Búnaðarrit - 01.01.1945, Page 221
BÚNAÐARRIT
217
helluni, mjög þétt og þolsleg kind með mikla og sterka
ull.
Akur Bjarna Guðmundssonar og 2 synir hans hlutu
I. verðlaun í Nesjahreppi. Læt ég ósagt, hvort Akur
gerir miklar varanlegar kynbætur. í Mýrahreppi voru
sýndir nokkrir mjög góðir hrútar, t. d. Freyr Elíasar
í Hólmi.
í AustUr-Skaftafellssýslu er vaxandi áhugi á sauð-
fjárrækt. Hafa þar verið stofnuð nokkur sauðfjárrækt-
arfélög. Er þar mikið verkefni að bæta féð. Getur svo
farið, að það verði alltorsótt að ná miklum árangri, ef
örtröð hefur valdið því að verulegu leyti, hve fé hefur
verið rýrt í sýslunni undanfarið. Sjálfsagt er þó að
reyna til hlítar, hve miklum árangri niá ná með bættri
fóðrun og kynbótum, en fari svo leikar, að það gefi lit-
inn árangur, þá getur svo farið, að fækka verði fénu.
Eyjafjarðarsýsla.
Á töflu F sést, hvaða hrútar hlutu I. verðlaun i Eyja-
fjarðarsýslu haustið 1942.
Mikið er af ágætum hrútum í Eyjafirði. Ólafsfjarð-
ar hrútarnir voru inargir ágætar kindur, og licfur þeim
farið mikið fram síðan 1938. Fullorðnu hrútarnir voru
rúmum 20 kg þyngri að meðaltali en 1938.
1 Svarfaðardal voru og nokkrir ágætir hrútar, en
ekki miklu hetri en á sýningunni næst á undan.Hrísa-
féð virðist ágætt. Hnífill á Ingvörum var ágæt kind
o. fl. hrútar í Svarfaðardal.
í Arnarneshreppi var Óli Friðriks á Kamhhóli bezt-
ur, ættaður frá Hrísum í Svarfaðardal.
Prúður Snorra á Bægisá, ættaður frá Hrísum, fékk I.
verðlaun 1938, þá á Hrísum, og aftur nú, gaf ágæta
raun. Fimm synir hann fengu I. verðlaun í Öxnadal.
Voru þeir yfirleitt ágætar kindur.