Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 25
Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Sudoku Frumstig 8 2 6 3 7 4 8 1 3 8 7 2 8 1 3 7 1 3 8 2 5 4 7 1 7 4 5 7 2 4 3 7 4 2 3 1 3 4 8 1 9 6 1 7 2 6 9 3 7 8 4 2 6 7 1 2 9 2 6 8 5 8 9 5 2 6 5 7 1 6 6 1 4 7 9 8 4 7 2 1 4 8 7 9 3 5 2 6 3 6 7 2 8 5 9 4 1 9 5 2 6 4 1 7 3 8 4 8 3 9 2 7 6 1 5 6 7 1 3 5 8 2 9 4 2 9 5 1 6 4 3 8 7 8 1 9 5 3 6 4 7 2 7 2 6 4 1 9 8 5 3 5 3 4 8 7 2 1 6 9 4 5 1 2 7 9 8 3 6 8 7 3 6 4 1 5 9 2 2 9 6 8 3 5 1 7 4 9 6 8 4 1 3 2 5 7 7 1 4 5 2 6 9 8 3 3 2 5 9 8 7 4 6 1 1 8 9 7 6 2 3 4 5 6 4 2 3 5 8 7 1 9 5 3 7 1 9 4 6 2 8 8 5 3 6 2 9 4 7 1 2 7 6 8 4 1 9 3 5 1 9 4 7 3 5 2 6 8 9 1 2 4 8 3 6 5 7 5 4 7 1 9 6 8 2 3 3 6 8 5 7 2 1 9 4 6 8 1 9 5 7 3 4 2 4 2 5 3 6 8 7 1 9 7 3 9 2 1 4 5 8 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 10. febrúar, 41. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Kærleikurinn er lang- lyndur, hann er góðviljaður. Kærleik- urinn öfundar ekki. (I. Kor. 12, 4.) Þýski fótboltinn er ekki fyrirferð-armikill á ratsjá íslenskra sparkunnenda, enda langt síðan Lár- us Guðmundsson hefur fengið að lýsa leik í þýsku deildinni í íslensku sjón- varpi. Þeir sem hafa aðgang að þýsku ríkissjónvarpsstöðvunum geta hins vegar fylgst með og undir kvöldmat á laugardögum eru sýndir vænir kaflar úr leikjum dagsins í þætti, sem heitir Sportschau. x x x Þjóðverjar voru að gera uppkeppnistímabilið 2008-2009 og mega vera ánægðir. Á meðan skuld- um hlaðin ofurlið í öðrum löndum halda áfram dæla út peningum fyrir stórstjörnur er rekstur Þjóðverjanna til fyrirmyndar þrátt fyrir kreppu og vekur meira að segja athygli banda- rískra fjölmiðla á borð við New York Times. Þar kemur fram að hvergi í heiminum er jafngóð aðsókn eða tæplega 42 þúsund manns að með- altali á leik, rúmlega 348 milljarða króna í tekjur, miðaverðið er að með- altali 3.600 krónur, en 7.700 á Eng- landi. Þrjú lið hafa orðið meistarar á undanförnum þremur árum og þrjú önnur lið bikarmeistarar. Spennan er meiri og það kann að hafa sitt að segja um áhugann. Eftir leiki helg- arinnar skilja níu stig fimm efstu lið- in að í Þýskalandi, en 15 stig á Eng- landi og Ítalíu og 19 stig á Spáni. Á móti kemur að velgengni þýskra liða hefur verið takmörkuð á alþjóðlegum vettvangi. Þýskt lið hefur ekki kom- ist í úrslit meistaradeildar Evrópu síðan Leverkusen tapaði fyrir Real Madrid 2002. x x x Í tíu ár hafa þýsku félögin veriðskylduð til að reka fótboltaaka- demíur fyrir unga leikmenn. Fimm þúsund leikmenn hafa farið þar í gegn og það virðist vera að skila sér. Þjóðverjar eru nú Evrópumeistarar í aldursflokkunum undir 17 ára, undir 19 ára og undir 21 árs. Kostnaðurinn við að reka þessar búðir er 3,5 millj- örðum króna undir verðmiðanum á Ronaldo, fullyrðir Christan Pfennig, framkvæmdastjóri búndeslígunnar, og það þarf ekki að spyrja hvort skil- ar meiru. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vafasöm, 4 hand- sömum, 7 þýðanda, 8 nag- dýrs, 9 litla tunnu, 11 svara, 13 fíkniefni, 14 ganga, 15 gljálaust, 17 uppspretta, 20 agnúi, 22 heysáta, 23 fuglar, 24 beiskt bragð, 25 geta neytt. Lóðrétt | 1 háski, 2 drengs, 3 naum, 4 fram- kvæmt, 5 seðja hungur, 6 skordýrs, 10 óhreinka, 12 rödd, 13 mann, 15 horaður, 16 munnum, 18 sér eftir, 19 rudda, 20 verma, 21 landabréf. