Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 71
LÆKNABLAÐIÖ
65
þó, •arinn Sueiniion:
UM GALLSTEINA
Þann 15. júlí 1947, kl. 23,
hringdi síminn. Ég var rétt í
þann veginn að taka á mig náð-
ir. í símanum var piltur úr
sveit minni í Borgarfirði. Hann
var í öngum sínum, kominn um
langan veg með fárveika móð-
ur sína. Hélt liann, að vís vist
væri fyrir hana í Landakotsspít-
alanum. Af misskilnirigi í sím-
tali milli héraðslæknisins og dr.
med. H. Hansen yfirlæknis, var
ekkert rúm ætlað konunni i
spítalanum, er liún var þar
komin. Þrengslin voru svo mik-
il, að hvergi var smuga, livert
rúm upptekið og dagstofan að
auki. Útilokað var, á þessum
tíma dags, að reka úr rúmi fyr-
ir sjúklinginn, þótt veikindin
mæltu með slíku. Pilturinn
revndi því fyrir sér um nætur-
gistingu annars staðar. Það varð
svo að ráði, að konan kæmi á
heimili mitt til gistingar. Búið
var um liana á legubekk í dag-
slofu og reynt að hlúa að henni
eftir heztu getu.
Konan liafði fcngið morphin-
sprautu, er farið var af stað að
heiman. Ekki var vitað, iive stór
sá skammtur var. I Hvalfjarð-
arhotni var líðan liennar orðin
slæm, og fékk hún þá opium-
helladonna þarmstaut. Er til
Reykjavikur kom, var konan
mjög þreytt og nokkuð þjáð,
en hafði ekki uppköst. Mókti
hún öðru hvoru. Ekki var vak-
að yfir lienni, en opið var milli
herbergja og liafði ég andvara
á mér.
Um kl. 3 um nóttina var kon-
an mjög þjáð. Gaf ég henni þá
1.5 ctg. morpliin-atropin, sem
ég hafði við hendina. Leið henni
þá fljótlega betur aftur. Um kl.
5 hrekk ég upp úr draumamóki
og heyri þá, að konan andar
einkennilega. Hún er þá komin
með Cheyne-Stokes öndun, köld
á útlimum og því líkust að vera
að skilja við. — Með aðstoð
konu minnar tókst mér að gefa
sjúklingnum coramin intraven-
öst, og varð þá undursamleg
breyting. Sjúklingurinn lifnaði
smátt og smátt við eftir 5 cc af
fyrrnefndu efni og komst til
fullrar rænu, liitnaði öll upp og
svaraði spurningum, er á hana
var vrt. Ilættan var þar með
liðin hjá. Morguninn fór í hönd
og sjúklingurinn komst þá í
liendur Dr. Ilansen. Hann taldi
konuna það lélega, að ekki væri
henni þá strax treystandi í stóra
aðgerð. Hann lét þó ekki líða
langan tíma, þar til hann gerði
cholecystectomi á konunni.