Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Qupperneq 98

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Qupperneq 98
VILJI O G VÆNTINGAR Foreldrar Yusufs eru múslimar. Irena segist hafa verið kaþólsk en hafi ákveðið að gerast múslimi, þar sem henni finnist islam falleg trúarbrögð. Hún segir þau iðka trúna á heimilinu og í moskunni, gjarnan í samfélagi við aðra múslima. Irena segir að Yusuf sé enn það ungur að hann sé ekki farinn að taka þátt í iðkun trúarinnar. Hún tekur fram að Yusuf sé frjálst að taka þátt í öllu leikskólastarfinu og telur að hann sé enn það lítill að það sé í lagi að hann fari í kirkju, en segist ekki kæra sig um að fara með honum. Irena segir að ef hún sé með efasemdir um eitthvað í skólastarfinu er snertir trúarbrögð, sendi hún drenginn einfaldlega ekki í skólann. Aðspurð um hvort hún telji eitthvað í leikskólastarfinu stangast á við grundvallarhugmyndir í islam, telur hún svo ekki vera (Viðmælandi: Irena). Að sögn leikskólastjórans í leikskóla A, sem hér verður nefnd Erla, hefur Yusuf tekið töluverðum framförum frá því hann byrjaði í leikskólanum. Hún segir að í upphafi hafi hann ekki „kunnað nein samskipti" og þær, þ.e. starfsfólk leikskólans, hafi bara „leyft honum að vera". Hegðun hans sé þó betri núna. Erla telur að erfiðleikar Yusufs hafi m.a. stafað af erfiðum aðstæðum heima fyrir og hann hafi verið árásargjarn í byrjun. Hann sé einangraður utan skóla; umgangist krakka lítið. Einnig hefur hún áhyggjur af því að hann sé beittur of ströngum aga heima. Yusuf fæddist á Islandi og segir Erla að hann hefði í raun og veru getað byrjað mun fyrr í leikskólanum, en hann var kominn nokkuð á þriðja ár þegar hann byrjaði (Viðmælandi: Erla). Yusuf hefur verið hjá sérkennara seinna árið sitt í leikskólanum. Eftir að Yusuf fór að vera í leikskólanum fyrir hádegi hefur hann tekið þátt í hópastarfi og tengst börn- unum betur en áður, að sögn sérkennara og leikskólastjóra. Erlu finnst nauðsynlegt að nota túlk í viðræðum við foreldrana, en segir að þau hafi helst ekki viljað það. Hún óttast misskilning ef samtölin fari fram á ensku. Hún segir þetta vera svo ólíka menn- ingu; foreldrarnir hafi t.d. ekki viljað að Yusuf borðaði í leikskólanum af trúarlegum ástæðum, en þar með hafi Yusuf farið á mis við mikilvæg samskipti við hin börnin og starfsfólkið. Þessi afstaða foreldra hafi þó breyst eftir að þau sáu matseðilinn. Erla og Sigga sérkennari segja að annað ár Yusufs í leikskólanum hafi gengið mun betur. Það sé alveg nýtt fyrir leikskólann að taka við börnum af erlendum uppruna, en þar hafi reyndar verið tvítyngd börn sem eigi annað foreldri íslenskt. Þau börn séu „alveg íslensk" og foreldrarnir leggi ekki mikla áherslu á menningu og tungumál þess for- eldris sem ekki er íslenskt. Starfsfólk hafi þó sótt námskeið um tvítyngd börn og sé að móta starfið. Erla og Sigga tala um að samskipti við foreldrana hafi batnað undan- farið, t.d. hafi móðirin boðið börnunum í leikskólanum upp á rétt sem hún útbjó í til- efni af hátíð múslima og það hafi vakið ánægju í leikskólanum (Viðmælendur: Erla og Sigga). Lera er nýlega orðin sex ára þegar þessi grein er skrifuð. Hún byrjaði í leikskóla í september 2002. Móðir Leru, Natasha, er einstæð og flutti til íslands tveim árum áður en hún fékk Leru til sín. Þær koma frá Eystrasaltslandi og móðir Leru hefur verið tví- tyngd frá unga aldri, lært bæði ríkismálið og móðurmál sitt. Amma Leru annaðist hana í upprunalandinu á meðan móðirin kom sér fyrir á lslandi. Lera kom til móður sinnar árið áður í nokkra mánuði, en þá taldi móðirin heimilisaðstæður sínar ófull- nægjandi fyrir barnið og sendi hana aftur til ömmu sinnar. Natasha, móðir Leru, segist hafa orðið fyrir mikilli mismunun í upprunalandi 96
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.