Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 36

Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 36
sem við njótum. En hroki tollheimtu- mannsins er einhver óttalegasti og jafnframt mest smitandi sjúkdómur kristninnar. Það er einmitt í þeim punkti, sem að ofan ræðir um, sem bæn tollheimtu- mannsins er frábrugðin bæn faríse- ans. Þegar maður, sem kvelst af sam- viskubiti, snýr sér til Guðs með beiðni um hjálp og fulltingi, þá eru aðrir menn það síðasta, sem honum dettur í hug. Þá stundina eru þeir tveir í heiminum, hann og sá Guð, sem hann ákallar. Það hvarflaði ekki að toll- heimtumanninum að fara að gera út- tekt á faríseanum, meta fyrir sér stöðu hans útfrá samanburði við aðra, eða jafnvel að tíunda prakkarastrik hans. Slíkt hefði þó getað verið hendi næst. En þegar við erum á eintali við Guð, þá er svo ótal margt, sem má kyrrt liggja, þótt satt sé. Hann hefur öðrum hnöppum að hneppa. Fyrir bragðið verður framkoma hans svo sönn og ósvikin. Tollheimtumaðurinn mælir sig við þann, ,,sem er fyrir ofan hann Björn í Brekkukoti". Guð sjálfur er viðmiðun hans. Sú aðferð smækkar þann, sem henni beitir. Honum verður ískyggilega Ijóst, hve hann er fjarri markinu. En þá er hann einmitt nær Guði en nokkru sinni. Sjálfur getur hann ekki einu sinni hóstað upp ávarp- inu ,,góði Guð“. Honum finnst hann alltof mikill maðkur til að leyfa sér slíkan kumpánahátt. En það er þá, sem hann heyrir Guð ávarpa sig ,,kæra barnið mitt“. Við, Þjóðverjar, vorum sakbitnir eftir ófarirnar í síðasta stríði. Margir voru að bera sig að stynja upp bæn toll- heimtumannsins: ,,Guð, vertu mér syndugum líknsamur. Tak ekki brott miskunn þína frá okkar hnípnu þjóð. En það var örlagastund í andlegu lífi þjóðarinnar, þegar einhver heyrðist tauta: „Aðrir eru ekki hótinu betri en við“. Þá vorum við ekki lengur einir með Guði. Iðrun og innri endurnýjun hvarf eins og dögg fyrir sólu. Við vorum þá farnir að bera okkur saman við hræsnisfulla lýðræðissinna, drembi- láta farísea meðal sigurvegaranna. Tvennt skal tekið fram að lokum. í fyrsta lagi þetta: Páll postuli átti það til að vera sjálfhælinn við and- stæðinga sína (I. Kor. 15:10; II. Kor. 11:16nn; Post. 13:1 n). En meiningin var önnur en hjá faríseanum. Páll sló ekki af kenningunni um mikilleik Guðs og miskunnsemi; hann montaði sig af smæð sinni. Og hann kallar þetta gort sitt ,,heimsku“. Það er ekki meint sem gilt fyrir Guði, aðeins fyrir rnönnum. Þetta er mikilvæg vísbending til skiln- ings á dæmisögunni af faríseanum og tollheimtumanninum. Við ættum ekki að draga af henni þá ályktun, að hvers konar mannjöfn- uður sé af hinum vonda. Fáránlegt væri, ef vinnuveitandinn mætti ekki inna umsækjandann eftir reynslu hans og hæfni í starfi. Ellegar þá að skipa reyndum og ráðvöndum starfsmanni á bekk með margdæmdum afbrota- manni. Mannamunur er staðreynd og það er forsendaaðlífi mannsins í heim- inum, að greint sé milli góðs og il|s- Slíkt er nauðsynlegt og gilt fyrir mönn- um. En um leið skyldum við minnast þess, að öll slík aðgreining og stétta- skipting máist út í efsta dómi. Þar er- um við allir og verðum syndarar. Pvl 194
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.