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 uggvænleg, 8 flaut, 9 ragna, 10 net, 11 rétta, 13 auðug, 15 vaska, 18 lifur, 21 frí, 22 staur, 23 tíran, 24 blákaldur. Lóðrétt: 2 glatt, 3 vatna, 4 narta, 5 eggið, 6 afar, 7 laug, 12 tak, 14 uni, 15 vasi, 16 svall, 17 afrek, 18 lítil, 19 fornu, 20 rann. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 dxc4 5. e3 a6 6. a4 c5 7. Bxc4 Rc6 8. 0-0 Be7 9. d5 exd5 10. Rxd5 Rxd5 11. Bxd5 Rb4 12. Bc4 0-0 13. Db3 Bf6 14. Bd2 Rc6 15. Bd5 Ra5 16. Da2 Db6 17. Hac1 Bf5 18. e4 Bg4 19. e5 Be7 20. Rg5 c4 21. Be3 Dg6 22. Be4 Bf5 23. Db1 Bxe4 24. Rxe4 b5 25. f4 Rb3 26. f5 Dc6 27. f6 Bc5 28. Rxc5 Rxc5 29. fxg7 Hfd8 30. Df5 Hd7 31. Hf4 Had8 32. Hcf1 Rd3 Staðan kom upp á Kornax-mótinu, Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk fyr- ir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Halldór G. Einarsson (2.260) hafði hvítt gegn Ólafi Gísla Jónssyni (1.872). 33. Hd4! De6 svart- ur hefði orðið mát eftir 33. …Hxd4 34. Dxf7#. 34. Dxe6 fxe6 35. Bh6! og svartur gafst upp enda getur hann ekki varist máti. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1390. Norður ♠– ♥ÁD109853 ♦G96 ♣D53 Vestur Austur ♠KD109843 ♠ÁG75 ♥642 ♥K ♦4 ♦1075 ♣42 ♣K10987 Suður ♠62 ♥G7 ♦ÁKD832 ♣ÁG6 Suður spilar 6♦. Keppnismenn þekkja vel töluna 1.370, sem eru verðlaunin fyrir að segja og vinna láglitaslemmu á hættunni. Þau pör í tvímenningi Bridshátíðar sem náðu 6♦ uppskáru 86% skor fyrir tólf slagi. Það er nokkuð mikið fyrir svo sterkt spil, en slemman reyndist tor- sögð vegna spaðameldinga A-V. Flestir spiluðu hjartageim eða dobluðu A-V í spaðafórn. Eitt par fékk hins vegar 1.390. Þegar sú tala er túlkuð virðist blasa við að samningurinn hafi verið 6♦ og að sagnhafi hafi fengið yfirslag með því að fella ♥K blankan. Þessi túlkun er aðeins að hálfu leyti rétt. Sagnhafi felldi hjartakónginn og náði þess vegna öllum slögunum, en samningurinn var ekki 6♦ heldur 4♥ dobluð. Þrír yfirslagir í því spili gefa einmitt 1.390. Það gerist margt furðulegt í 118 para móti. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú veltir peningamálum fyrir þér. Ekki slæmt! Í kvöld skaltu fara út á með- al fólks. Óvæntar fréttir koma erlendis frá. Haltu ró þinni, þetta fer allt vel. (20. apríl - 20. maí)  Naut Réttu hjálparhönd en af kostgæfni og fyllilega meðvitað. Einhverjir ákveða að gefa frá sér eigur, hætta í vinnu eða slíta sambandi innan tíðar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Mundu að allt hefur sinn tíma og það hefur ekkert upp á sig að beita þrýst- ingi. Hikaðu ekki við að biðja vini þína um hjálp við flutninga eða umbætur á heim- ilinu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert hvorki betri né verri en þú vilt vera og átt því að horfast í augu við sjálfan þig. Ef þú hefur ekki tekið eftir því, þá ert þú jafn hæf/ur og allir aðrir. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Persónutöfrarnir ráða ríkjum. Ekki vera hrædd/ur við að viðurkenna galla þína, þú ert mannleg/ur. Órói í þjóðfélag- inu hefur áhrif á sálarlíf þitt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert orðinn þreyttur á útliti þínu og ættir bara að láta það eftir þér að breyta til. Farðu í klippingu og láttu dekra svolítið við þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Foreldrum er ráðlagt að gæta vel að börnum sínum í dag. Njóttu athyglinnar en láttu allt oflæti lönd og leið. