Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Verðhrun 60-80% afsláttur LIONS KLÚBBURINN EIR REYKJAVÍK ÓLAFUR ÞORSTEINSSON EHF • DÚKARINN ÓLI MÁR • RAFSTJÓRN • DOMO ÞINGHOLTSSTRÆTI 5 SÍMI 5525588 SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING Í kvöld, miðvikudaginn 10.febrúar kl.20.00 í Háskólabíó ALLUR ÁGÓÐI SÝNINGARINNAR RENNUR TIL LÍKNARMÁLA ÞÖKKUM STUÐNINGINN HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 25 ára gamlan karl- mann, Jón Óskar Auðunsson, í tveggja ára fangelsi fyrir að hella bensíni yfir bíl á bílastæði í Reykja- vík og kveikja í. Maðurinn var talinn hafa valdið almannahættu með þessu athæfi sínu. Þetta gerðist í október árið 2008 á bílastæði við Leifsgötu. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en ekki kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hvað manninum gekk til. Bíllinn, sem hann kveikti í, var fast við íbúðarhús og við hlið annars bíls. Segir dómurinn að manninum hafi mátt vera ljóst að íkveikjan mundi hafa í för með sér augljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna. Maðurinn var ákærður fyrir að valda almannahættu. Fengnir voru matsmenn sem komust að þeirri nið- urstöðu, að telja mætti öruggt að íkveikjan hefði leitt til almanna- hættu að því er varðaði umfangs- mikla eyðingu á tveimur bílum og einnig á húseigninni og lausa- fjármunum á Leifsgötu 22 hefði eld- urinn brunnið áfram og borist inn í húsið í kjallara og á 1. hæð. Hins vegar töldu matsmennirnir ekki, að íbúar í húsinu og næsta húsi hefðu verið í hættu. Maðurinn hefur áður verið níu sinnum sektaður fyrir umferð- arlagabrot og þrisvar sinnum svipt- ur ökurétti. Eftir að hann kveikti í bílnum hefur hann verið sektaður fyrir skemmdarverk og í maí á síð- asta ári var hann dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og rétt- indaleysi við akstur og sviptur öku- rétti í 3 ár og 6 mánuði. Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju Talinn hafa valdið almannahættu Í LJÓSI þess að stjórnvöld og fjár- málastofnanir hafa daufheyrst við kröfum Hagsmunasamtaka heim- ilanna er nú boðað til ótímabundins greiðsluverkfalls frá 19. febrúar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá geiðsluverkfallsstjórn samtakanna. „Þúsundir heimila standa nú frammi fyrir því að geta ekki sam- tímis greitt af íbúðarlánum og brauðfætt fjölskyldu sína. Þeim fjölgar einnig sem ekki sjá glóru í því að borga af stökkbreyttum lán- um sem eru hærri en verðmæti íbúðarinnar og vonlaust að greiða nokkurn tíma upp,“ segir í yfirlýs- ingunni. Samtökin segja úrræði ríkisstjórnarinnar vegna greiðslu- erfiðleika ekkert annað en sjón- hverfingar til að halda fólki í gísl- ingu „sem galeiðuþrælum fjármálakerfisins“. Kröfur samtak- anna má finna á slóðinni heimilin.is. Tímabundið greiðsluverkfall STÝRIBÚNAÐUR umferðarljósa á gatnamótum Njarðargötu og Hring- brautar verður uppfærður fyrir há- degi í dag. Vegna tengivinnu verða ljósin gerð óvirk tímabundið frá kl. 09:30, en áætlað er að verkið taki um þrjár klukkustundir. Meðan ljósin eru óvirk verður frá Njarðargötu eingöngu heimilt að taka hægri beygjur, en akstur þvert yfir Hringbraut verður bannaður, sem og allar vinstribeygjur á gatna- mótunum. Beinar akstursleiðir um Hringbraut eru opnar, en hámarks- hraði takmarkast við 30 km yfir gatnamótin meðan umferðarljós eru óvirk. Ítrekað er við vegfarendur að þeir virði hraðatakmarkanir. Gatnamótin eru með þeim fjölfarnari í borginni og með breytingum er verið að huga að öryggisþáttum. Ljósastýringu fyrir vinstri beygjurnar af Njarðargötu verður breytt þannig að þær verða ekki samtímis og gildir það sama fyrir gagnstæðar akstursstefnur á Njarðargötu. Snertihnappar fyrir gönguljós verða með titringi og hljóði. Morgunblaðið/Kristinn Umferðarljós gatnamóta endurbætt HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur hafnað kröfu fréttastjóra og fréttamanns Stöðvar 2 um að heim- ildarmaður þeirra fyrir frétt um fjármagnsflutn- inga Björgólfs Thors Björgólfs- sonar, Björgólfs Guðmundssonar og Magnúsar Þorsteinssonar fái að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í málinu án þess að nafn hans komi fram. Þremenningarnir stefndu þeim Gunnari Erni Jónssyni og Óskari Hrafni Þorvaldssyni fyrir meiðyrði. Í úrskurði dómsins er haft eftir lög- manni blaðamannanna, að ummæl- in í fréttinni hafi byggst á upplýs- ingum frá heimildarmanni. Blaðamennirnir eigi afar brýna hagsmuni af því að heimildarmað- urinn gefi skýrslu um málsatvik fyrir dóminum, en hann muni ekki gefa skýrslu fyrir dóminum, nema slík skýrslugjöf fari fram einslega fyrir dómara og þá án þess að nafn hans verði tilgreint í dómi eða gefið upp öðrum en dómara og votti. Lögmenn þeirra, sem höfðuðu málin gegn blaðamönnunum, töldu þessa kröfu ekki eiga sér neina stoð í lögum en hún bryti hins vegar gegn mörgum ákvæðum íslenskra laga, sem og gegn ákvæðum mann- réttindasáttmála Evrópu um rétt- láta málsmeðferð. Dómurinn tók undir þau sjón- armið og sagði, að krafan fæli í raun í sér útilokun annarra en blaðamannanna sjálfra til að spyrja vitni nokkurs sem máli gæti skipt. Ef fallist yrði á kröfuna væri að- ilum máls þessa verulega mis- munað og þannig brotið gegn rétti Björgólfsfeðga og Magnúsar. Fær ekki að gefa einkaskýrslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.