Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 30

Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 30
þjónustu setuliðsins og féfletti nú landa sína fyrir borgun. Faríseanum er fyllsta alvara með þjónustunni við Guð. Það er alveg hægt að segja til um það, hvort menn leggja málefni lið af heilum hug, eftir því hvernig þeir bregðast við, sé fórna krafist, ef maginn og buddan þurfa að líða fyrir málefnið. Viðskipti eru við- skipti, að dómi margra. En ekki að áliti þessa farísea! Hann fastar og fær- ir fórnir, sparar við sig og dregur sam- an seglin — vegna Guðs. í augum hans er Guð alveg eins raunverulegur og myntin, sem hringlar í buddunni hans. Við ættum ekki að horfa fram hjá þessu. Ef við hugsum dálítið um það, fer okkur að skiljast, hve mætur maður faríseinn er. Hann meinar það, sem hann segir. Og hann er ekki einn þeirra, sem myndi draga sér fé úr samskotabauknum, eins og tollheimtu- maðurinn væri vís til að gera, heldur er hann sjálfur fyrstur til að gefa ríf- lega upphæð. Fólk finnur fljótlega hvort öðrum er alvara eða ekki. Meðan tollheimtumaðurinn grefur undan góðu siðferði i samfélaginu, vinnur faríseinn að því heils hugar að rækta helgar venjur og heilaga trú. Bæjarfélagið veit, að faríseinn er traustur máttar- stólpi í iífi þess og starfi. í Ijósi þessa hættir það að vera sjálfsagður hlutur, að Jesús skuli lofa tollheimtumanninn en fordæma farí- seann. Það hefur áreiðanlega ekki verið sársaukalaust að álasa svo traustum og góðum borgara. Sýnilegt er, að sínum augum líta þeir hvor á silfrið, Guð og maður. Það er auðvelt að segja þetta, en erfiðar spurningar leita á. Er dómur okkar mannanna einskis virði, jafnvel þótt um alvörugefna og þroskaða menn sé að ræða? Er Guð ævinlega á öndverðum meiði við okkur? Br dómgreind okkar aldrei treystandi, hefur Guð alltaf annað gildismat en við? Metur Guð faðir, og sonur hans einnig, einskis þá staðreynd, að toll- heimtumaðurinn er þrjótur, en faríse- inn mjög einlægur maður og heill? Það er ekkert gamanmál, að Guð skulí einlægt vera á annarri skoðun en mennirnir, jafnvel þótt um skynsama og vitra menn sé að ræða. Eða er kannski eitthvað bogið við þann Guð, sem hælir tollheimtumanninum en hafnar faríseanum? Við munum nú reyna að skilja þann Guð, sem svo furðuiega hugsar og kemur fram. Gerum svo tilraun til að líta á þessa tvo menn með augum Guðs. Þetta getum við ekki gert kinnroða- laust, því að báðir eru þeir nauðalíkir okkur sjálfum. Hversu mörg okkar, sem hafa fengið nokkru áorkað í lífi °9 starfi og hlotið lof fyrir, hafa þá komið heiðarlega fram, þegar auðveldara hef- ur verið að haga seglum eftir vindi? Verðum við ekki sakfelld fyrir efsta dómi? Allt stendur og fellur með Þvl prófi. Kannski eru lika meðal okkar marg- ir, sem hafa órólega samvisku. Ef vill geta þeir ekki haft hemil á löng' unum sínum og hvötum; ef til vill hafa þeir bakað öðrum manni óhamingju’ með því að breyta rangt, þegar all( var undir því komið að þeir brygðust ekki; ef til vill eru þeir fullir hégóma- girndar og ofmetnaðar. Þeir hafa óbeit 188
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.