Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 16

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 16
Humarvertiöin stendur nú sem hcest og hefur betur gengið undanfamar vikur en í upphafl hennar. Humarinn er samt smár og fyrirséö að vertíðin verður lakari en í fyrra. Mynd: Þorgeir Baldursson Ekki næst að bæta upp slæma byrjun humarvertíðarinnar „Mér sýnist alveg ljóst a& viö mun- um ekki ná ab bæta upp litla veiöi í byrjun vertíöarinnar. Frá miöjum júní hefur veiöin veriö áþekk og á sama tíma í fyrra en í mínum huga er alveg ljóst ab áætlanir um 1600 tonna veibi á vertíbinni ganga ekki eftir. Mér sýnist nær ab gera ráb fyr- ir um 1200 tonna afla," segir Pétur Reimarsson, framkvæmdastjóri Ar- ness í Þorlákshöfn. Óneitanlega hefur humarvertíöin valdið nokkrum vonbrigöum og grípa þurfti til lokunar á svæöi fyrir Suður- landi vegna þess hversu humarinn var smár. Pétur segir aö meira fari í smærri flokkana en áður og ljóst sé aö afkoma bátanna og vinnslunnar sé lakari af þeim sökum. Fyrir humarvertíðina réðst Árnes í kaup á fullkomnum vélbúnaði frá Marel til vinnslunnar og er vinnslan fyrir vikið ekki eins mannfrek og áöur. Pétur segir færri unglinga fá vinnu við humarvinnsluna en áður vegna tak- mörkunar sem sett hefur verið á vinnu unglinga. Um 70 manns eru í humar- vinnslu Árness í sumar en voru um 100 í fyrra þegar vinnsla stóð sem hæst. Vertíðinni á að ljúka um miðjan ágúst en Pétur reiknar með að sótt verði um framlengingu, líkt og gert var í fyrra. „Já, ég reikna með að við förum fram á að fá að veiöa til ágúst- loka. Það verður svo að ráðast hvort við þeirri beiðni verður orðið en ég á ekki von á að aflinn verði mikið yfir 1200 tonnum, jafnvel þó tímabilið veröi framlengt." íslendingar að auka útflutning sinn á rækju til Japans E-kóli veiran var þess valdandi að neysla á kaldsjávarrækju dróst nokkuð saman um tíma í Japan á síðasta sumri, þar sem Japanir neyta mikið af kaldsjávarrækjunni hrárri. Engu að síður jókst innflutningur þeirra á kald- sjávarrækju um 4,3% og fór úr32.100 tonnum árið 1995 í 33.500 tonn í fyrra. Hins vegar dróst innflutningur á hlýsjávarrækju saman milli áranna 1995 og 1996. Markaður fyrir kaldsjávarrækju í Japan tók vel við sér á síðara helmingi ársins í fyrra og sérfræðingar telja að markaðurinn muni halda áfram að vaxa á þessu ári. Grænlendingar flytja langmest út af rækju á markaðinn í Japan eða alls um 13.900 tonn á síðasta ár eða ríflega 40%. Útflutningur frá Kanada hefur vaxið hröðum skrefum eða úr 4.100 tonnum árið 1992 í alls 8.900 tonn á síðasta ári. Islendingar eru þriðji stærsti aðilinn á markaðinum í Japan; útflutningurinn á rækju á Japansmarkað hefur vaxið nokkuð undanfarin ár eða úr 4.150 tonnum árið 1993 í alls 6.500 tonn á síðasta ári. 16 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.