Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 11

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 11
Góð byrjun á loðnuvertíðinni kemur víða fram: Hlutabréfamarkaðurinn tekur við sér Byrjun loönuvertíöarinnar á þessu sumri lofar mjög góöu um fram- haldiö og eru menn sammála um aö sú innspýting í þjóöfélagiö sem veiöarnar eru muni eiga eftir aö koma víöa fram. Hlutabréfamarkaö- urinn er einn mælikvaröinn á áhrif lobnuveiöanna og gengi bréfa í upp- sjávarfyrirækjum fyrstu daga eftir að veibar byrjuöu sýna aö markab- urinn væntir góös af áhrifum þeirra á afkomu fyrirtækjanna. Líklegast er þó aö hlutabréfamarkaöurinn bíbi eftir milliuppgjörum sem koma í ágúst vegna fyrri hluta ársins. Sigurður Sigurgeirsson, starfsmaöur Landssbréfa, sagði í samtali viö Ægi að eftir miklar hækkanir á hlutabréfum í mars og apríl hafi bréfin lækkað aftur í byrjun sumars en hvað uppsjávarfyrir- tækin varðar má sjá að gengið hækkar lítillega þessa dagana. Ekki þurfti að bíða þess lengi þetta sumar- ið loðna koetni á land. Mynd: Þorgeir Baldursson „Jú, þessi góða loðnuveiði í byrjun vertíðarinnar hefur einhver áhrif á markaðinn. Við sjáum til dæmis að bréf í Samherja hafa hækkað og sömu- leiðis í Síldarvinnslunni á Neskaupstað og SR-Mjöl hefur verið að seljast á svipuðu gengi. Fyrst og fremst held ég að áhrifin af veiöunum komi fram í meiri sölu bréfa í fyrirtækjunum, áhuginn á félögunum verður meiri þó ekki sé endilega um gengishækkanir á bréfum að ræða. En samt má telja lik- legt að eftir því sem vertíðin verður betri, þeim mun líklegra sé að hækk- anir komi fram þegar líður á haustið," sagði Sigurður. Hann segir að búist sé við að milli- uppgjör fyrir fyrri hluta ársins sýni góða afkomu sjávarútvegsfyrirtækj- anna. Veiðar hafi gengib vel í vetur og mörg vinnslufyrirtækjanna eru að ráð- ast í aðgerðir til að bæta afkomu í landvinnslunni. Nýlokið er hluta- bréfaútboði hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað og útboð í bréfum Sam- herja var fyrr á árinu en framundan eru ný útboð, t.d. hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og Jökli á Raufarhöfn. Við mælum með Mörenót <$> NETANAUST <$> LoJMJU Súðarvogi 7 • 104 Reykjavík • Sími 568 9030 • Fax 568 0555 • Farsími 852 3885 ÆGIR 1 1

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.