Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.02.2010, Blaðsíða 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 1. Dýpsta lausa- fjárkrísa fjármála- sögunnar Íslensku bankarnir lentu í efnahagslegu fárviðri eins og aðrir bankar heims þegar lausafjármarkaðir botnfrusu í kjölfar falls Lehman Brothers Bank 15. september 2008. Lausafjárþurrðin leiddi til gjaldeyriskreppu hér á landi sem jók vandann, bæði við úrvinnslu lausa- fjárstöðu og vegna neikvæðra áhrifa á gæði eigna og veða bankanna. Þá var ekki fært vegna stærðar kerf- isins að veita bakstuðning sem leiddi til kerfishruns á Íslandi með tilheyr- andi keðjuverkun eigna- og útlána- taps. Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur ítrekað nú í haust minnt á að alfrost á lausafjármarkaði líkt og það sem varð eftir fall Lehmans, 15. sept- ember 2008, hefði ekki orðið frá því í bankakreppunni miklu árið 1907. Í heimskreppunni 1929/30 var laust fé áfram í umferð þótt vextir hækkuðu. Ben Bernanke, núverandi seðla- bankastjóri, hefur sagt að fjár- málakerfi heimsins hefðu hrunið í heild sinni ef allsherjarinngrip ríkja og seðlabanka hefðu ekki komið til haustið 2008. Atburðarásin, sem kom fram af fullum þunga hér í lok sept- ember og byrjun október, verður ekki skýrð nema hafa þetta alvarlega heimsástand í huga. 2. Uppgjör og endurskoðun Eins og fram hefur komið op- inberlega áður, var sú sérstaka var- færni viðhöfð af hálfu Landsbankans og ytri endurskoðanda bankans, að sérstakir fulltrúar Pricewaterhouse- Coopers, Bretlandi (PwC London) veittu sérstaka fagráðgjöf við endur- skoðun bankans vorið 2008. Þannig að auk venjubundinnar endurskoð- unar ytri endurskoðenda bankans fyrir síðasta heila starfsár bankans komu færustu erlendir sérfræðingar að þeirri endurskoðun. 3. Upplýsingagjöf um lausafjárstöðu Upplýsingagjöf um laust fé var óbreytt frá mars 2006, þegar bank- inn veitti þessar upplýsingar fyrst. Veittar voru upplýsingar ársfjórð- ungslega um fé sem var laust næstu 12 mánuði til að mæta umsömdum skuldbindingum þá 12 mánuði. Til lausafjár var því talið: beint laust fé, innistæður, auðselj- anleg verðbréf, samn- ingsbundnar greiðslur, auk eigna sem nýta mátti til endurhverfra viðskipta eða sölu. Það fé var ekki allt tiltækt samstundis í erlendri mynt og enginn banki stýrir lausafé þannig. Landsbankinn greip til umfangsmikilla að- gerða til að bregðast við lausa- fjárkreppunni allt árið 2008. Þannig minnkaði efnahagsreikningurinn um 4% fyrri helmingi ársins 2008, bank- inn breytti langtímaeignum í eignir til endurhverfra viðskipta og dreifði innlánakerfi sínu, bæði land- fræðilega og með því að auka bundin innlán. Bankinn jók gjaldeyrisvogun eiginfjár í góðri sátt við Seðlabank- ann og aðalfundur bankans 2008 samþykkti að enginn arður yrði greiddur út og útgáfu breytilegs skuldabréfs upp á 500 milljónir evra til að afla lausafjár. Landsbankinn átti því verulegt lausafé í íslenskum krónum og skuldabréfum sem hæf voru til end- urhverfra viðskipta þegar útflæði hófst af innlánsreikningum erlendis fyrstu daga október 2008. Ekki var fært að skipta þessum fjármunum yfir í erlendan gjaldeyri til að mæta því útflæði þegar á reyndi. Jafnframt var bankinn á lokastigi undirbúnings að breyta stórum erlendum lánasöfn- um í lausafé hina örlagaríku daga í byrjun október 2008. Þá átti Lands- bankinn verulegar fjárhæðir í er- lendum gjaldmiðlum hjá íslenskum fagfjárfestum. Þetta fjármagn hefði allt verið tiltækt á fáum dögum við eðlilegar aðstæður, en enginn banki getur mætt meiriháttar áhlaupi á innlán og það vissu allir markaðs- aðilar. Um þessa upplýsingagjöf var ekki uppi neinn misskilningur hjá markaðsaðilum. 