Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 30
Sími 462 3500 Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Nine kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Cloudy with a chance of meatballs 2D kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Skýjað með kjötbollum á köflum 2D kl. 5:50 LEYFÐ Harry Brown kl. 10:35 B.i. 16 ára The Road kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 6 LEYFÐ Julie and Julia kl. 8 LEYFÐ Edge of Darkness kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Meurtriéres með enskum texta kl. 6 LEYFÐ Skýjað með kjötbollum á köflum kl. 6 LEYFÐ It‘s Complicated kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára Nine kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ It‘s Complicated kl. 8 - 10:35 B.i.12 ára Mamma Gógó kl. 6 - 8 LEYFÐ Avatar 3D kl. 10:10 B.i.10 ára Skýjað með kjötbollum á köflum 3D kl. 5:50 LEYFÐ Nikulás litli kl. 6 - 10 LEYFÐ Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum HHH -Þ.Þ., DV SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í REGNBOGANUM HHHH -S.V., MBL FRÁ HÖFUNDI „NO COUNTRY FOR OLD MEN” KEMUR ÞESSI MAGNAÐA MYND HHH -Á.J., DV SÝND Í REGNBOGANUM TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA HHHH -H.S., MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI HHHH „Frábær fjölskyldumynd!” - IG, Mbl Nú með íslenskum texta BYGGÐ Á METSÖLUBÓKUNUM EFTIR GOSCINNY OG SEMPÉ Frá höfundi/leikstjóra SOMETHING´S GOTTA GIVE Fráskilin... með fríðindum TILNEFND TIL 3 GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM ÞAR Á MEÐAL BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI - PENÉLOPE CRUZ HHH -T.V., Kvikmyndir.is HHH Washington Post HHH H.S.S. - MBL HHH „Nine er fín skemmtun, fyrir minn smekk betri en Chicago...” H.G. - MBL HHH T.V. - Kvikmyndir.is Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Bernard-Henri Levy er einnþekktasti gáfumaðurFrakka. Hann er einnig um- deildur eins og títt er um gáfumenn og er ekki að undra að hlakkað hafi í mörgum þegar í ljós kom að Levy hafði látið teyma sig á asnaeyr- unum og vitnað í heimspeking, sem ekki er til. Í bók sinni „De la guerre en philosophie“ (Um stríðið í heim- spekinni) vitnar Levy í heimspek- ing að nafni Jean-Baptiste Botul, sérfræðing í þýska heimspek- ingnum Immanuel Kant. Eini gall- inn er sá að Botul er ekki til. Hann er hugarfíkja Frederics Pages, sem er blaðamaður á háðsádeildu- blaðinu Canard Echaine. Levy viðurkenndi á mánudag að hann hefði iðulega vitnað í verk Botuls, „Kynlíf Immanuels Kants“, þegar hann hefði komið fram op- inberlega og í nýjustu bók sinni. „Í ljós er komið að þetta var hrekk- ur,“ skrifaði Levy í grein á vefsíðu tímarits síns, La Regle du Jeu. „Þetta var sannarlega snilldarlegur og mjög trúverðugur hrekkur úr kolli blaðamanns Canard Enchaine, sem er góður heimspekingur hvað sem öðru líður … Þannig að ég gekk í gildruna rétt eins og gagn- rýnendur, sem skrifuðu um bókina þegar hún kom út. Því er aðeins við að bæta að ég erfi það ekki og lista- maðurinn á hrós skilið.“    Levy hélt ótrauður sínu striki ísjónvarpsviðtali í Canal+ og sýndi enga iðrun. Kvaðst hann allt- af hafa dáð bókina „Kynlíf Kants“ og röksemdafærslan væri skotheld hver sem höfundurinn væri. Levy segir í bók sinni að Kant hafi verið „snargalinn“ og „lodd- ari“ og Botul sannað að Kant væri „hreinn andi hreinnar sýndar“. Aude Lancelin, blaðamaður á vikuritinu Le Nouvel Observateur, kom auga á glappaskot Henrys og líkti tilvitnunum í Botul við kjarn- orkuslys, sem vekti efasemdir um aðferðir Levys. Lancelin sagði í samtali við Lundúnablaðið The Times að hún væri gáttuð á því að enginn af blaðamönnunum, sem hefðu rennt út rauða dreglinum fyrir Levy, hefði tekið eftir því að í bókinni væru tvær síður þar sem höfundurinn notaði heimspeking, sem ekki væri til, í því skyni að færa sönnur á mál sitt. „Ég rakst á þessar tilvitnanir í Botul og sprakk úr hlátri,“ segir hún. Blaðamaður The Times, Charles Bremner, telur að Levy hefði átt að átta sig, þó ekki væri nema vegna titils hins skáldaða heimspekings Botuls. Þá hafi í færslu um Botul á Wikipediu verið tekið fram að heimspekingurinn væri skáld- skapur. Þess utan beri kenningar hans heitið háspeki hins holduga og talað sé um botulisma, en það orð er notað um eitrun af völdum bakt- eríunnar clostridium botulinum sem algengast er að verði við neyslu matar, sem mistök hafa orð- ið við að sjóða niður í heimahúsum. Levy hefur iðulega verið gagn- rýndur fyrir hroðvirknisleg vinnu- brögð. Í bókinni „Hver myrti Daniel Pearl“ frá 2003 fjallar hann um morðið á blaðamanni Wall Street Journal og morðingja hans með at- hyglisverðum og upplýsandi hætti. Margt er hins vegar ónákvæmt og illa unnið í bókinni og iðulega fer hann beinlínis rangt með. Í hitti- fyrra birti hann frásögn af ferð sinni til Georgíu meðan á stríðinu við Rússa stóð og sögðu frönsk blöð að þar hefðu verið tilvitnanir, sem hann hefði búið til.    Fölsk fræði eru ekki ný af nál-inni. Í The Times er rifjað upp þegar William Boyd skrifaði ævi- sögu Nats Tates, listamanns í New York, sem hann hafði búið til. Tate átti að hafa verið vinur Picassos og ástmaður Peggy Guggenheim, sem brenndi öll sín verk og fyrirfór sér. Í útgáfusamkvæminu mun fólk hafa tautað að það hafi ekki þekkt Tate vel, en enginn var tilbúinn að við- urkenna að hafa aldrei heyrt mannsins getið. Þekkt er þegar eðlisfræðipró- fessorinn Alan Sokal við New York University sendi grein með nafninu „Towards a Transformative Hermeneutics of Quantum Gravity“ til birtingar í fagtímariti um menn- ingarfræði, Social Text. Ritstjórn tímaritsins gerði sér ekki grein fyr- ir að greinin var þvættingur og skrifuð til þess að hæðast að stíl- brögðum í póstmódernískri gagn- rýni á vísindi. kbl@mbl.is Gáfumaður gekk í vatnið AF LISTUM Eftir Karl Blöndal » Í bók sinni vitnarLevy í heimspeking að nafni Jean-Baptiste Botul, sérfræðing í þýska heimspekingnum Immanuel Kant. Eini gallinn er sá að Botul er ekki til. Heimspekingurinn Það gustar af Bernard-Henri Levy, en hann gáði ekki að sér þegar hann vitnaði í skrif uppdiktaðs heimspekings um Kant. Hrein vitleysa Háðið snerist um heimspeki Immanuels Kants.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.