Búnaðarrit - 01.01.1945, Page 25
BUNAÐARRIT
21
grúðavegur, en það er ekki fljóttekinn gróði. Eg þekki
ekkert dæmi um búrekstur hér á landi, sem sannar
þetta glögglegar heldur en ræktunarbúskapur Magnús-
ar á Blikastöðum þau rösklega 20 ár, sem ég þekki þar
til. frá 1921—42. Fyrir þá hluti tel ég þann búskap
mjög merkan og }>ess verðan, að mörgu um hann sé
á lof't haldið.
VII.
Eins og fyrr var sagt, hóf Magnús búskap á Blika-
stöðum vorið 1909. Vorið 1910 er hann kosinn i
hreppsnefnd Mosfellslirepps og átti sæti i henni í 24
ár, til vors 1934, en oddviti var hann í 9 ár, frá 1925.
í stjórn Búnaðarfélags Mosfellssveitar var hann frá
1911-1935 og formaður þess frá 1912. Formaður
Búnaðarsambands Ivjalarnesþings var hann einnig frá
1917—1933, og frá 1924 sat hann oftast á búnaðar-
þingi sem fulttrúi félagsins.
í stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur átti Magnús sæti
í 19 ár, eða fr.á 1921—1940, og i stjórn Mjólkursam-
sölunnar í Reykjavík frá því snemma á árinu 1936 og
til danðadags. Loks átti Magnús sæti í stjórn Búnað-
arfélag íslands frá 1926 og til dauðadags og var for-
maður þess frá þvi i ágúst 1936 til i marz 1939. Er liann
eini bóndinn, er skijiað hefur þar formannssæti. í
verkfæranefnd B. í. átti hann sæti, frá því er hún var
fyrst skipuð 1927, og síðar í Verkfæranefnd rikisins,
einnig til dauðadags.
Árið 1937 var Magnús sæmdur riddarakrossi Fálka-
orðunnar.
Af þessari npptalningu ér Ijóst, að Magnús Þorláks-
son var um langt skeið viðriðinn mörg hin merkustu
félagsmál bænda, eftir að hann setlist að í Mosfells-
sveit, bæði fyrir sveit sina og hérað. Afskipti hans af
þeim niálum verða ekki rakin hér i einstökum alrið-