Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Námskeið í tölvufærðu bókhaldi Velkomin 569 5100 skyrr@skyrr.is Námskeiðið hefst 15. febrúar og verður kennt fyrir hádegi mánudaga til fimmtudaga í 4 vikur. Helstu þættir sem farið verður í: ▪ Grunnur ▪ Innkaup og birgðir ▪ Sala ▪ Samþykktarkerfi ▪ Fjárhagur ▪ Laun ▪ Innheimtukerfi ▪ Tollakerfi Á námskeiðinu eru afhent vönduð kennslugögn sem koma að góðum notum til frekari færni í tölvufærðu bókhaldi. Flest stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 75% af námskeiðsgjöldum. VR veitir styrk fyrir allt að 75% af námskeiðsgjöldum eftir inneign og réttindum. Þeir sem koma á vegum VR eða VMST fá að auki 25% styrk frá Skýrr. Fullt verð fyrir námskeiðið án aðkomu stéttar- félags, VR eða VMST er 89.000 kr. Nánari upplýsingar eru á skyrr.is og í síma 569 5100. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á skyrr@skyrr.is ISO 27001 IS 542464 Nú býðst þér yfirgripsmikið námskeið hjá Skýrr í tölvufærðu bókhaldi sem er að mestu leyti niðurgreitt af Vinnumála- stofnun (VMST) og þínu eigin stéttarfélagi. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is STJÓRNENDUR Toyota í Japan skýrðu frá því í gær að innkalla þyrfti tæpa hálfa milljón tvinnbíla, meðal annars nýjustu útgáfuna af Prius, vegna vandamáls í bremsukerfi. Inn- köllunin er álitin mikill álitshnekkir fyrir Toyota sem hefur lagt mikla áherslu á gæði og öryggi við mark- aðssetninguna. Stjórnendurnir reyndu því í gær að fullvissa bíleig- endur um að Toyota hefði ekki fórnað öryggi bifreiðanna til að verða stærsti bílaframleiðandi heims. Áður hafði Toyota innkallað um átta milljónir bíla í heiminum vegna mögulegs vandamáls í eldsneytisgjöf í átta bílgerðum. Í tilkynningu um innköllun Toyota-bíla 29. janúar sl. kom fram að áætlað væri að kalla þyrfti inn rúmlega 5.000 bíla á Ís- landi. Tilkynnt var í gær að innkalla þyrfti alls 437.000 tvinnbíla í heim- inum, meðal annars 223.000 bíla í Japan og 147.500 í Bandaríkjunum. Aðeins þarf að innkalla fjóra Prius- bíla hér á landi vegna vandamálsins í bremsukerfinu. Tískubíll í Hollywood Prius var söluhæsta bílgerðin í Japan á síðasta ári og er vinsælasti tvinnbíll heimsins. Nær 1,5 milljónir Prius-bíla höfðu verið seldar í 40 löndum 31. ágúst sl. og bíllinn hefur t.a.m. verið í tísku meðal stjarnanna í Hollywood og umhverfisverndar- sinna. Á meðal stoltra Prius-eigenda eru Leonardo DiCaprio, Brad Pitt, Cameron Diaz og Karl Bretaprins. Peter De Lorenzo, höfundur bókarinnar „The United States of Toyota“, sagði að síðasta innköllun Toyota yrði fyrirtækinu sérlega erf- ið. „Prius er að þeirra mati skínandi dæmi um bíla sem stjórnendur fyrir- tækisins telja að við eigum öll að aka og Prius er allt sem hið nýja Toyota stendur fyrir. Þannig að það er gífur- legur álitshnekkir fyrir þá að þurfa að innkalla hundruð þúsunda bíla af þessari gerð,“ hafði breska ríkisút- varpið eftir Lorenzo. Matsfyrirtækið Moody’s kvaðst ætla að endurskoða lánshæfismat Toyota vegna nýjustu innköllunar- innar. Samgönguráðherra Japans, Seiji Maehara, gagnrýndi forstjóra Toyota, Akio Toyoda, fyrir að hafa ekki innkallað bílana fyrr. „Ég vildi að hann hefði gripið til aðgerða fyrr í stað þess að segja aðeins að þetta væri ekki alvarlegt tæknivandamál,“ hafði fréttastofan AFP eftir ráðherr- anum. Hermt er að Toyota eigi yfir höfði sér hrinu málsókna í Bandaríkjunum. Þarlend yfirvöld eru að rannsaka 124 tilkynningar um vandamál í bremsu- kerfi Prius, meðal annars fjögur slys. Innköllunin álitshnekkir TOYOTA Í VANDA 2.000 3.000 4.000 5.000 Jen Jan. Febr. Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des. Jan. Febr. Stjórnendur Toyota í Japan skýrðu frá því í gær að fyrirtækið hygðist innkalla hundruð þúsunda tvinnbíla, meðal annars af gerðinni Prius. Þetta er þriðja stóra innköllun Toyota-bíla frá því í september og þær hafa valdið fyrirtækinu miklum álitshnekki. 28. janúar 2009 Toyota innkallar yfir 1,35 millj. bíla í heiminum vegna galla í sætisbeltum og útblástursbúnaði Maí Skýrt frá rekstrar- halla að andvirði 4,3 milljarða $ 24. ágúst Innkallar 688.000 bíla í Kína vegna galla í straumrofa 30. september Innkallar 3,8 milljónir bíla í Bandaríkjunum vegna galla í bensíngjöf 29. janúar Innkallar 1,7 milljónir bíla í Evrópu vegna galla í bensíngjöf 27. janúar 2010 Stöðvar sölu á vinsælustu bílunum í Bandaríkjunum vegna tæknivandamála 5. febrúar Forstjóri Toyota, Akio Toyoda, biðst afsökunar á innköllununum 9. febrúar Um 437.000 tvinnbílar innkallaðir GENGI HLUTABRÉFA Í TOYOTA (í japönskum jenum) FJÖLDI INNKALLAÐRA BÍLA 7,56 m 1,7 m 5.000 670.000 75.552 180.000 223.068 155.000 Bandaríkin Evrópa 53.000 Evrópa Önnur Kanada Kína Önnur Japan Norður- Ameríka Tvinnbílar innkallaðir í gær Bílar innkallaðir frá 30. sept.-2. feb.  Toyota innkallar um hálfa milljón tvinnbíla vegna bremsukerfis Í HNOTSKURN » Fjórir Prius-bílar hafa ver-ið innkallaðir hér á landi, að sögn Páls Þorsteinssonar, upplýsingafulltrúa Toyota á Ís- landi. » Fyrirtækið hefur þegarhaft samband við eigendur bílanna fjögurra vegna upp- færslu sem gera þarf á hug- búnaði í ABS-bremsukerfinu í nýjustu útgáfu af Prius. Bíl- arnir verða teknir til viðgerðar í vikunni. Reuters Innkallaðir Nýir Prius-tvinnbílar við verksmiðju Toyota í Tókýó. AÐSTOÐARMENN Júlíu Tymo- shenko, forsætisráðherra Úkraínu, sögðust í gær ekki viðurkenna úrslit síðari umferðar forsetakosninganna sem fram fór á sunnudag. Þeir sögð- ust ætla að krefjast endurtalningar í nokkrum kjördæmum og skjóta mál- inu til dómstóla. „Ef niðurstaða dómstólanna verð- ur okkur í vil ætlum við að vefengja úrslit kosninganna,“ sagði Olena Shústík, varaformaður flokks Tymoshenko. „Við ætlum að gera allt sem í valdi okkar stendur til að sanna kosningasvikin.“ Yfirkjör- stjórn landsins sagði að Viktor Ja- núkóvítsj hefði borið sigurorð af Ty- moshenko með 3,5 prósentustiga mun. Alþjóðlegir eftirlitsmenn og stjórnvöld á Vesturlöndum fóru lof- samlegum orðum um kosningarnar og sögðu að þær hefðu verið lýðræð- islegar. Fast var því lagt að Tymos- henko að viðurkenna ósigur sinn, en hún hefur ekki komið fram opinber- lega síðan kjörstöðunum var lokað þegar hún flutti stutt ávarp. Vilja endurtaln- ingu í ÚkraínuMICHELLEObama, for- setafrú í Banda- ríkjunum, tekur þátt í átaki sem hleypt hefur ver- ið af stokkunum í landinu og miðar að því að berjast gegn offitu barna. Obama sagði að eitt af hverjum þremur börnum í Bandaríkjunum þjáðist af offitu og markmiðið væri að útrýma þessu þjóðfélagsmeini. Meðal annars verður lögð áhersla á að fræða foreldra um innihald fæð- unnar og um mikilvægi hreyfingar. Berst gegn offitu barna Michelle Obama

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.