Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Qupperneq 36
Reglur um starfsmenntunarsjóá félagsmanna í
LJÓSMÆÐRAFÉLAGI ÍSLANDS
1 .GREIN
Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður
félagsmanna í Ljósmæðrafélagi Islands
og starfar með því skipulagi og mark-
miði, sem segir í reglum þessum.
Heimili sjóðsins og varnarþing er í
Reykjavík.
2.GREIN
Ljósmæðrafélag íslands og þeir atvinnu-
rekendur, sem hafa undirritað reglur
þessar eru aðilar að sjóðnum. Auk þess
eiga allir félagar í Ljósmæðrafélagi
íslands, sem eru starfandi hjá þessum
aðilum, einstaklingsaðild að sjóðnum.
3 .GREIN
Markmið sjóðsins er að tryggja
fjárhagslegan grundvöll símenntunar og
endurmenntunar fyrir ljósmæður í
tengslum við störf þeirra, þannig að þær
beri ekki kostnað eða verði fyrir tekju-
tapi vegna slíks náms.
4.GREIN
Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum
mönnum til tveggja ára í senn. Skulu
tveir skipaðir af Ljósmæðrafélagi Islands
og tveir af atvinnurekendum. Þeir
atvinnurekendur, sem hafa flestar ljós-
mæður í störfum skulu eiga forgang á
að skipa hvorn sinn fulltrúa í
sjóðsstjórn. ef þeir svo kjósa. Stjórnin
skal halda gerarbók og rita í hana allar
samþykktir sínar. Til þess að samþykkt
sé lögmæt þarf meirihluti stjórnar-
manna að greiða henni atkvæði.
Stjórnin skipar með sér verkum og setur
sér starfsreglur.
5 .GREIN
Tekjur sjóðsins eru:
a) framlag atvinnurekenda eins og
umsamið er í kjarasamningi
Ljósmæðrafélags Islands við við-
komandi atvinnurekendur. Um
skil á framlagi atvinnurekenda
skal höfð hliðsjón af reglum sem
gilda um skil á orlofsfé.
b) vaxtatekjur.
6.GREIN
Til þess að annast hlutverk sitt skal
sjóðsstjórn, eftir því sem hún telur
unnt, veita neðangreindum aðilum
fjárstyrk úr sjóðnum til eftirfarandi
verkefna, enda samrýmist þau markmið
þeim, sem stefnt er að sbr. 3.grein.
1. Einstakra sjóðsfélaga til að
a) sækja ráðstefnur, námskeið eða
framhaldsnám innanlands eða
utan í ljósmóðurfræðum.
34
ljósmæðrablaðið