Búnaðarrit - 01.01.1945, Síða 21
BÚNAÐARRIT
17
jafnvel þótt fljótlegra og auðvejdara gæti verið að fara
ferða sinna á annan hátt.
Hin síðari búskaparár sín gaf Magnús, og þau hjón
bæði, sér einnig tíma lil þess að fara ýmsar langferðir
til þess að sjá sig um. Hafði hann mikla ánægju af því
að athuga búnaðarhætti og skilyrði jiar, sem hann fór
um, og liafði glöggt auga fyrir því, er verða mætti til
framfara og liagsbóta á hverjum stað. Hann fór einnig
tvær ferðir til útlanda sér lil fróðleiks, í síðara sinnið
1938, og mætti þá sem fulltrúi Búnaðarfélags íslands
á hinni miklu búnaðarsýningu Dana á Bellahöj við
Kaupmannahöfn. í þéirri ferð l'ór hann fyrst til Ham-
borgar og síðar um Svíþjóð og Noreg á heimleiðinni.
Varð ferð þessi mjög til þess að efla bjarlsýni Magn-
úsar og trú á margvíslega umbótamöguleika á sviði
landbúnaðarins.
VI.
Hvernig bar svo búskapurinn sig hjá Magnúsi á
Blikastöðum? Hvaðan komu peningarnir til þess að
greiða hinar miklu framkvæmdir? Þess hef ég orðið
var, að ókunnugum lélc grunur á, að þeir væru að
verulegu leyti ágóði af störfuni, er Magnús vann ulan
heimilis. Slíkt er fjarstæða, eins og síðar skal að vikið.
Enn fremur var þess til getið, að Jón Þorláksson,
bróðir Magnúsar, sem eins og kunnugt er, hafði mik-
inn rekstur með höndum í Reykjavík og miklar fjár-
reiður, efldi bröður sinn, Blikastaðabóndann til fram-
kvæmda með fjárframlögum. Mér er fullkunnugt, að
þessu var ekki þann veg farið. Frændsemi var góð
með þeim bræðrum. Greiddi Jón vel götu Magnúsar,
er hann fluttist búferlum suður og var að koma sér
fyrir á Blikastöðum, en um bein fjárframíög mun þó
ekki hafa verið að ræða, enda var hagur Jóns þá vart
enn orðinn með þeim blóma, að um slíkt væri að ræða.
Síðar munu þeir bræður oft liafa geði blandað um