Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 41

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 41
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA Markaðssókn út „Verkefnastaðan er mjög góð og þótt aukningin hafi verið mikil á milli ára óttumst við ekki að þetta sé einhver bóla. Nefna má að loðnuverksmiðj- urnar í landinu hafa verið að endur- nýja sinn tækjakost til að auka verð- mæti loðnumjöls en það kallar á betri hráefnisgæði frá loðnuskipunum sem aftur kallar á RSW kerfi í þau," segir Magnús. Aðspurðir um væntingar til næstu ára segja þeir Charles og Magnús að innanhúss eigi menn sér markmið um að gera stórt fyrirtæki stærra og gott fyrirtæki betra. Þeir segjast stefna á markaðssókn út fyrir landssteinana á næstu árum, einmitt á meðan fyrir- tækið er í þeirri sókn sem raun ber vitni. Charles segir fyrirtækið til þessa einfaldlega hafa haft það mikið að gera hér heima að öll orkan hafi farið í að sinna markaðnum hér. Sannfærðir um að hægt er að ná langt „Við fáum mikið af fyrirspurnum erlendis frá, bæði í gegnum alnetið og einnig bréflega. Þetta eru aðilar sem eru að byggja frystihús, t.d. í Perú, Chile, Argentínu og Mexíkó. Þessar fyrirspurnir eiga það allar sameiginlegt að viðkomandi aðila vantar ráðgjöf fagmanna í greininni því fyrirspurn- rinar benda til þess að þeir viti ekkert hvað þeir ætla að fá. Við erum vanir að leysa úr svona málum og vegna reynslu okkar af þjónustu við sjávarút- vegsfyrirtæki á íslandi, sem mörg hver eru á heimsmælikvarðan fagmennsku, þá er ég sannfærður um að við eigum eftir að ná langt. Það skiptir ekki máli þótt við séum langt í burtu og kannski örlítið dýrari," segir Magnús. Hann og Charles segjast fullkom- lega sannfærðir um að innan þriggja ára verði fyrirtækið komið með útibú úti í hinum stóra heimi, segja það nauðsynlegt ef menn ætli sér að selja á fjarlæga markaði. m Á.« -• RSW sjókœlikerfin nýjung Nýjasta verkefiii Kœlismiöjunnar Frosts er smíði RSW-sjókcelikerfa fyrir nóta- veiðiskipin. Með smíðinni flytjast mikil verkefni inn í lanciið en búast má við að útgerðir Itorfi mjög til breytinga skipa þar sem RSW kerfi verða sett um borð. Hluti affyrsta RSW kerfi Frosts sést hér að ofan skömmu áður en búnaðurinn var sendur til Póllands þar sem kerfið var sett upp í nótaveiðiskipið Börk NK. Á innfelldu myndinni sést inn í varmaskiptinn en sjónum er dœlt í gegnum 320 rör. Eins og sjá má er mikil vinna ( smíði varmaskiptanna en um borð í Berki verða tvœr einingar eins og sjást hér að ofan, þ.e. varmaskiptir og kœlimiðilskútur ásamt vélbúnaði. Kœlismiðjan Frost er þessa dagana að smíða RSW-kerfi í nótaveiðiskipið Jón Kjartansson. ÆGIR 41

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.