Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 35
OFURFÆÐA Í GRÆNUM BÖKKUM HAUS „Egg eru í raun mjög holl. Þaueru rík af næringarefnum,“ segirJoanne Lunn, sérfræðingur í nær-ingarfræði hjá British NutritionFoundation. Í einu eggi er að finna13 mikilvæg næringarefni, öll írauðunni, en eggjahvítan er fitu-laus og inniheldur albumen, mik-ilvæga uppsprettu prótína. Egg eru fyrirtaks uppspretta B-vítamína sem eru nauðsynleg fyrirmargs konar starfsemi líkamans.Egg búa einnig yfir góðum skammtiaf A-vítamíni sem er mikilvægt fyrir vöxt og þroska. E-vítamíniðsem finnst í eggjum getur einnigveitt vörn gegn hjartasjúkdómumog sumum tegundum krabba-meins. Í eggjum er einnig D-vít-amín sem hjálpar til við upptökusteinefna og styrkir bein. Þá eruegg rík af joði sem þarf til mynd-unar skjaldkirtilshormóna og fos-fórs sem er nauðsynlegt fyrir beinog tennur.          l Unglingsstúlkur sem borðaeitt egg á dag gætu myndað við- bótarvörn gegn myndun brjósta-krabbameins síðar á ævinni,samkvæmt rannsókn sem birtvar í læknaritinu Breast CancerResearch. Það eru einkum amínó-sýrurnar, vítamínin og steinefninsem finnast í eggjum sem getaveitt þessa vörn gegn krabbameini. l Eggjarauður innihalda næring-arefnin lútín og zeaxanthin semtalin eru veita vörn gegn, og jafn-vel snúa við, kölkun í augnbotnum,einni algengustu orsök sjóndepruhér á Íslandi. Kölkun í augnbotnum veldur blindu og er aldurstengdursjúkdómur. Talið er að of lítilneysla á lútíni geti valdið þessumsjúkdómi. l Egg eru hitaeiningasnauð. Í stórueggi eru aðeins 75 kaloríur og 5 gaf fitu. Ýmsar rannsóknir bendatil þess að egg geti gagnast í bar-áttunni við aukakílóin og næring-arfræðingar segja nú að fólk megiborða eins mikið af eggjum ogþví sýnist ef þau eru hluti af fjöl-breyttu og skynsamlegu mataræði. 52 egg   Nýjar rannsóknir sýna fram á að fullyrðingar um að egg séu slæm fyrir hjartað séu rangar og,það sem meira er, að egg teljist jafnvel til „ofurfæðu“. Þau gætu í reynd verið vörn gegn hjarta-sjúkdómum, brjóstakrabbameini, augnsjúkdómum og eru jafnvel ágætis vopn í baráttunni viðaukakílóin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.