4. Efnahagsleg áhrif og endurheimtuhlutfall eigna Tjónið af efnahagshruninu eins og það birtist hjá fyrirtækjum og lög- aðilum á innlendum markaði er mjög mismunandi. Það ræðst m.a. af neyð- arlögunum, en ekki endilega af áhættustöðu einstakra fyrirtækja eins og hún var fyrir atburðina í október 2008. Minna má á í því sam- bandi, að tjónið vegna kreppunnar hefur víða komið fram, og varð mikið í öllum hagkerfum. Vegna umræðu um afleiðingar at- burðanna skal tekið fram að Lands- bankinn skuldaði Seðlabanka Íslands ekki neina fjármuni, hvorki í krónum né í öðrum gjaldmiðlum, þegar leitað var lausafjárstuðnings í erlendri mynt 5. október 2008. Vænt endurheimtuhlutfall krafna á hendur Landsbankanum er meðal þess sem best verður meðal ís- lenskra banka. Ályktanir um gæði eigna út frá því sem verður til greiðslu skuldabréfakrafna, erlendra vogunarsjóða og banka, eru rangar vegna þess að rétthærri kröfur eins og innlán voru hlutfallslega hærri hjá Landsbankanum en öðrum íslensk- um bönkum. Ekki ber að dæma alla al- þjóðavæðingu íslensks atvinnulífs með sama hætti. Gera verður grein- armun á alþjóðavæðingu í starfsemi bankanna sjálfra annars vegar og viðskiptavina þeirra hins vegar. Rekstrarlega má rekja meginvand- ann til hins síðarnefnda, þ.e. mistaka í fjárfestingum skuldsettra eign- arhaldsfélaga og lána til hlutafjár- kaupa, auk hinna alþjóðlegu áfalla sem fyrr er vikið að. Aðgangur þess- arar aðila að fjármagni var of greið- ur. 5. Staðreyndir um Icesave Nauðsynlegt er að leiðrétta rang- færslur í opinberri umræðu um Ice- save, þ.m.t. nýlegar yfirlýsingar full- trúa Seðlabanka Hollands.  Innlánastarfsemi Landsbank- ans utan Íslands var ekki hafin sem viðbrögð við erfiðleikum í annarri fjármögnun, heldur sem eðlileg áhættudreifing í fjármögnun.  Ekki var verið að sækja fjár- magn í nýju landi einu og sér heldur var ávallt verið að fylgja eftir banka- starfsemi sem þegar var hafin með útlánum til fyrirtækja sem störfuðu í viðkomandi landi.  Móttaka innlána í Hollandi vor- ið 2008 fól í sér framkvæmd á lang- tímastefnumótun. Útlán til fyr- irtækja í Hollandi hófust tveim árum áður eða árið 2006  Seðlabanki Hollands gerði eng- ar athugasemdir varðandi innláns- starfsemina, sem reyndar var byggð á sama grunni og alþjóðleg innláns- starfsemi hollenska bankans ING, fyrr en í ágúst 2008.  Um leið og Seðlabanki Hol- lands kallaði eftir tillögum bauðst Landsbankinn til að greiða allt sem safnaðist eftir þann dag inn á trygg- ingarreikning hjá Seðlabanka Hol- lands. (Samtals EUR 600m eða rúm- ir 100 milljarðar ISK.) Fulltrúar Seðlabanka Hollands hafa í engu vik- ið að þessu ábyrga tilboði Lands- bankans sem var ekki einu sinni svarað. Engar upplýsingar voru veittar sem breyttu þessu.  Áhyggjur seðlabankastjórans lutu að stöðu íslensks efnahagslífs og stærð fjármálakerfisins í heild og ekki að Landsbankanum sér- staklega. Hann tók að eigin frum- kvæði fram að ef kerfislægir erf- iðleikar kæmu upp væri staða tryggingasjóða innlána ekki til um- ræðu, því þeim væri ekki ætlað hlut- verk við þær aðstæður. 6. Umræður í Hollandi Allir aðilar á fjármálamarkaði höfðu áhyggjur af stöðunni eftir því sem leið á árið 2008 og vafalaust hafa allir seðlabankastjórar heims deilt þeim áhyggjum hver með öðrum á Basel-fundinum í byrjun september 2008. Samtal seðlabankastjóra Ís- lands og Hollands, sem hinn síð- arnefndi hefur nú sagt frá op- inberlega, var vafalaust eitt fjölmargra sambærilegra samtala á þeim fundi og gat varðað nánast öll fjármálakerfi heims. Umræður í Hollandi bera þess merki að seðlabankastjóri Hollands er nú að svara fyrir það að honum tókst ekki að sjá fyrir né fyrirbyggja fall hollenskra banka sem endaði með víðtækri þjóðnýtingu innan þess kerfis. Þá hefur seðlabankastjórinn verið sakaður um að leyna upplýs- ingum um tiltekinn banka um mán- aða skeið þetta sama haust. Seðla- bankastjóri Hollands var þó í þeirri einstöku stöðu að hafa fjármálaeft- irlit sem hluta af seðlabankanum. Aðspurður um þessa staðreynd sagði hann orðrétt fyrir þingnefnd 2. þ.m.: „Enginn hefði getað séð fyrir þær hamfarir sem urðu á fjármálamörk- uðum og skýra þessa atburðarás.