Búnaðarrit - 01.01.1945, Page 105
BÚNAÐARRIT
101
Dreifing á skozku fjárkyni.
Vettirna 1940 og 1941 var framkvæmd sæðing milli
islenzks fjár og hreinræktaðra skozkra hrúta af
Border-Leicestér kyni fyrir fjárræktarfélag Andakíls-
lirepps. Hrútar þessir voru geymdir i einangrun á
Hvanneyri og máttu ekki koina saman við fé bænd-
anna. 1940 voru frjódældar þar 189 ær l'rá 14 býlum,
og fengust út af því 23 blendingslömb á 9 býlum. Að-
eins 10% af ánum frjóvguðust, og var það lítill árang-
ur, enda voru húsakynni tnjög óhentug og hitaein-
angrun ábótavant. 1941 voru aftur frjódældar á Hvann-
eyri og Varmalæk í Bæjarsveit 213 ær frá 13 býlum.
Nota þurfti að miklu leyti sömu húsakynni og árið
áður, og var nú reynt að hæta aðstöðuna eftir föng-
um. Árangurinn varð sá, að um 51% af ánuni frjóvg-
aðist.
Skozku hrútarnir, sem notaðir voru, voru tveir og
hétu Víkingur og Spakur. Síðara árið var Vikingur
tvævelur en Spakur veturgamall. Þeir voru í litlu frá-
brugðnir íslenzkum hrútum við að eiga, en virtust þó
daufgerðari, og sæðistakan því nokkuð erfiðari.
í 20 sæðisskömmtum frá Víkingi reyndist meðal-
magn sæðisins 1,12 em8 og 3731 millj. fruinur til jafn-
aðar í hverjum t'eningscentimetra. í 8 skömmtum frá
Spak voru tilsvarandi tölur 1,12 og 4609 millj., og er
það hæsta frumutala, sem við höfum fengið til jafn-
aðar úr noklcrum hrúti til þessa.
Fjárræktarfélag Andakílshrepps mun síðar hafa
haldið áfram þessari kynbótastarfsemi með góðum
árangri, en þar sem einangrun hrútanna var aflétt,
þurfti ekki lengur að viðhafa sæðingu.
Sæðing á refum.
í marz og apríl 1940 var framkvæmd sæðing á ref-
l,m á vegum Loðdýraræktarfélags Islends. Ýmsir erfið-