Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 67

Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 67
Solli, stórþingsmann frá Noregi. í næsta hefti eða næstu heftum mun trú- lega sitthvað fleira fram koma, sem beint eða óbeint verður rakið til þessa móts. Það bar m. a. til tíðinda, þá daga, sem mótið stóð, að nokkuð á annað þúsund þátttakenda fór hópför á Þing- völl og að Skálholti. Þann dag, 8. ágúst, gerði raunar sunnlenzkt ill- viðri af því tagi, sem verst gerist á sumrum. Þó stytti nokkuð upp, er í Skálholt kom. Þar var haldin samkoma i kirkjunni, og verður efalaust öllum minnisstæð, sem við voru. Var gizkað á, að þúsund til ellefu hundruð manns hefðu komizt inn í kirkiuna, en þrjú eða fjögur hundruð urðu að standa úti. Svo þétt var kirkjan setin, jafnt um bekki sem gólf, að 65 manns sátu > kórnum einum, og var þó einna strjál- ast þar. Undarleg og mögnuð voru áhrif þess að horfa á öll þau ungu andlit í kirkjunni. Söngurinn varð eins og drunur af brimi, og þegar allir lásu ..Faðir vor“, varð það líkast aðdynj- anda sterkviðris. Síra Heimir Steins- son kynnti staðinn fyrir gestum, en herra Sigurbjörn Einarsson, biskup, Predikaði úr stól. Var svo að finna sem allir væru þar með einum huga og e<nni sál. Að lokum söng hver á sinni tungu sálminn, ,,Jesú nafn um aldir alda.“ Voru þá sumum tár á hvörm- um, því að svo stór hópur trúaðra, kristinna ungmenna hafði vart nokkurn tíma verið saman kominn á Norður- !öndum fyrri, til þess að syngja Jesú Kristi lof. Á þeim degi blessaði Drott- lnn enn þann gamla stað sinn og gaf nýjar vonir og fyrirheit. Þingað um guSfræSi Ekki verður með öllu þagað um guð- fræðiráðstefnu þá eða námskeið, er efnt var til á vegum Lýðháskólans í Skálholti í sumar. Undirbúning þess mun dr. Einar Sigurbjörnsson einkum hafa annazt ásamt rektor skólans, og stjórnuðu þeir því einnig saman. Flutti dr. Einar þar þrjá fyrirlestra, er allir fjölluðu um Orðið með einhverjum hætti. Aðrir fyrirlesarar voru: Jón Sveinbjörnsson, prófessor, er fjallaði um ritskýringu og útleggingu, dr. Þór- ir Kr. Þórðarson, prófessor, er fjallaði um ,,túlkunarfræðileg“ vandamál, síra Jónas Gíslason, lektor, er sagði frá umræðum, er leiddu til þess, að ís- lenzkum prestum var fengið frjálsræði um textaval, og loks var svo lesinn upp fyrirlestur síra Jóhanns Hannes- sonar, prófessors, um kirkjuárið. Hann gat ekki komið sjálfur til námskeiðis- ins vegna sjúkleika. Þátttakendur áttu góða daga sam- an, þótt nokkuð strangir væru. Bar nokkuð margt á góma, og sýndist stundum sinn veg hverjum um hitt og þetta. Munu þó allir hafa þótzt fara ríkari heim, enda voru sumir fyrir- lestrarnir með mestu ágætum, og all- ir voru þeir fróðlegir. Forgöngumenn þessarar ráðstefnu eiga þakkir skyldar, og er þess nú að vænta, að íslenzkum prestum og guð- fræðingum gefist kostur á öðrum slík- um samkomum hér eftir. Hingað til hafa þeir ekki átt margra kosta völ sér til uppbyggingar og endurmenntunar. Fréttir af öðrum fundum og ráð- stefnum bíða enn um sinn. G. Ól. Ól. 225
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.