“ 7. Viðhorf fremstu seðlabankastjóra heims Fremstu seðlabankastjórar heims hafa látið svipuð orð falla. Má rifja upp nokkur þeirra ummæla: Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, orðaði þetta svona í ræðu 17. mars 2009: „Efnahagslíf heimsins varð, í miðjum september árið 2008, fyrir áður óséðum og skyndilegum missi á trausti. Þetta var e.t.v. í fyrsta skipt- ið í hagsögunni sem einn neikvæður atburður gat, innan nokkurra daga, haft samtíða og neikvæð áhrif á alla aðila í öllum hagkerfum.“ Mervyn King, Englands- bankastjóri, orðaði þetta svona 21. október 2008: „Síðan í ágúst 2007 hefur fjár- málaóstöðugleiki fært hinn iðnvædda heim í kaf og í kjölfar falls Lehman Brothers Bank 15. september, hófst næstum óhugsandi atburðarás, sem náði hámarki fyrir viku eða svo þeg- ar tilkynnt var víða um heim að bankakerfið yrði endurfjármagnað. Það er erfitt að ýkja þetta ástand.“ Í ljósi þessara ummæla má spyrja hvort Seðlabanki Íslands og fjár- málaeftirlit hafi haft aðgang að betri upplýsingum en þeir sem stjórnuðu stærstu hagkerfum heims. Sömu sjónarmið eigi við um þeirra störf og atburðarásin haustið 2008 kom þeim ekki síður á óvart, þ.e. dýpt krepp- unnar. Ásakanir á hendur innlendra stofnana um ranga upplýsingagjöf geta því ekki talist sanngjarnar og fá ekki staðist. 8. Matskenndir þættir í uppgjöri banka Í bókum nútíma banka eru fjöl- margir eignaflokkar sem meta skal til markaðsvirðis og það mat breytt- ist hratt haustið 2008. Bæði stórir er- lendir bankar og fjármálaeftirlit gáfu út yfirlýsingar um mat á eignum sem breytt var viku síðar. Þetta átti við mat sem kom frá svissneskum, bandarískum, hollenskum og bresk- um bönkum, svo og fjármálaeft- irlitum þessara ríkja. Áhrif alls þessa komu fram af þunga hjá Landsbank- anum í byrjun október 2008. Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í ræðu 20. mars 2008: „Sumar hliðar á núver- andi eiginfjárreglum og reiknings- skilareglum magna líklega upp sveiflur í fjármálakerfinu og efna- hagslífinu.“ Á matskenndum liðum eru oft mjög mismunandi skoðanir og þeir sem rýna í tölur nú nær 2 árum síðar verða að hafa í huga að margháttað mat átti sér stað í fjármálafyr- irtækjum um allan heim, á mestu óvissutímum í fjármálasögunni allri, sem vafalaust má meta með öðrum hætti nú. Það er alltaf auðvelt að sjá hlutina fyrir eftir á. Bank for International Settle- ments, samtök seðlabanka, sögðu m.a. í kjölfar falls Lehman Brothers Bank: „Þar sem lánsfjár- og pen- ingamarkaðir voru í raun frosnir og hlutabréfaverð fór hríðlækkandi, horfðu bankar og önnur fjármálafyr- irtæki á aðgang að fjármögnun hverfa og fjármagn sitt skreppa sam- an vegna uppsafnaðs taps á eignum sem voru færðar á markaðsvirði.“ 9. Alþjóðlegt samhengi Vegna umræðu um innlendan þátt í mati bankanna, er rétt að halda til haga, að um helmingur af starfsemi Landsbankans var utan Íslands og komu endurskoðendur frá mörgum ríkjum að endurskoðun einstakra þátta samstæðunnar. Erlenda starf- semin laut nær alfarið stjórn þar- lendra bankasérfræðinga. Þá er enn- fremur rétt að halda til haga að fjármálaeftirlit í 7 ríkjum gegndu frumeftirlitsskyldum varðandi starfsþætti í erlendri starfsemi Landsbankans og erlendu eftirlitin gegndu sérstökum skyldum varðandi laust fé, sem frumeftirlitsaðili. Sam- starf við þessa aðila var almennt gott og engar ábendingar eða at- hugasemdir