Kirkjuritið - 01.04.1947, Blaðsíða 67
Kirkjuritið.
Menntun presta á íslandi.
153
lúskupsdæmi Steinmóður prestur Þorsteinsson, auðugur
maður og' höfðingi mikill, og væri hann ekki ólíldegri en
uinn danski prédikaramunkur, að liafa lilynnt að mennt-
un presta. En liann andaðist 1403, sennilcga af völdum
Svartadauða, sem þá sópaði lil moldar miklu mannvali
af Norðurlandi eins og víðar á landinu. Segja annálar, að
ckki liafi þá eftir lifað nema þrir prestar norðanlands,
þrir djáknar og einn munkur á Þingeyrum, og lilýtur
kristnihald þá að hafa lagzt mjög í auðn, um langan tíma.
Skóli hefir vitanlega alveg lagzt niður, og stóllinn verið
íorsjárlitill lengi. Hefir það starf, að mennta presta, þá
aðallega hvilt á klaustrum. Hinir ensku biskupar, er sátu
a Hólastól fram undir miðhik 15. aldar eru heldur ekki
líklegir að liafa hirt mikið um skólaliald, því að meir
stunduðu þeir fjárplóg en efling' Guðs ríkis, enda sótu
þeir eigi hér á landi nema stundum. Þó er merkilegt að
v<íita því athjrgli, að á biskupsárum Jóns Yilhjálmssonar
(1426—1433) virðast prestar í Hólabiskupsdæmi vera
oi’ðnir 136, en djáknar 441), og er það nærri óhugsandi,
a'ó' tekizt liafi að kenna svo mörgum mönnum tíðasöng
11 ,)afn stuttum tíma, nema biskuparnir hafi látið þessi
aial mjög lil sín taka, ef slik landauðn hefir orðið af
lærðum mönnum í Svartadauða og annálar telja. En vera
nia, að kirknatal Jóns biskups sé fremur til þess gert, að
ííera sér grein fvrir prestaþörfinni en hinu, að prestar og
djáknar hafi allstaðar verið til, svo sem ákveðið er, og
l'ykir mér það líklegra. Svipað kirkna- og prestatal er lil
ii’á fyrstu biskupsárum Ólafs Rögnvaldssonar (ca. 1461)
()g er þar gert ráð fyrir 140 prestum og 42 djáknum2).
reiknað væri með 20 ára þjónustualdri að meðaltali,
l'cí'ðu níu prestar og djáknar þurft að útskrifast árlega
1 Hólabiskupsdæmi einu, og gæti þá naumast hafa verið
1‘t'rri en um 50 prestlingar árlega að námi, þótt ekki væri
ó DI, IV, 379—382.
2) ÞI, V, 358—361.
KirkjuritiÖ
11