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert enn og aftur beðin/n um að leysa deilumál, en þér leiðist það. Reyndu samt að láta ekki á neinu bera. Þér fer þetta vel úr hendi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú biður engan að gera neitt sem þú myndir ekki gera sjálf/ur. Gefðu þér allan þann tíma sem þú þarft til að leysa vandamál sem upp kemur. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Mikill áhugi þinn á vissu mál- efni er misskilinn sem áhugi á persónu sem veit mikið um málefnið. Hafðu þetta í huga. Misskilningur kemur upp milli ást- vina. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú gætir lært margt á því að skoða sambönd þín við vini og vanda- menn. Láttu þína eigin sannfæringu ráða og þá fer allt vel. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Hæfileikar þínir koma upp á yf- irborðið. Jafnvel þó að þú viljir ekki ást- arsamband er gott að eignast nýjan vin. Óvæntur vinningur fellur þér í skaut. Stjörnuspá 10. febrúar 1944 Þrjár þýskar flugvélar vörp- uðu sprengjum að olíuskipinu El Grillo sem lá á Seyðisfirði og sökk það. Þetta var tíu þús- und tonna skip. Lengi hefur verið glímt við olíuleka úr flakinu. 10. febrúar 1959 Kýrin Krúna á Öndólfsstöðum í Þingeyjarsýslu bar fjórum kálfum, en ekki var vitað að það hefði gerst hér áður. 10. febrúar 1962 Togarinn Elliði frá Siglufirði sökk undan Öndverðarnesi. Tuttugu og sex skipverjum var bjargað á síðustu stundu um borð í Júpíter en tveir fór- ust. 10. febrúar 1966 Níunda sinfónía Beethovens var flutt í fyrsta sinn hér á landi. Sinfóníuhljómsveitin og Söngsveitin Fílharmónía fluttu verkið undir stjórn Ró- berts Abrahams Ottóssonar. „Tímamót í tónlistarflutningi á Íslandi,“ sagði Morg- unblaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Kolfinna Veigarsdóttir og Ólöf Dagmar Guðmundsdóttir héldu tombólu í Verslunarmiðstöðinni Neistanum á Ísafirði, til styrktar fólkinu á Haíti. Þær söfnuðu 3.250 kr. sem þær færðu Rauða kross- inum. Hlutavelta „Þetta verður annasamur dagur í störfum,“ seg- ir Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, sem verður fimmtíu og fimm ára í dag. Ólafur kennir tvö námskeið við háskólann á þessu misseri, og vill svo til að kennsla verður í þeim báðum á afmælisdaginn. Aðspurður hvort hann ætli að gera eitthvað sérstakt til að halda upp á afmælið segir Ólafur: „Ég geri ekki mikið með eigin afmæli en reikna með að örfáir vinir komi í kaffi eða þiggi rauð- vínsglas. Þegar afmæli stendur á heilum tug hef ég efnt til veislu, síðast þegar ég varð fimmtugur. Þá bauð ég allmörgu fólki til að fagna þeim áfanga með mér og var það ánægjulegt að öllu leyti. Annars þykir mér merkilegast að þegar þessi dagur rennur upp hefur birt- an sigrað skammdegið og fólk gengur til náms og starfa í björtu. Vorið ber hratt að.“ Auk kennslunnar verður deginum að sögn Ólafs eins og öðrum dögum í lífi háskólakennara varið í að ýta áfram ritsmíðum og öðr- um verkefnumhlynur. orri@mbl.is Ólafur Ísleifsson, 55 ára Kennir á afmælisdaginn Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.