Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 35

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 35
Erling Erlingsson (t.v.) var með hœstu einkunn á skipstjómarprófi 1. stigs, fékk 8,81 í einkunn. Fyrir miðri mynd er Eyþór Bjömsson sem fékk hæstu enkunn í siglingarfrceði á skipstjómarprófi 2. stigs og taka þeir við viðurkenningu frá Guðjóni Eyjólfssyni. til að ljúka þessu 9 daga námi áður en GMDSS-kerfið tekur að fullu gildi hinn 1. febrúar árið 1999 enda sé mik- ilvægi fjárskipta óumdeilanlegt við fiskveiðar og siglingar, eins og nýleg dæmi sanni. Sérstökum ratsjárnámskeiðum luku 26 nemendur. Fimm námskeið voru haldin í meðferð á hættulegum varn- ingi í þurrflutningaskipum (IMDG) og luku þeim 20 nemendur. I samvinnu vib Sjúkrahús Reykjavíkur og Slysa- varnaskóla sjómanna vom haldin tvö fimm daga námskeið í sjúkra- og slysa- hjálp, nýrri lyfjareglugerð og notkun lyfjakistu. Nítján nemendur luku þess- um námskeiðum. Samanlagt vom á skólaárinu gefin út 118 skírteini til rúmlega 100 skipstjómarmanna vegna styttri námskeiðanna. Hæstu einkunnir á skipstjórnarprófi 2. stigs, sem veitir ótakmörkuð rétt- indi á fiskiskip og undirstýrimanns- réttindi á kaupskip og varöskip af hvaða stærð sem er, hlutu: Alfreð Hall- dórsson úr Kópavogi, 9,0, Eyþór Björnsson úr Kópavogi og Þórhallur Óskarsson úr Keflavík, báðir með 8,84. Sigurbjörn Þorgeirsson úr Reykjavík var með einkunina 8,77. Hæstu einkunnir á skipstjórnarprófi 1. stigs hlutu: Erling Erlingsson úr Reykjavík, 8.81, Valgeir Hilmarsson frá Raufarhöfn, 8,78, Daníel Brynjar Helgason frá Sauðárkróki, 8,67 og Bergþór Bjarnason frá Húsavík, 8,41. Nemendum voru ab venju veitt fjölmörg verðlaun. Alfreð Halldórsson fékk farandbikar Sjómannadagsráðs - Öldubikarinn. Námsárangur hans var sérlega glæsilegur. Hann hefur lokið skipstjórnarnámi 2. stigs á síðastliðn- um fjórum ámm ásamt vélstjórnar- námi en þar fékk hann hæstu ein- kunnir í vélfræði og rafmagnsfræöi- greinum. Verðlaun Landssambands íslenskra útvegsmanna fyrir hæstu einkunnir í siglingafræöi á skipstjórnarprófi 2. stigs fékk Eyþór Björnsson. Sendiherra Dana á íslandi, hr. Klaus Otto Kappel, afhenti sjálfur verðlaun danska menntamálaráðuneytisins fyrir hæstu einkunn í dönsku sem Þórhall- ur Óskarsson hlaut. Flutti sendiherr- ann við þetta tækifæri skólanum kveðju sína og danska sendiráösins. Skólanum sýndur hlýhugur með gjöfum Eins og áður segir barst Stýrimanna- skólanum fjöldi gjafa við þetta tæki- færi. Fyrirtækið Elcon, sem Árni Mar- inósson rekur, gaf ásamt Seateam í Hollandi og dótturfyrirtæki þess Chartworx, verðmæta siglinga- og fiskileitartölvu af gerðinni Quodfish QF 510 sem hefur átt góbu gengi ab fagna í íslenskum fiskiskipum. Búnað- ur sem Elcon gefur Stýrimannaskólan- um er mjög fullkominn hugbúnaður með stafrænum rafeindasjókortum og öflugum vélbúnaði, en fyrirtækin Seateam og Chartworx eru brautryðj- endur á þessu sviði. Fyrirtækib Radíómiðun gaf síðast- liðinn vetur kennsluforrit frá Sailor til notkunar við fjarskiptakennslu skól- Alfreð Halldórsson tók við Öldubikamum en hann var með hcestu einkunn á skipstjómarprófi 2. stigs, 9,0. Alfreð lauk einnig prófi frá Vélskóla íslands en hatm hefur tekið skipstjórnarnámið jafnframt námi í Vélskólanujm sl. fjögur ár. ÆGIR 35

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.