Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 10
FERMINGARFRÆÐSLA er með ýmsu móti og oft fá fermingarbörnin sjálf skemmtilegar hugmyndir að verkefnum til að vinna að. Þannig var því farið með börnin sem ferm- ast á Álftanesi í vor. Tóku þau sig til og gengu í hús í bæjarfélaginu og söfnuðu fyrir fórnarlömb jarð- skjálftanna á Haítí. „Hugmyndin kviknaði í landa- fræðitíma í skólanum,“ sögðu þær Þórhildur Ólöf, Birna Rós og Hug- rún Linda. „Hann Svavar kennari var að tala um jarðskjálfta og var að segja okkur frá hörmungunum á Haítí og þá sáum við hvað ástandið var alvarlegt og við fundum virki- lega til með fólkinu þar. Þá datt okk- ur datt í hug að hafa söfnun og stungum upp á því í ferming- arfræðslutíma.“ Þær segja prestinn og djáknann hafa tekið mjög vel í hugmyndina og þá fóru hjólin að snúast. „Við höfð- um svo samband við Rauða krossinn og þeir lánuðu okkur söfnunarbauk- ana. Allir í bekknum tóku þátt og við gengum hús úr húsi á öll heimili á Álftanesi. Það var svo vel tekið á móti okkur og við söfnuðum fullt af peningum. Við skorum á aðra skóla eða fermingarhópa að gera slíkt hið sama því að það skiptir svo miklu máli að láta gott af sér leiða og við vonum svo sannarlega að þessi pen- ingur komi að gagni.“ Samhentur hópur Börnin á Álftanesi láta ekki sitt eftir liggja. Fermingarbörn á Álfta- nesi söfnuðu fyrir Haíti 10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Prófkjör valda stundum nokkrumdeilum innan flokka, enda get- ur ýmislegt gerst í hita slíks leiks. Sumir falla til að mynda í þá gryfju að hafa uppi misjöfn orð um keppi- nauta eða mæla jafnvel gegn því að þeir fái atkvæði. Slíkt þykir sjaldn- ast til fyrirmyndar.     Fátítt er þó aðmeint kosninga- svindl verði að deilumáli eftir próf- kjör, en það hefur þó gerst í prófkjöri, eða forvali, Vinstri grænna í Reykjavík.     Þorleifur Gunn-laugsson borgarfulltrúi, sem tapaði með rúmlega 40 atkvæða mun í keppninni um fyrsta sætið fyrir Sóleyju Tómasdóttur, telur að kosn- ingasvindl hafi átt sér stað.     Komið hefur í ljós að stuðnings-menn Sóleyjar, m.a. álitsgjaf- inn og háskólakennarinn Silja Bára Ómarsdóttir, buðu upp á dularfulla fjarkosningu ef kjósendur nenntu ekki á kjörstað fyrir Sóleyju.     Formaður kjörstjórnar, StefánPálsson, hefur beðist afsökunar á að svör hans til stuðningsmanna Þorleifs hafi „valdið einhverjum misskilningi“. Leiðbeiningar sem hann veitti hafi verið „netspjall að nóttu til“ og hann hafi ekki talið sig vera að svara formlega sem for- maður kjörstjórnar.     Afleiðingar þessara óformlegunætursvara Stefáns eru þær að keppnin á milli Sóleyjar og Þorleifs var ójöfn. Stuðningsmenn Sóleyjar fóru eftir allt öðrum reglum – ef reglur skyldi kalla – en stuðnings- menn Þorleifs. Þetta getur vel hafa ráðið úrslitum, en úr því fæst aldrei skorið. Er þetta ásættanleg nið- urstaða að mati VG? Silja Bára Ómarsdóttir Lýðræðislegar kosningar hjá VG? Stefán Pálsson Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 5 alskýjað Lúxemborg -4 skýjað Algarve 19 léttskýjað Bolungarvík 3 alskýjað Brussel -3 léttskýjað Madríd 9 léttskýjað Akureyri -3 léttskýjað Dublin 5 léttskýjað Barcelona 10 súld Egilsstaðir -8 heiðskírt Glasgow 4 léttskýjað Mallorca 10 skýjað Kirkjubæjarkl. 