komu frá þeim um gæði þeirra upplýsinga sem gefnar voru, enda voru þær í samræmi við alþjóð- legar reglur. Fjármálaeftirlit á Íslandi starfaði gagnvart Landsbankanum með svip- uðum hætti og fjármálaeftirlit í þeim öðrum Evrópulöndum sem bankinn starfaði í. Sama á við um Seðlabanka Íslands sem sinnti lagaskyldu sinni sem lánveitandi til þrautarvara í samræmi við alþjóðleg viðmið. Horft til baka hefðu eftirlitsstofnanir allra landa viljað hafa fleiri starfsmenn og eftirlit nákvæmara, sérstaklega vegna lausfjárstýringar. Allir aðilar höfðu það að markmiði að tryggja starfsemi bankanna og auka viðbúnaðarstig. Alþingi sam- þykkti 10. júní 2008 heimild til að taka jafnvirði um 4 milljarða evra að láni til að styrkja varasjóði og samtöl áttu sér stað við stjórnvöld allt árið um aðgerðir til að styrkja íslenska kerfið. Betur hefði mátt gera og vinna að þessu úr báðum áttum. Bankarnir hefðu átt að minnka efna- hagsreikning sinn og Seðlabankinn að auka forðann. Staðreyndin var hins vegar sú, að svigrúm til þessara aðgerða var orðið afar takmarkað á árinu 2008. Yfirlýsing vegna umræðu um uppgjörsmál og lausafjárstöðu Landsbankans árið 2008 Eftir Halldór J. Kristjánsson » Fjármálaeftirlit á Íslandi starfaði gagnvart Landsbank- anum með svipuðum hætti og fjármálaeftirlit í þeim öðrum Evrópu- löndum sem bankinn starfaði í. Sama á við um Seðlabanka íslands sem sinnti lagaskyldu sinni sem lánveitandi til þrautarvara í samræmi við alþjóðleg viðmið. Halldór J. Kristjánsson Höfundur var bankastjóri Landsbanka Íslands 1998-2008. ÞAÐ ER óumdeilt að viljinn til að efla hlut kvenna í forystu- sveit atvinnulífsins er til staðar í viðskipta- lífinu. Samstarfs- samningur margra helstu aðila viðskipta- lífsins og fulltrúa allra stjórnmála- flokka, sem eiga sæti á Alþingi, sýnir svo að ekki verður um villst að við- skiptalífinu var veitt umboð til að leiða þetta brýna hagsmunamál án þess að til lagalegra þvingana kæmi af hálfu löggjafans. Samn- ingurinn sem undirritaður var hinn 15. maí á síðastliðnu ári felur í sér að viðskiptalífið taki sjálft ábyrgð og forystu um að tryggja 40% hlutfall hvors kyns í stjórnum fyrirtækja fyrir lok ársins 2013. Það skýtur því skökku við að nú tæpu ári eftir undirritun samn- ingsins að komið sé á dagskrá Alþingis frumvarp um breyt- ingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög þar sem lagt er til að komið verði á kynja- kvóta í stjórnum fyr- irtækja. Valdboð er ekki rétta leiðin til að auka hlut kvenna í stjórn- um fyrirtækja. Það er ekki hlutverk ríkisins að hlutast til um það hvaða ein- staklingar sitja í stjórnum fyr- irtækja á frjálsum markaði. Það er hins vegar nauðsynlegt að mannauðurinn verði nýttur til fulls þannig að kraftar beggja kynja fái notið sín í atvinnulífinu. Nóg er til af hæfum, vel menntuð- um og reynslumiklum konum sem fyrirtæki hefðu hag af að fá til liðs við sig. Hins vegar má færa rök fyrir því að konur þurfi með markvissari hætti að nýta fjár- magn sitt m.a. til að tryggja sér stjórnarsæti og stofna fleiri fyr- irtæki þar sem staðreyndin er sú að fjármagn hlutahafa, þekking á rekstri og reynsla ræður mestu um val í stjórnir fyrirtækja. Setn- ing laga sem felur í sér kynja- kvóta stjórnarmeðlima í fyr- irtækjum felur í sér frelsisskerðingu fyrir fyrirtæki og sendir röng skilaboð til kvenna sem vilja ná árangri í viðskiptalíf- inu. Konur þurfa hvorki né vilja meðgjöf í viðskiptalífinu. Eftir Erlu Ósk Ásgeirsdóttur » Það er nauðsynlegt að mannauðurinn verði nýttur til fulls þannig að kraftar beggja kynja fái notið sín í atvinnulífinu. Erla Ósk Ásgeirsdóttir Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Valdboð er ekki rétta leiðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.