Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 26

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 26
skap. „Þetta var afar skemmtilegur tími," segir skipstjórinn og horfir dreyminn yfir þögla bátana. „Spennan snerist eðli málsins sam- kvæmt um það að koma auga á hvalinn og síðan að ná honum. Mað- ur varð algerlega að treysta á hyggju- vitið og reynsluna því við höfðum aldrei nein tæki til þess arna, astik eða neitt slíkt. Galdurinn fólst í því að átta sig á því hvernig hann kafaði og hvar hann kæmi upp til að anda. Þaö var yfirleitt nokkuð fyrirsjáanlegt eftir tvö til þrjú köf því svo virðist sem hver hvalur kafi eftir ákveðnu mynstri. Maður las í það og náði honum yfir- leitt eftir 20 til 30 mínútur. Stundum varð maður að vísu að sætta sig við að þeir léku á okkur. Það var engu líkara en að þessir stóru og gömlu hefðu lært á okkur og vissu því nokk hvernig þeir ættu að komast undan," segir Sigurður og það fer ekkert á milli mála að þarna fer veiðimaður sem ber virðingu fyrir bráð sinni. Norðmenn fóru illa með stofninn Sigurður segir að vitaskuld hafi mest kapp verið lagt á að fá sem stærsta hvali. Mest hafi verið upp úr því að hafa, auk þess sem ákveðnar reglur giltu um lágmarksstærðir. Kæmi það fyrir að menn kæmu með of lítinn hval að landi hirti ríkið aflann. Lang- reyðin varð að vera yfir 50 fet, sand- reyð og búrhvalir yfir 35 fetum og steypireyð yfir 65 fet. Að sjálfsögðu mátti ekki veiða kýr með kálfa. Sigurð- ur segir að menn hafi þjálfast fljótt í að sjá út stærðirnar á dýrunum. Hann segir að mest hafi verið veitt af lang- reyðinni á þessum tíma, eitthvað af búrhval til að byrja með og síðan vita- skuld sandreyð. Síðasta hnúfubakinn segir hann hafa verið veiddan árið 1955 og síðan hafi verið lokað á veiðar á steypireyð árið 1960. Hvalaskipstjór- inn er á því að Norðmenn hafi farið illa með steypireyöarstofninn hér vib land. „Á árunum fyrir stríð var alveg sama þótt fullt væri af langreyð og sandreyð í kringum þá. Þeir eltu steypireyðinn uppi ef þeir komu auga á hann. Hann var stærstur og þeir vildu ná honum. Þeir voru á takmörk- uðu svæði og gengu nærri stofninum og því má sjálfsagt segja að tímabært hafi verið aö friða hann." Siguröur var messagutti í aðeins eitt ár og vann því sem háseti frá 15 ára aldri. Hann segir vinnuna ekki hafa verið erfiða. Tiltölulega skamman tíma hafi tekið aö ná þeim tveimur hvölum sem mátti veiba, oftast frá einum og upp í sex tíma. Mesti tíminn hafi yfir- leitt farið í stím. Á hvalabátunum voru alltaf fimmtán í áhöfn, kokkur, messi, tveir stýrimenn, skipstjóri og fjórir há- setar. Sex hafi síðan verið í vél, a.m.k. á stærri bátunum. Skemmtilegasta veiðimennskan Fyrstu árin þurftu menn að sækja aðra vinnu en hvalveiðarnar þar sem hvalir voru eingöngu veiddir yfir sumarmán- uðina. Fyrstu sautján árin var Sigurður á bátum í Sandgerði, Keflavík, Akra- nesi og Súgandafirði á veturna en sneri alltaf í hvalinn þegar voraði. „Mér þótti þetta frá upphafi lang- skemmtilegasta veiðimennskan og það var gott upp úr henni ab hafa. Hvalur- inn er mikilfengleg skepna og gaman við hann að eiga. Ég myndi segja að nótaveiðin væri einna líkust hvalveið- inni. Þar er þetta spurning hvort mað- ur nær að „búmma" á torfuna eða ekki." Síðustu árin fékk Sigurður vinnu við bátana allt árið. Þá var róið á sumrin og síðan fengu einhverjir vinnu við viðhald yfir veturinn. Það var, ab sögn Sigurðar, þægilegt að hafa þessa vinnu alveg fast og í því fólst vissulega nokkurt atvinnuöryggi. Atvinnuöryggib stób ekki lengi og Sigurður dregur enga dul á óánægju sína með stjórnvöld. Hann segir að margoft hafi verið sýnt fram á meb vísindalegum rökum ab engin ástæða hafi verið til að hætta að veiða hval. Málið hafi frá upphafi verið pólitísks eblis. Hann segir friðunarsinna hafa komið sér fyrir á óþægilegum stöðum fyrir hvalveibiþjóbirnar og tilfinningar þeirra hafi fengið að ráða frekar en vís- indaleg rök. Stærsta vitleysan „Stærsta vitleysan sem við gerðum var að fara úr Alþjóða hvalveiðiráðinu. Við vorum alltof óþolinmóðir og hefð- um átt að fá Norðmenn og Japani með okkur. Þar með hefðum við haft kraft en einir fyrir utan gátum við ekkert gert. Við höfðum skrifað undir hafrétt- 26 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.