Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 26
26 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GARÐURINN LÍTUR EKKI MJÖG VEL ÚT ÞEGAR ÞÚ MINNIST Á ÞAÐ... ÞÁ ÆTTUM VIÐ KANNSKI AÐ SNYRTA ÞETTA EINA STRÁ OKKAR HREIN NAUTN! ÉG ER FARINN Í RÁNSFERÐ OG ÆTLA AÐ RÁÐAST INN Í VÍGGIRTAN KASTALA KONUNGSINS! VIÐ MUNUM BERJAST TÍU Á MÓTI EINUM! ÉG MUN MÆTA BOGUM, SPJÓTUM, ÖXUM OG SVERÐUM! ER EITTHVAÐ SÉRSTAKT SEM ÞÚ VILT SEGJA VIÐ MIG? JÁ... ÞEGAR ÞÚ KEMUR TIL BAKA SKALTU REYNA AÐ SETJA EKKI BLÓÐ Í TEPPIÐ GRÍMUR, HVAR VARSTU Í GÆRKVÖLDI? FÉKKSTU EKKI SKILABOÐIN FRÁ MÉR? NEI, ÞAÐ RIGNDI SVO MIKIÐ Í GÆR SKILABOÐIN ÞURRKUÐUST ÚT HJÓLAÐIR ÞÚ HINGAÐ? JÁ, ÉG ÆTLA AÐ GERA ÞAÐ Á HVERJUM DEGI HÉÐAN Í FRÁ ÉG ÆTLA AÐ SPARA BENSÍN OG HREYFA MIG! ÞETTA ER MIKLU BETRA EN AÐ FARA Í RÆKTINA! ÞAÐ ER NÚ SAMT STURTA Í RÆKTINNI HELDUR ÞÚ AÐ EINHVER SÉ AÐ NOTA VATNS- SLÖNGUNA ÚTI? HVAÐ HÆGIR Á OKKUR? VIÐ ERUM AÐ MISSA AF VULTURE! ÉG RÆÐ EKKI VIÐ ÞAÐ... ÞAÐ BÆTTIST VIÐ EINN LAUMUFARÞEGI ÞETTA ER HANN! Prófkjör í Kópavogi Framsóknarmenn í Kópavogi efna til próf- kjörs hinn 27. febrúar nk. Kosið verður í sex efstu sætin á framboðs- lista flokksins við sveit- arstjórnarkosningarnar sem fram fara 29. maí nk. Eftirtaldir bjóða sig fram í prófkjörinu: Alexander Arnarson, málarameistari og for- maður handknattleiks- deildar HK, Andrés Pétursson, skrifstofu- og fjármálastjóri og for- maður Blikaklúbbsins, Baldvin Sam- úelsson tryggingaráðgjafi, Birna Árnadóttir, varaformaður Mæðrastyrksnefndar Kópavogs, Einar Kristján Jónsson rekstr- arstjóri. Gestur Valgarðsson verk- fræðingur. Gísli Tryggvason, tals- maður neytenda. Kristján Matthíasson efnafræðingur. Ólöf Pál- ína Úlfarsdóttir kennari. Ómar Stef- ánsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs. Ragnhildur Konráðsdóttir ráðgjafi. Sigurjón Jónsson markaðs- fulltrúi Það má segja þeim framsókn- armönnum til hróss að meðal þeirra sem gefa kost á sér er enginn bæj- arstarfsmaður mér vitanlega utan einn. En það er sá sem mest hefur sig í frammi, Ómar Stefánsson. Ómar þessi er starfsmaður til fjölda ára á Kópavogs- velli og er sjálfsagt hinn mætasti starfsmaður auk þess að stunda há- skólanám. En hann er líka formaður bæjarráðs í Kópavogi og er þar með í lykilstöðu til að semja um kaup og kjör starfs- manna á Kópavogsvelli. Hann er því einn æðsti yfirmaður sjálfs sín á Kópavogsvelli. Mætti ekki fara fram á það við Ómar Stef- ánsson að hann yrði ann- aðhvort, bæjarfulltrúi eða starfsmaður Kópa- vogs. Ekki hvort tveggja. Enginn þjónar tveim herrum segir hin góða bók. Ég skora á Ómar Stefánsson að auka við það traust sem menn hafa á honum með því að vera bara annaðhvort í einu HALLDÓR JÓNSSON verkfræðingur. Hringur týndist GULLHRINGUR með tveimur steinum týndist á kvennasnyrting- unni á Domo laugardagskvöldið 6. febrúar. Hringurinn er eiganda mikils virði. Skilvís finnandi hafi samband í síma 6603788. Fundarlaun. Ást er… … að hoppa af kæti. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikf. kl. 8.30, vinnust. kl. 9, postulín. Grandabíó, útsk./ postulínkl. kl.13. Árskógar 4 | Handav., smíði/útsk. kl. 9, heilsugæsla kl. 10, söngstund kl. 11. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, leik- fimi kl. 10, verslunarferð kl. 13.40. Dalbraut 27 | Handavst. kl. 8, vefn. kl. 9, leikf. kl. 11. Listamaður mán.. