árnessýslu 1806 og var lögfræðing-
ur. Var hann dómari í landsyfirréttinum í Reykjavík í
12 ár. En 1848 var hann skipaður bæjarfógeti í Álaborg
og bjó þar lil æviloka, 1881. Móðurbróðir Árna var Jón
Jónsson, venjulega nefndur Jón ritari. Hann var fædd-