3 skýjað London 5 skúrir Róm 7 súld Nuuk -1 léttskýjað París -1 skýjað Aþena 11 skýjað Þórshöfn 4 skýjað Amsterdam -1 skýjað Winnipeg -23 skýjað Ósló -5 snjókoma Hamborg -4 snjókoma Montreal -6 léttskýjað Kaupmannahöfn -2 skýjað Berlín -4 skýjað New York 0 heiðskírt Stokkhólmur -2 skýjað Vín -3 alskýjað Chicago -3 snjókoma Helsinki -9 skýjað Moskva -8 snjókoma Orlando 17 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 10. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.32 3,2 10.52 1,2 16.51 3,0 22.59 1,1 9:40 17:45 ÍSAFJÖRÐUR 0.11 0,8 6.32 1,9 13.01 0,7 18.52 1,6 9:57 17:38 SIGLUFJÖRÐUR 2.04 0,6 8.19 1,2 14.57 0,4 21.35 1,1 9:40 17:20 DJÚPIVOGUR 1.43 1,6 7.57 0,7 13.44 1,4 19.52 0,5 9:12 17:12 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á fimmtudag, föstudag og laugardag Sunnan 5-8 m/s, skýjað og rigning eða súld öðru hverju um suðvestan- og vestanvert landið, en annars hægari suð- vestanátt og víða léttskýjað. Hiti 1 til 7 stig, 0 til 6 stiga frost á N- og A-landi, en hlýnar þar smám saman. Á sunnudag Gengur í norðanátt með snjó- komu norðantil á landinu, en annars úrkomulítið. Kólnar í veðri. Á mánudag Áframhaldandi norðanátt með snjókomu norðan- og aust- anlands. Frost um allt land. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt og víða létt- skýjað eða bjartviðri á NA- og A-landi, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta við suðurströndina og SV- lands. Hiti 1 til 7 stig, en vægt frost NA-lands. „ÞAÐ blasir við að ákvörðun ráðherra er ómál- efnaleg og í andstöðu við margra ára venju og góða stjórnsýsluhætti. Það er til samræmis við önnur vinnubrögð ráðherra að tefja mál. Synjunin er einungis til þess fallin að geðjast þröngum flokkshagsmunum Vinstri grænna sem ályktuðu í ágúst sl. um virkjanir við Þjórsá og fólu „þing- flokki og ráðherra VG að sjá til þess að ekki verði í þær ráðist“. Um leið tryggir ráðherra minni hag- vöxt en ella, meira atvinnuleysi, minni kaupmátt almennings og takmarkar getu ríkissjóðs og sveit- arfélaga til að verja velferðarkerfið í landinu.“ Þetta segir orðrétt í ályktun sem Samtök at- vinnulífsins hafa sent frá vegna ákvarðana Svan- dísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra að synja staðfestingar á aðalskipulagi tveggja sveitarfé- laga vegna virkjunarframkvæmda í neðri hluta Þjórsár. „Synjun ráðherra á aðalskipulagstillögunum getur haft margvísleg áhrif. Það vakna spurningar um gildi skipulagstillagna sem þegar hafa hlotið staðfestingu. Engin umfjöllun er um þetta í bréfi ráðherra þótt ljóst sé að verið er að breyta venju sem tíðkast hefur í mörg ár og hefur tekið til fjöl- margra skipulagstillagna sem staðfestar hafa ver- ið af ráðuneytinu. Einnig hljóta sveitarfélög að velta fyrir sér stöðu þeirra fjölmörgu mála sem unnið er að og hvaða áhrif synjunin hafi. Áhrif synjunar umhverfisráðherra eru þó mun víðtækari en þetta. Landsvirkjun hefur þegar sagt að frestað verði viðræðum við mörg erlend fyr- irtæki um orkusölu. Ekki munu heldur hefjast undirbúningsframkvæmdir við neðri hluta Þjórs- ár á næstunni. Þannig mun hægja á atvinnuupp- byggingu í landinu,“ segir í ályktun Samtaka at- vinnulífsins. sisi@mbl.is SA gagnrýna umhverfisráðherra  „Synjunin er einungis til þess fallin að geðjast þröngum flokkshagsmunum VG“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.