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10, dans, söngur, gítarundirleikur kl. 14, söngfélag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30/10.30, glerlist kl. 9.30, félagsvist kl. 13, viðtalstími FEB kl.15-16, bobb kl. 16.30, línud. kl. 18, samkvæmisd. kl.19. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, leikfimi kl. 12.45, postulín og kvennabrids kl. 13, Sturlunga kl. 16, Arngrímur Ísberg les. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8 og 9, kvennaleikf. kl. 9.45, 10.30, 11.15, brids og bútasaumur kl. 13, skrán. til kl. 13 í dag á spila/ skemmtikv. í Garðaholti annað kvöld. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, tréútsk./handavinna, leikfimi kl. 10.30, undirbún. fyrir íþróttahátíð FÁÍA á öskudag í íþróttahús. v/Austurberg. Spilasalur opinn frá hád., helgistund á morgun kl. 10.30. Grensáskirkja | Samverustund í safn- aðarheimili kl. 14. Háteigskirkja | Brids í Setrinu kl. 13, komið saman um kl. 10, kl. 11 bænaguð- sþjónusta, veitingar kl. 12, brids kl. 13. Hraunbær 105 | Handavinna/ tréskurður kl. 9. Hraunsel | Rabb kl. 9, pútt kl. 10, bók- mennta/söguklúbb. kl. 10, línudans kl. 11, handavinna/útskurður kl. 13, píla kl. 13.30, bingó kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16, biljard í kjallara, op. virka daga kl. 9. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/9.30/ 10.30, vinnustofa kl. 9, samverustund kl. 10.30 lestur og spjall. Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Ókeypis aðstoð á tölvur í dag kl. 13.15, hláturjóga kl. 13.30, tónlistarkv. með Trausta Ólafs. annað kvöld kl. 20, Dieter-Fischer Disk- eau kynntur. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópavogs- skóla kl. 15.30. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfr. kl. 10.30, námsk. í glermálun kl. 13, myndlistarnámsk. kl. 13. Leshópur FEBK Gullsmára | Arngrímur Ísberg les Sturlungu í Gullsmára kl. 16. Neskirkja | Opið hús kl. 15. Þorvaldur Halldórsson syngur. Opið hús alla miðvd. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9, fé- lagsvist kl. 14. Vesturgata 7 | Sund kl. 10, mynd- mennt/postulín kl. 9, Bónus kl. 12, tré- skurður kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja opin allan daginn, morgunst. kl. 10, versl- unarferð kl. 12.20, framh.saga 12.30, bókband, ball kl. 14, Vitatorgsbandið. Vísnavinurinn Ólafur G. Ein-arsson sendir þættinum kveðju: „Þakka öll „vísnahornin“ sem ég les ætíð mér til ánægju. Þú hefur að undanförnu komið með ýmsar snjallar vísur um Esjuna. Ef til vill hefur þú birt þessa sem hefur þá farið fram hjá mér. Hún er eftir Friðjón heitinn Þórðarson. Hann átti oft leið um Esjurætur á sínum mörgu ferðum vestur í Dali. Friðjón sá að haustið var að halda innreið sína: Haustsins komu kenna má, kólna raddir blíðar. Nú er hún Esja orðin grá ofan í miðjar hlíðar. Ingólfur Ómar Ármannsson fór á þorrablót um helgina og sendir Vísnahorninu kveðju: Ölið kæra léttir lund, linku burtu hrekur; glæðir fjör á góðri stund, glóð í huga vekur. Brennivínið mýkir mig, magnar gleði ríka, stundum er gaman að staupa sig og stefja vísu líka. Björn Ingi Finsen sendi póst með vísu Þórbergs Þórðarsonar: Esjan er yndisfögur utan úr Reykjavík. Hún ljómar sem litfríð stúlka í ljósgrænni sumarflík. Og vísu Gests Guðfinnssonar: Mikið lifandis ósköp er Esjan ljót að aftan jafnt sem framan; að skakklappast þar um skriður og grjót er skelfing leiðinlegt gaman. Vísnahorn pebl@mbl.is Af Esju og þorra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.