Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is MIKILL hitamunur var á landinu í gær eða sem nam tæpum tuttugu gráðum. Hæst fór hitastig í 7,8 gráð- ur í Hvammi undir Eyjafjöllum og niður í 11,7 gráða frost á Egilsstaða- flugvelli og Brú í Jökuldal. Kalt í pollum Fjölmargt skýrir þetta, segir Ein- ar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni. „Með suðurströndinni og suðvest- anlands var í gær austanstæð gola af hafi sem ber með sér hlýjan vind sunnan úr Atlantshafi. Við slíkar að- stæður er alvanalegt að hitinn nái þessum hæðum, jafnvel þó í febrúar sé. Þessi vindur er hins vegar ekki svo sterkur að hann berist yfir hálendið og í byggð norð- anlands. Nyrðra hefur verið hæg landátt og kalt í lægðum og poll- um, til dæmis inn til dala. Eins og háttað hefur til síðustu daga hafa átök reginafla í veðri birst okkur mjög skýrt; annars vegar milt Atl- antshafsloft sem streymir af hafi inn yfir landið og hins vegar áhrif sjálfs landsins sem á okkar breiddargráðu hefur tilhneigingu til að kólna á vet- urna,“ segir Einar. Úrkoman að vetri skiptir miklu fyrir vatnsbúskapinn Það hve þurrt hefur verið í veðri um landið norðanvert að undanförnu er fordæmalítið. Á Akureyri þar sem lögreglumenn annast veðurathuganir mældist úrkoman aðeins 0,8 mm og hefur aldrei mælst jafnlítil þar í jan- úar. Úrkoma sunnanlands hefur sömuleiðis verið í minna lagi. Sam- kvæmt spám er hins vegar gert ráð fyrir snjókomu um og eftir næstu helgi. „Fyrir vatnsbúskap skiptir úr- koma yfir veturinn miklu, sér- staklega snjórinn og fyrningar sem halda fram á vorið og viðhalda raka í jarðvegi og vatni í smálækjunum sem aftur hefur áhrif á gróður séu vorin og fyrrihluti sumars þurrviðrasöm,“ segir Einar Sveinbjörnsson. Mikill hitamunur í gær  Mestur hiti 7,8 gráður undir Eyjafjöllum, en 11,7 stiga frost á Jökuldal  Fordæmalítið þurrviðri hefur verið um landið norðanvert að undanförnu » Hitamunur á landinu var 19,5 gráður í gær » Hlýir vindar sunnan af Atlantshafi » Skýr átök reginaflanna síðustu daga » Gert ráð fyrir snjókomu um og eftir helgi Einar Sveinbjörnsson ÚTFÖR Steingríms Hermannssonar, fyrrver- andi forsætisráðherra, fór fram á vegum rík- isins frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur jarðsöng. Líkmenn voru Egill Heiðar Gíslason, Guðni Ágústsson, Runólfur Þórðarson, Dagur B. Eggertsson, Bjarni Guðnason, Helgi Ágústs- son, Jón Sveinsson og Hermann Sveinbjörns- son. ÚTFÖR STEINGRÍMS HERMANNSSONAR Morgunblaðið/Golli „ÞAÐ er ekki mikil umferð, enn sem komið er. Það var þó fólk hér um síðustu helgi og þessa tvo daga sem liðnir eru af þessari viku,“ segir Broddi Hilmarsson, umsjónarmað- ur skála Ferðafélags Íslands við Laugaveginn. Hann annast vetrargæslu í Landmannalaugum. Vetrargæslan hófst um mánaðamótin. Broddi fer inn í Landmannalaugar þegar von er á gestum en er þess á milli á skrifstofu Ferðafélagsins að undirbúa sumarið og sinna ýmsum öðrum verkefnum. Hann segir að töluvert sé bókað í Landmannalaugum í vetur. Nefnir hann skíða- göngu- og snjóþrúguhópa á vegum ferðaskrifstofanna. „Þegar komið er fram í mars er stöðug umferð og ekki þýðir annað en að vera hér alveg eftir það.“ Hann reiknar með að vinna í Landmannalaugum út aprílmánuð. Óvenjulítill snjór er á hálendinu og segir Broddi að vegurinn inn í Laugar sé fær lítið breyttum jeppum. Snjóleysið háir hins vegar útivistarhópunum. Þannig er ekki vélsleðafæri í Landmannalaugum. Broddi segir þetta hafa gerst áður. „Það kemur alltaf snjór að lokum,“ segir hann. Nóg er að sýsla hjá skálaverðinum sem notar lausar stundir til að vinna að viðhaldi aðstöðunnar. Broddi ræsir rafstöð kvölds og morgna og þá hefur fólk heitt og kalt rennandi vatn og getur notað vatnssalerni. „Svo er yf- irleitt fólk í skálanum og hægt að finna einhvern til að spjalla við,“ segir Broddi Hilmarsson. helgi@mbl.is Fært í Laugar en ekki snjósleðafæri á svæðinu Morgunblaðið/Hag Febrúar Fært var á venjulegum jeppum í Land- mannalaugar um helgina og snjólaust við skálann. Búið að opna Ferðafélags- skálann í Landmannalaugum POTTURINN í Víkingalottóinu í kvöld er sá næst- stærsti í 16 ára sögu leiksins hér- lendis. Potturinn getur orðið vel rúmlega 1.600 milljónir ísl. kr. er ofurtalan kemur upp. Stærsti pott- urinn sem upp hefur komið í Vík- ingalottóinu var, samkvæmt upplýs- ingum frá Íslenskri getspá, ríflega 1.970 milljónir kr. og var dregið um hann 20. maí í fyrra. Þrír Danir duttu þá í lukkupottinn og fékk hver um sig tæplega 647 milljónir í sinn hlut. Samkvæmt upplýsingum frá Ís- lenskri getspá hafa Íslendingar tvisv- ar á síðustu fjórum mánuðum unnið fyrsta vinning í Víkingalottóinu, í nóvember á miða sem var seldur í Vídeómarkaðnum Hamraborg í Kópavogi og svo aftur í janúar á miða sem seldur var í Skeljungi við Skaga- braut á Akranesi en alls hafa 16 Ís- lendingar unnið fyrsta vinning í Vík- ingalottóinu. Á árinu 2009 voru einnig greiddar 155 milljónir króna til ann- arra vinningshafa í Víkingalottóinu. Allar Norðurlandaþjóðirnar sem og Eistland standa að Víkinga- lottóinu, en á vormánuðum bætast Lettar og Litháar í hópinn og er þá viðbúið að vinningspottarnir hækki nokkuð. silja@mbl.is Næst- stærsti potturinn Fé Til mikils er að vinna í kvöld. Getur orðið ríflega 1.600 milljónir króna ÁTJÁN ára piltur hefur játað að hafa framið rán í Sunnubúðinni í Hlíðunum í Reykjavík um kvöldmat- arleytið á sunnudag, að sögn lög- reglu. Pilturinn var vopnaður hnífi og krafði starfsmann verslunarinnar um peninga og hafði eitthvað af þeim á brott með sér. Pilturinn var hand- tekinn í Reykjavík í gærmorgun en myndir náðust af honum á örygg- ismyndavél sem er í búðinni. Hann hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu. 2007 réðust þrír menn vopnaðir kylfu og exi inn í búðina og höfðu á brott með sér peninga og tóbak. 18 ára piltur játar ránið einfalt & ódýrt! Passionata pizzur Prosciutto & salami 259kr.stk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.