Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 15

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 15
IMorðmenn taka skip miskunnarlaust og færa til hafnar vegna meintra brota á reglum um tilkynningaskyldu: Mörg eru„Sigurðarmálin“ hjá Norðmönnum Þaö eru ekki abeins íslendingar sem kvarta undan aö norska strandgæsl- an fylgi reglugeröum út í ystu æsar og dragi skip til hafnar í Noregi vegna smávægilegra yfirsjóna. Þannig fengu tveir togarar frá Hjaltlandi, Adenia I og Antarctic, svipaöa meöferö og Siguröur. Togararnir voru aö síldveiöum við Jan Mayen þegar norska strandgæslan stöövaði skipin. Við skoðun kom í ljós aö þeir höfðu ekki fullnægt hinum ströngu norsku reglum um tilkynn- ingaskyldu og nákvæma færslu afla- dagbókar. Togurunum var því stefnt til Bodö i Noregi og gert að greiða 50 þúsund pund í sekt. Útgerðamenn hjaltnesku skipanna voru mjög ósáttir við framferði norsku strandgæslunnar og sögðu að hin meintu brot hefðu ekki verið annab en smávægileg tækniatriði. „Norð- menn hafa getið sér orð fyrir að fylgja eftir gífurlega ströngu eftirliti með er- lendum skipum. Málið er að þeir vilja ekki að erlend skip séu þarna á svæð- inu, svo einfalt er það," sagði John Goodlad hjá hjaltnesku sjómannasam- tökunum. „Ég held að hið stranga eftirlit nú sé til komið vegna þess að þeim finnist að þeir hafi þurft að láta ESB þjóðum eftir of mikinn kvóta úr norsk-íslenska síldarstofninum," bætti John Goodlad við. Innflutningur Japana á karfa stóreykst Heildarinnflutningur Japana á karfa jókst verulega á síðasta ári eða um 10.000 tonn. Árið 1995 nam innflutn- ingurinn 55.898 tonnum en í fyrra var hann kominn í 65.000 tonn. Oft hefur frambob á stærri karfa verið takmark- að en í fyrra brá svo við að meira en nóg var af stærri karfanum. Þrátt fyrir mikinn innflutning á síðasta ári var talið ab birgðir af karfa í Japan væru fremur litlar um síðustu áramót og kann það, ásamt dræmri veiði á Reykjaneshrygg, að skýra þá verð- hækkun sem oröið hefur á þessu ári. íslendingar eru langstærstir á karfa- markaðinum í Japan en á síbasta ári jókst útflutningurinn um 3.700 tonn og voru alls flutt út 27.744 tonn eða 42% af heild. Innflutningur Japana á karfa 1993-1996 (tonn) 1993 1994 1995 1996 Kanada 2.145 782 1.924 2.483 Bandaríkin 10.957 10.142 11.369 11.404 ísland 17.588 28.338 24.043 27.744 Noregur 4.367 2.916 638 1.693 Portúgal Rússland, Eistland, 2.138 1.253 277 152 Lettland og Litháen 16.166 19.969 14.920 17.918 Önnur lönd 4.509 3.529 2.728 4.256 Samtals 57.871 66.929 55.898 65.650 ÆGIR 15

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.