Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 39

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 39
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA Akoplast hf. á Akureyri: Sjávarútvegurinn orðinn lang stærsti viðskiptavinurinn Umsvif plastframlei&slufyrirtækis- ins Akoplasts á Akureyri hafa aukist jöfnum skrefum á undanförnum árum og sér í lagi hefur fyrirtækið sótt í sig veðrih í þjónustu við sjáv- arútveginn. Á síðasta ári var hlutfall sjávarútvegs af heildarveltu fyrir- tækisins orbib um 70% og segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Akoplasts ab sú hlutdeild sé bæði til komin á kostnab innflutnings og annarra framleiðenda hérlendis. Daníel Árnason er einn þriggja að- ila sem keyptu Akoplast árib 1991 en þá var fyrirtækið lítið framleiðslufyrir- tæki og salan til sjávarútvegs sama og engin. Meðeigendur Daníels eru Eyþór Jósepsson og Jóhann Oddgeirsson og í dag eiga þeir félagar fyrirtækið Upphaf hf. sem er helmingseigandi í Akoplast á móti Plastprenti hf. Mjög fljótlega eftir kaupin árið 1991 fóm sjónir þeirra að beinast að sjávarútveginum. „Til þess að stækka og þroska fyrir- tækið þá hófum við strax vinnu við að markaðasetja vömr fyrir sjávarútveg- inn og það tókst með ágætum. Veltan á sex hefur þannig aukist úr 35 millj- ónum á ári í 220 milljónir og sjávarút- vegurinn á mest af þessari aukningu en aðrir hafa líka aukið sinn hlut," segir Daníel. Einn af stærri þáttum sem skýra aukin umsvif í sjávarútveginum er við- skiptasamningur sem Akoplast gerði við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna árið 1995. „En áður en við gengum til Daníel Ámason (t.v.) og Jóhann Oddgeirs- son skoða framleiðsluna í vinnslusal AkoplaStS. Mynd: JÓH þess samstarfs vomm við búnir að auka veltuna upp í 140 milljónir á ári og samningurinn við SH hjálpaði okk- ur í áframhaldandi uppbyggingu," segir Daníel. Hörð samkeppni Stærstur hluti framleiðslu Akoplasts em óáprentaðar umbúðir, milliplast, blokkarpokar innan í kassa og þess háttar. Breytingar í vélbúnaði vinnsluskip- anna, sem og húsanna í landi kalla á sífellda framþróun í umbúðunum sem pakkaö er í. Eitt af nýjustu vömþróun- arverkefnum Akoplasts kom til vegna nýrra pökkunarlína fyrir frystingu á loðnu sem mörg sjávarútvegsfyrirtæki hafa tekið í notkun á undanförnum mánuðum. Þannig er annatími í fram- leiðslunni þegar loðnufrysting stendur sem hæst. Þá segir Daníel að stefnumótun sé ab hefjast fyrir fyrirtækið sem komi til með að marka því stefnu inn í fram- tíðina sem þjónustufyrirtæki fyrir pökkun á matvælum. „Innlendir framleiðendur eru með stærstan hluta af því plasti sem notað er í sjávarútveginum og minnihlutinn kemur í gegnum innflutning. Menn eru því fyrst og fremst að berjast inn- byrðis um bitana. En ég bind miklar vonir við að stefnumótunin marki okkur þær syllur á markabnum sem við getum unnib á þannig að ekki sé alltaf verið að berjast í svo hörbum slag að menn fari haltir frá borði. Sam- keppnin er hörð í framleiðslu á plasti og sama hvort um er að ræða fram- leiöslu fyrir sjávarútveg eða aðrar greinar," segir Daníel. Útflutningur skoðaður meira Nýverib fékk Daníel viðurkenningu fyrir verkefni sem hann tók þátt í hjá Útflutningsráði en hann vann skýrslu um útflutingsmöguleika framleibslu- vara Akoplasts á markaði á Grænlandi og í Færeyjum. Fyrst og fremst var um að ræða þær vörur sem notaöar eru í sjávarútvegi. Mun þetta verkefni verða kveikja að útflutningi í náinni fram- tíð? „Staðreyndin er sú að við erum að flytja út vömr í dag," svarar Daníel. „í fyrsta lagi höfum við þjónustað þessi Akureyrartengdu fyrirtæki í Þýska- landi, þ.e. Mecklenburger Hochseefis- herei og Deutche Fishfang Union, sem og útgerðir sem tengjast Samherja, eins og t.d. í Færeyjum. Síban höfum við þjónustaö okkar viðskiptamenn niðri á Flæmska hattinum í gegnum sölu á frísvæði á Nýfundnalandi en við þab að vinna þessa skýrslu hjá Út- flutningsráði og með hliðsjón af getu fyrirtækisins og raunveruleikanum að öðm leyti þá eygir maður tækifæri í útflutningi. Ég reikna með að í kjölfar- ið verði reynt ab útfæra þá áætlun sem ég vann í þessu verkefni," segir Daní- el. ÆGIR 39

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.