Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 40

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 40
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA Magnús Valdimarsson og Charles Magnússon í húsnœöi Kcelismiðjunnar Frosts í Reykjavík. Þeir segja að fyrirtcekinu berist margar fyrirspumir erlendis frá og að stefnan hljóti að vera á markaðssetningu erlendis Kælismiðjan Frost hf. á Akureyri og í Reykjavík: Miklir möguleikar erlendis segja Magnús Valdimarsson og Charles Magnússon „Viö gerfmm ákveönar áætlanir var&andi söluna á þessu ári og hefur hún farib töluvert fram úr okkar vonum. Viö höfum fengiö mjög góöar viötökur hjá viöskiptavinum okkar og erum staöráönir í aö sanna aö viö séum traustins verbir. Enn sem komiö er höfum vib lítið flutt út af framleiðslunni en þab mun breytast á næstu árum. Möguleik- arnir eru miklir erlendis og viö get- um ekki annað en verið bjartsýnir á framhaldið. Félagiö hefur stööugt veriö aö styrkja sig í sessi, bæöi hjá viðskiptavinum hér á landi og einnig á hlutabréfamarkaöi en til marks um þaö er aö gengi bréfa í Kælismiðjunni Frost er nú komið í 7 og það er nokkuð sem fæsta óraði fyrir þegar fyrirtækið varð til fyrir rúmum þremur árum," segir Magn- ús Valdimarsson, sölustjóri Kæl- ismiðjujnnar Frost hf., þegar Ægir hitti hann og Charles Magnússon í fyrirtækinu fyrir skömmu. RSW sjókælikerfi Charles og Magnús segja stærstu verk- efni Frosts hf. vera í tengslum viö ís- lenskan sjávarútveg, að selja kæli- og frystikerfi í fiskvinnslur og skip. Um 65 manns vinna hjá fyrirtækinu í Reykjavík og á Akureyri. Fyrirtækið gerir sig út fyrir heildar- lausnir, kerfin eru forhönnuð, seld, fullhönnuö, framleidd og gangsett af fyrirtækinu. „Viö gerum miklar kröfur til okkar sjálfra og teljum okkur fyllilega sam- keppnishæfa við þaö besta erlendis. Við höfum látið Lloyds taka út tækni- deildina, verkstæðið og framleiðsluna og það skiptir okkur miklu máli að fá það uppáskrifað hjá slíkum aðila við séum þeir fagmenn sem vib segjumst vera," segja þeir félagar. Kælismiðjan Frost hf. vann á síð- asta ári kæli og frystikerfi í mörg stór hús og mörg skip og þjónustar þar fyr- ir utan sláturhúsin, kjötvinnslurnar, mjólkursamlögin og ýmsa abra. Deild fyrir ísskápaviðgerðir er meira að segja til hjá fyrirtækin. Þetta þýbir, með öðrum orðum, að verksvið fyrirtækis- ins er frá ísskápaviðgerðum upp í stærstu ammoníakskerfi. Meðal nýrra verkefna má síðan nefna RSW sjókæli- kerfi sem sett verða í Börk á Norðfirði og Jón Kjartansson á Eskifirði. 40 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.