Búnaðarrit - 01.01.1945, Page 54
B Ú N A Ð A R R I T
50.
við meðalnytina i félaginu, og hafa þær því hæklcað
hana. Arið 1938 eru Hupps- og Granadæturnar komn-
ar til viðbótar, og þegar þeim fjölgar og Hjálms- og.
Mánadæturnar bætast við 1943, hækkar enn meðalnytin
og verður það hæsta, sem hún hefur orðið í félaginu.
Það, sem ég vil sérstaklega hiðja menn að festa sér
i minni, er þetta: ÞaS eru kýrnar, sem eru undan ó-
völdu vetrungunum, sem halda meðalngtinni niðri,
þó skána þær, eftir því sem fleiri kýr í héraðinu verða
undan kynbótanautunum.
Kynbótanautin eru misjöfn, en einungis eitt (Ýmir)
hefur reynzt illa, læklcað meðalnytina, og var hann þó
prýðilega ættaður.
Fitumagn mjólkurinnar er ekki síður misjafnt en
mjólkurmagnið, og áhrifa nautanna gælir þar líka.
Hvað fituprósentu mjólkurinnar snerti reyndust áð-
urnefndir systrahöpar í Hrunamannahreppi svo árið
1943:
Mánadœturnar ... með 4.31 % f'itu (3394 lcg, 14(528 filueiningar)
Hvannadæturnar . — 4.19 %
Kollsdæturnar ... — 4.10 %
Hjálmsdæturnar . — 4.00 %
Surtsdæturnar . . . — 3.91 %
Stalinsdæturnar . . — 3.91 %
Huppsdæturnar . . — 3.78 %
- (3634 — 15226 — )
- (3207 — 13148 — )
- (3307 — 13227 — )
- (3107 — 12148 — )
- (2978 — 11643 — )
- (3560 — 11456 — )
Meðalfila í mjólkinni lijá meðalkú félagsins var
3.94. Máni, Hvanni, Kollur og Hjálmur hafa því hæklc-
að fitumagnið. Var Hvanni fyrsta nautið í félaginu,
sem hækkaði fituprósentu mjólkurinnar svo að áber-
andi væri.
Áhrif nautanna til að hækka bæði fitumagn mjólk-
urinnar og mjólkurhæðina eru þó ef til vill enn greini-
legri í Mýrahreppi i Dýrafirði.
Þar eru fáar kýr, en sveitin illa löguð fyrir sam-
göngur, svo að nautin þurfa þrátt fyrir kúafæðina að
Vera minnst tvö. Fyrir áeggjan Jóhannesar Davíðs-